Alþýðublaðið - 25.01.1966, Side 1
Þriðjudagur 25. janúar 1966 — 46. árg. - 19. tbl. - VERB: 5 KR.
DAGSBRUN 60 ARA
X VerkamanuafélaíTið Dagsbrún á 60 ára afmæli á morgim. Alþýðublaðið minnist þess í dag Y
6 með jrreinum og myndum á bls. 7, 8 og 9, og afmæliskveðjum á fleiri stöðura. Blaðlð á morgun X
Y verður helgað 100 ára afmæli ísafjarðarkaupst aðar. 0
>000ö0000000<><x>0000<>0000<000000000000000000000000<
Björgunarvesti úr
flugvélinni fundið
Reykjavík. — ÓTJ.
BJÖRGUNARVESTI úr Beech-
craftvél Flugsýnar fannst síðast-
liðinn sunnudag í fjörunni í
Sandvík, sem er milli Gerpis og
Barðsness. Er þar með allri leit
hætt nema með fjörum á þessu
svæði og í- fjallshlíðum þar í
kring. Vestið var innpakkað, og
hafði ekki verið blásið upp, og
þarna í fjörunni var einnig lítill
pakki, sem leitarmenn tóku með
sér til Norðfjarðar. Þar voru
staddir flugmenn frá Flugsýn, og
staðfestu þeir að björgunarvestið
væri úr Beechcraft vélinni, en á
það var m. a. stimpluð dagsetning
snðasta skoðunardags, og upphafs
stafir skoðunarmannsins.
Hins vegar könnuðust þeir
ekkert við pákkann, en er þó tal-
ið líklegt að hann sé einnig úr
vélinni. Leitarflugvél frá Varn-
arliðinu, sem var á sveimi yfir
Norðfirði í gær, tilkynnti um olíu
brák og brak á nokkrum stöðum,
TINA HEIMSÆKIR
FRIÐRIK KONUNG
Kaupmannahöfn, 24. jan.
(ntb-rb).
Friðrik konungur veitti Tínu
lit.lu Wiegels áheyrn í dag. Litla
stúlkan var þæg og stillt allan
tímann og bað um engar veiting-
ar nema vatn.
Foreldrar Tínu, Hanne og Pet-
er Wiegels, komu til Kristjáns-
borgar að þakka konungi fyrir
blýjar kveðjur hans daginn sem
Tína fannst. Áður en hin hátíð-
lega athöfn hófst ræddi konungur-
inn við Tínu litlu í nokkrar mín-
útur.
og var varðskipi stefnt á staðinn
til þess að kanna málið. Var þá
aftaka veður svo að ekki tókst að
ná nema einni prufu. Hún hefur
verið rannsökuð og mun ekki úr
týndu vélinni.
Þar sem björgunarvestið fannst
í Sandvík, benda líkur til þess að
flugvélin hafi Ient I sjónum utan
við Barðanes, því að vindáttin var
slík að þangað hefði það varla
farið hefði hún lent inni í fló-
anum. Þetta eru þó aðeins getgát-
ur.
Þeir Sverrir Jónsson og
Höskuldur Þorsteinsson, sem
týndust með vélinni voru báðir
giftir, og áttu fimm börn hvor.
Manns leitað í iðu
Eausri stórhríð
MIKINN reyk lagði um Hótel
Skjaldbreið um sjö leytið í gær-
kvöldi. Slökkvillðið var kvatt á
vettvang. Reykurinn reyndist
koma frá rafli sem er í sambandi
við lyftu hússins. Hafði hann
brunnið yfir.
Raufarhöfn GÁ. — OÓ.
LEIT hefur staðið yfir í gær off fyiradag að póstmann-
inum frá Raufarhöfn, en hann hvarf frá bíl sínum um tíu kíló-
metra frá kauptúninu í stórhrið, og hefur ekkert spupzt til hans
síðan Mjög hefur verið erfitt til leitar vegrna ofsaveðurs og hríð-
ar á þessum slóðum allt frá því að maðurinn týndist.
Auðunn Eiríksson póstur á Rauf
arhöfn fór á mánudagsmorgun frá
Raufarhöfn austur í Krossavík,
sem er um 20 kílómetra frá Rauf
arhöfn. Fór hann með tvo farþega
á Rússajeppa með blæju. Komst
bann með fólkið til Krossavík-
ur, en þó var e-kki akfært alla
leið og varð fólkið að ganga noka
urn spöl til bæjarins. Bóndinn í
Krossavík fylgdi Auðunni aftur
til bílsins og skildi við hann
þar um þrjúleytið. Fór veður þá
versinandi og þegar bóndi kom
aftur heim hringdi hann til Rauf
arhafnar og sagði að Auðunn
væri á heimleið, þótti það örugg
ara vegna veðurútlits. Þegar Auð-
unn var ekki kominn hpim um
sexleytið um kvöldið, lögðu nokkr-
ir menn að stað til að svipast um
eftir honum, en þá var hríðin og
óveðrið orðið slíkt, að þeir kom
ust ekki nema rétt út fyrir þorp
ið og urðu þá að snúa við. Klukk
an tíu um kvöldið lögðu átta
menn aftur á stað á tveim bílum.
Brutust þeir allt austur að Ytra-
Hálsi. Fundu 'þeir þá bíl Auðuns,
en sjálfur var hann hvergi sjáan
legur. Komu leitarmenn aftur til
Framh. á 14. ífðu
HARÐUR AREKSTUR<
TVENNT slasaffist í mjög
hörðum árekstri sem varS á
mótum Laugavegrar og
Klapparstíg-s laust fyrir
klukkan sjö í gærkvöldi.
Þar voru á ferðinni bifrei®
frá varnarliðmu í Keflavík
og bifreið úr Reykjavík.
Ökumaður JO bifreiðarinnar
var fluttur á Slysavarðstof-
una, og einriig stúlka sem
kastaðist út úr hinni bif-
reiðinni. Fleiri slösuðust
ekki. Þár sem rannsókn var
ekki lokið í málinu í gær
kvöldi, er blaðinu ekki kunn.
ugt um orsakir slyssins.
Mynd'ina tók Jóhann Vil-
berg, á slysstaðnum.
OOOOOOOOOOOOOOOÓ
OECD mælir meö
ráðstöfunum gegn veröbólgu
BLAÐINU barst í gær svo-
hljóðandi frétt frá viðskipta-
málaráðuneytinu.
Efnahags- og framfarastofnunin í
París birti í dag ársskýrslu sína um
efnahagsmálin á íslandi. Fjallar
skýrslan um þróun og ástand efna
hagsmála á íslandi. Hér fer á eftir
lokakafli skýrslunnar í íslenzkrl
þýðingu:
„Raunverulegar þjóðartekjur
héldu áfram að aukast á árinu
1965. Framleiðslan jókst og verzl-
unarkjörin bötnuðu mikið vegna
hækkunar á verði útfluttra vara.
Greiðsiustaðan vlð útlönd var é-
fram sterk. Það dró úr hallanum
á viðskiptajöfnuði (vörum og
þjónustu) og gjaldeyrisvarasjóður
inn hélt áfram að aukast. En sam-
hliða þessari hagstæðu þróun ríkti
áfram verðbólguástand. Ráðstafan-
ir til þess að skapa aukið iafnvægi
virðast þurfa að vera þríþættar. í
því skyni að draga úr hinni miklu
eftirspurn eftir framleiðsluþáttun-
um virðist þörf á strangari stefnu
í fjármálum ríkisins og einnig
kann að vera nauðsynlegt að
herða á útlónareglum bunkanna-
Framh. á 14. siðu.