Alþýðublaðið - 07.01.1966, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 07.01.1966, Qupperneq 8
EMIL JÓNSSON, RÁÐHERRA í TÍMANUM 15. des. sl. voru birtar tvær greinar um það, sem blaðið kallar „Þyrilshneykslið11 — Blettur á stjórnarfarinu.” Upplýs- ingar sínar telur blaðið sig hafa úr ræðu, sem Helgi Bergs, al- þingismaður, hafi flutt við 2. um- ræðu fjárlaga, en líklegra þykir mér þó, að þessar upplýsingar séu frá Guðjóni Teitssyni, for- stjóra Skípaútgerðarinnar, komn- ar. Til þess bendir allt orðalag og efni greinanna, hvort sem hann 'í sjálfur hefur ritað þessar grein- í ar eða ekki. Eru þær mjög í j sama anda og bréf þau, er hann skrifaði fjárveitinganefnd um i sama efni. Mun það fátítt, ef ekki eins dæmi, að embættismaður ' skrifi um stjórnarathafnir síns ; ráðherra eins og fram kemur í þessum bréfum og Tímagreinum og með jafn haldlitlum rökum. Höfuðádeilan á mig er, að ég hafi selt olíuflutningaskipið Þyril fyrir óhæfilega lágt verð, og hafi ' það verið gert til að þóknast í- haldsgæðingi, eins og það er svo smekklega orðað í Tímagreininni, en með því skaðað Skipaútgerð ríkisins um stórfé. Þyrill hefði skilað Skipaútgerðinni nærri 11 milljón króna hagnaði á undan- förnum árum, og góðar horfur hafi verið um áframhaldand? rekstur skipsins. Hér við er ým- islegt að athuga. Þessi „nærri 11 miiljón krónu hagnaður,” sem svo er nefndur, er brúttóreksturs- hagnaður, og mun þó oftalinn um ca. 1 milljón króna. En það, sem mestu máli skiptir, er þó hitt, að þá er ekkert reiknað fyrir vöxtum, ekkert fyrir af- skriftum og ekkert fyrir hlutdeild ! í sameiginlegum kostnaði. Séu | þessi þrjú atriði tekin með og ! farið varlega í sakirnar, kemur í i Ijós, að brúttóhagnaðumn nægir . ekki til greiðslu þessara gjalda. Hvað því viðvíkur, að góðar [ reksturshorfur hafi verið fyrir skipið, skal eftirfarandi tekið fram. Framan af var rekstur : skipsins frekar hagstæður, a.m.k. ef litið er á brúttóhagnaðinn ein- an. Eftir að hin nýju tankskip i 8 7- J'ari. 1966 — . ALÞÝÐUBLAÐIí) olíufélaganna komu til sögunnar fór þó að koma annað hljóð í strokkinn, og nú er bezt að gefa Guðjóni Teitssyni sjálfum orðið. í bréfi Skipaútgerðarinnar, dags. 21. ágúst 1957, segir svo m. a.: -„Vegna mikils reksturskostnað- ar íslenzkra skipa af umræddri stærð hefur nokkuð skort á að skipið beri sig á árunum 1955—■ 1956, ef reiknað er með skrif- stofukostnaði og eðlilegri vara- sjóðssöfnun til endurnýjunar. Sígur þó ört á ógæfuhlið í þessu efni.” (Þess má geta innan sviga, að brúttóhagnaður á þessum árum nam: 1955 kr. 63.535,95 1956 kr. 172,31 Þetta hefði hrokkið skammt ef reiknað hefði verið með: 1. Vöxtum kr. 108,000 2. Afskriftum kr. 376.000 3. Sameiginl. kostnaði kr. 143.000 eða alls kr............. 627.000 hvort þessara ára.). Enda er svo komið í ársbyrj un 1958, að forstjórinn segir í bréfi, dags. 12. febrúar þ. áfs: „Vér höfum minnzt á umrætt vandamál við Eystein Jónsson, samgöngu- og fjármálaráðherra, og bendir hann á, að engin fjár- veiting sé til þess að gera tank- skipið lit með tapi, hvorki á strandferðum né millilandasigl- ingum. Virðist því helzt liggja fyrir að leggja skipinu upp eða selja það.” Og í bréfi dagsettu 28. okt. 1961, lýsir forstjórinn því, að skipið liggi um þær mundir verkefna- laust. „Vér viljum taka það fram, að eft.ir komu hins umrædda nýja tankskips S.Í.S., teljum vér engar líkur til þess að hægt verði að gera Þyril út fyrst um sinn nema með stórtapi, því að lýsisflutn- ingar til útlanda eru mjög tæki- færisbundnir og geta varla skap- að nægjanleg samhangandi verk- efni fyrir Þyril. Skip S.Í.S. myndu auk þess að einhverju leyti taka að keppa við Þyril um iýsisflutn- ingana.” Og ennfremur: „Vér teljum því líklegt, að Þyr- ill verði dæmdur úr leik og til sölu seint á næsta ári, en ekki mun fást fyrir skipið nema brot af því. verði, sem það mun raun- verulega standa í, eftir gott við- hald, tll nota samanborið við nýtt £ skip keypt á fyllsta verði.” Og þálfu öðru ári síðar, hinn 8. maúz 1963, segir forstjórinn í bréfi til ráðuneytisins, þar sem rætt er um strandferðareksturinn 1963: „Viljum vér því halda því fram, að umrædd rekstrarútkoma á síðastliðnu ári hafi orðið mun betri en búast mátti við. Er augljóst af hverju það stafar. Þar bjargaði tankskipið Þyrill nærri 2.4 millj., þannig að án hans hefði rekstrar- hallinn væntanlega orðið 20 millj. kr., með hinum áður nefndu stór- tjónum að upphæð ca. 3.7 millj. kr. Vér teljum sérstaka ástæðu til þess að vekja athygli á síðast- nefndu atriði varðandi Þyril, því að framvegis ’fyrst um sinn er varla von um, að það skip geti skilað hagnaði eða jafnvel borið sig. En ástæðan er sú, að Olíu- félagið h.f. fékk 2 ný tankskip seint á árinu 1962, og ber annað um 200 tonn en hitt 1000 tonn. Mun ganghraði stærra skipsins vera um 12 mílur, en ganghraði Þyrils er kringum 8 mílur og burðarþol 870—900 tonn.” Og síðar: „Eru af nefndum ástæðum þegar byrjaðir rekstrarerfiðleikar í sambandi við Þyril, þar eð skipið varð nú að liggja verkefnalaust í höfn heilan mánuð frá jan. til febr. sl. Um áramótin 1961 — 1962 barst ráðuneytinu tilboð í skipið frá Sigurði Markússyni, stýrimanni hjá Skipaútgerðinni, o. fl. Um til- boð þetta segir forstjórinn í bréfi til ráðuneytisins, dags. 10. marz 1962: „Litlu síðar en S. M. skrifaði nefnt bréf, átti hann samtal við undirritaðan, og kom þá í ljós, að S. M. hafði ekki hugsað sér hærra verð á skipinu en ca. 2 milljónir og bundið því skilyrði, að kaupin gætu farið fram þegar um áramótin 1961/1962, þannig, að kaupendur gætu átt von á rekstr- arhagnaði í ca. eitt ár, áður en hið nýja skip S.Í.S. spillti aðstöð- unni. Ekki taldi undirritaður, að rík- ið myndi selja Þyril fyrr en næsta haust eða næsta vetur og þá varla fyrir svo lágt verð, sem nefnt var.” Síðar í bréfinu segir: „Ekki er hægt að segja að skip- ið sé afgangs, a.m.k. ekki fyrr en hið nýja skip S.Í.S. kemur, en á tímabilinu þangað til gæti eitt- hvert af núverandi strandferða- tankskipum farizt, og vrði því eftir atvikum að líta á það sem alltof mikið bráðræði af ríkinu að selja Þyril fyrr en nánar verður séð, hvað framtíðin ber í skauti sínu. Undirritaður hug'-ar sér að kanna, livað reynast muni hæsta fáanlegt markaðsverð fvrir Þyril og tilkynna ráðunevtinu um það áður en nokkrar bindandi ákvarð- anir verða teknar í málinu.” Rúmu ári síðar og eftir tiltölu- lega hagstætt rekstursár Þyrils árið 1962 ritar forstjórinn ráðu- neytinu bréf hinn 2. apríl 1963, en í því segir m.a.: „Svo sem vér höfum tjáð ráðu- neytinu, bæði skrifleea og munn- lega, getur verið miög vafasamt, að tankskip vort, Þyrill. hafi nægt verkefni og verði starfrækt án rekstrarhalla á þessu ári, og staf- ar það af því, að eitt olíufélag- anna, Olíufélagið h.f.. fékk tvö ný tankskip til strandferða seint á sl. ári. Af þessum ástæðum höfum vér viliað halda opnum beim mögu- leika, að selja Þyril, ef bað virðist nauðsvnlegt, og höfum vér því lát- ið innlenda og erlenda aðila vita, að skipið kynni e.t.v. að vera til sölu...... Nú reynist það svo, að rekstrar- hagnaður á Þyrli á sl. ári varð ca. 2.4 millj., án ski-ifstofukostnaðar, vaxta eða afskrifta, en skrifstofu- kostnaður er tiltölulega mjög lít- ill við þetta skip, og það var þeg- ar við árslok 1961 afskrifað niður í kr. 558,900. Nú barst oss hinn 28. f. m. svo- hljóðandi símskeyti frá norsku firma, sem vér höfum haft við- skipti við: (Efni símskeytisins er að boðin eru ca. £50.000.— fyrir skipið). Áttum vér hinn 29. f. m. viðtal um símskeyti þetta við hæst- virtan samgöngumálaráðherra og tjáðum honum, að oss væri a8 ýmsu leyti mikil eftirsjón að Þyrli úr flota Skipaútgerðarinnar, en hins vegar gætum vér ekki ábyrgzt að ekki yrði halli á rekstri skíps- ins fyrst um sinn, enda hefði það orðið að liggja í heilan mánuð, frá því seint í jan. og þar til seint í febrúar á þessu ári, vegna skorts verkefna. Ráðherrann á- kvað samt, að ekki skyldi sinna áður greindu kauptilboði, og höf um vér bví tilkvnnt hinu erlenda firma, að ákveðið hafi verið að fresta sölu í bili, þar til nánar verður séð, hvort skipið hefði næg verkefni á vegum íslendinga.” Af þessu bréfi forstjórans virð- ist meea draga þá ályktun, að hon- um hafi fundizt mjög koma til greina að selia skipið fyrir ca. 6 milljónir. eftir liið tiltölulega hag- stæða rekstrarár 1962. Enn skýrar kemur betta í ljós í bréfi, sem hann ritar ráðuneytinu sex vikum síðar, eða hinn 20. maí 1963: „í framhaldi af bréfi voru 2. f. m. levfum vér oss að tilkynna ráðuneytinu, að oss hefur nu bor- ízt tilboð í tankskipið Þyril að upphæð £52.500 í indverskrl mynt, og er spurt hvort afstaða íslenzkra valdhafa sé enn óbreytt, að vilja ekki leyfa sölu skipsins. Hið nýja tilboð er svo lítið hærra en það, sem greint var frá í áðurnefndu bréfi, að vér gerum ekki ráð f.vrir, að sá mismunur breyti fyrri afstöðu hæstvirts ráð- herra. Hins vegar verðum vér að árétta það, sem augljóst er, að Þyr- ill mun fá erfiðan rekstrartíma a.m.k. í bili vegna fjölgunar tank-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.