Alþýðublaðið - 25.01.1966, Page 7
HUGMYNDIN FÆDDIST í
UPPSKIPUNARBÁTUNUM
Það er næsta erfitt fyrir þá, sem
Ungir eru að gera sér í hugarlund,
hvernig hér var umhorfs fyrir svo
eem 30 árum, því breytingar hafa
verið örar, þótt litið sé til skemmri
tfma. Ennþá erfiðara er þó að
leita helmingi lengra aftur í tím-
ann, eða sextíu ár. Engu að síður
Skulum við hverfa 60 ár aftur í
tímann til loka ársins 1905.
Hægt og hægt var að verða breyt
ing á högum og háttum manna
hér á landi. Fólk var að flytjast
til sjávarsíðunnar, það fækkaði
heldur í sveitunum, innlend verzl-
un var að slíta barnsskónum og
byrja að eflast. Vélbátar voru að
koma til sögunnar og við sjávar-
síðuna, þar sem þéttbýli var, mynd
aðist ný stétt manna. Verkamenn,
sem mest unnu við uppskipun varn
ings, sem uppskipunarbátar fluttu
úr skipum og verkamenn báru
síðan á sjálfum sér í pakkhús kaup
manna.
Kjör almúgans voru heldur bág
á þessum tímum. Hann átti sér
enga talsmenn, og menn urðu að
þræla myrkranna á milli, þegar
einhverja vinnu var að fá til að
hafa í sig og á, og gerðu sjaldnast
betur en að skrimta.
Undir lok ársins 1905 fóru reyk-
víkskir verkam. að hugsa til þess
að stofna með sér félag. Reyndar
hafði verið rætt um þetta í upp-
skipunarbátunum af og til allt sum
arið, en framkvæmdir drógust þó
til áramóta. Ármann Jóhannson
einn af stofnendum Dagsbrúnar,
komst svo að orði í viðtali við VSV,
sem birt var í Alþýðublaðinu fyrir
30 árum: „Ég man eftir því, að
einu sinni, er við vorum á leið-
inni í land, að verið var að tala
um kaupið og sögðu karlarnir þá
hver af öðrum, að það væri nauð-
synlegt að stofna félag og gera
eitthvaö. Það var þörfin, hin knýj
andi nauðsyn, sem talaði....Ég
þori að fullyrða, að svona tal hafi
verið allt sumarið í hverjum upp-
skipunarbát og yfirleitt á hverj-
um vinnustað, þar sem verkamenn
voru samankomnir. Margir voru
stórhuga, en ýmsir löttu, eins og
gengur og gerizt.”
I þessu húsi var undirbúningsfundurinn haldinn.
Fyrsti undirbúningsfundur verka
mannafélagsins í fíeykjavík var
haldinn 28. desember árið 1905
í pakkhúsi Jóns Magnússonar frá
við Vesturvallagötu. Á þeim
hélt Sigurður Sigurðsson
búfræðingur fyrirlestur um verka
mannasamtök úti í heimi, en
hann hafði numið erlendis og
kynnzt þar boðskap jafnaðai'stefn-
unnar. Á þessum fundi mættu 36
menn og var þar samþykkt að
stofna verkamannafélag í Reykja
vík, „einkum í þeim tilgangi að
laga vinnutímann, jafna kaupgjald-
Hús Dagsbrúnar og Sjómanna félagsins við Lindargötu,
‘./VH
'■ýS-’X' Itvt* 4
í/-» ■) f4i-i 6?«
Off *ri
/i ■ yj/t ./Á%r> r
V » V/vZ
t “'£/ yO> t
//y.4-K i
X-< '
;
J< j •
/J' 'í
W/m§pí
/<//■■
.... /> > ■</ ■■,*■> ■ ",
t y ) —■ - '
Samkomulagið um félagsstofnunúna.
ið og takmarka sunnudagavinn-
una.” Kaus þessi fyrsti fundur
fimm manna nefnd til að semja
félaginu lög og finna því nafn.
Strax eftir áramótin, eða 3. jan-
úar var svo haldinn annar fundur
í Bárubúð. Nefndin hafði að vísu
ekki alveg lokið störfum, en lagði
þó fram á fundinum stofnskrá fyr-
ir væntanlegt félag .Nefndin gerði
það einnig að tillögu sinni, að fé-
lagið skyldi heita Verkamannajé-
lagið Dagsbrún.
s
í grein um félagið á fimmtugs-
afmæli þess sagði núverandi for-
maður Dagsbrúnar, Eðvarð Sig-
urðsson, m.a.: ...vafalaust end-
urspeglar nafngiftin vonirnar, sem
sem bundnar voru við þetta nýja
félag og hlutverk þess, vonina um
að nýr dagur væri að rísa fyrir
iítilmagnann í þjóðfélaginu.” Síð-
ar segir Eðvarð: „Þúsundum verka
manna hefur þetta nafn orðið eink-
ar hjartfólgið og andstæðingar al-
þýðunnar hafa lært að bera virð-
ingu fyrir því — og ekki alltaf
óttalausa.”
Þessi íundur samþykkti stofn-
skrá nefndarinnar og skal hún
birt hér til fróðleiks.
„Ver sem.r.itum nöfn vor hér
undir ákve&um hér meö aö
stofna fétag meö oss, er vér
nefnum „Verkamannafélagiö
Dagsbrún.”
Mark og miö þessa félags vor
á að vera:
1. Að styrkja og efla hag Og
atvinnu félagsmanna.
2. Aö korna á betra skipiilagi
aö þvi er alla daglaunaviniiu
snertir.
3. Aö takmarka vinnu á öil-
um sunnu- og helgidögum.
4. Aö auka menningu og brqð
urlegan samhug innan félags-
‘ ins. ;
5. Aö styrkja þá félagsmenn
eftir megni sem veröa fyrir slás
um eöa öörum óhöppum.” ■
•?
Undir þessa stofnskrá ritui’y.i
nöfn sín 384 verkamenn og má |f
því sjá, að áhugi á félagsstofnuji-
inni hefur verið mikill og almenþ-
ur. Geta má þess að stofnskrájn
hefur varðveitzt og er til í df?g
ósködduð. )
fíúmiega 3 vikum síðar var stp
þriðji fundurinn haldinn í Báry-
búð við Vonarstræti, en í því húsi
hafa iíklegast fæðst fleiri iélí/
en nokkm öðru. Á þessum funt^i,
en hann sóttu hátt á þriðja hundjr-
að verkamenn, var Verkamannji-
féiagið Dagsbrún formlega stofh-
að. Eru því á morgun liðin nh-
J
Sjá næstu síöu Cj
ALþÝÐ.UBLAÐIO 25.. janúar 3966 J