Alþýðublaðið - 05.02.1966, Síða 4
Sitstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. - Ritstjórnarfull-
' trói: Eiöur GuBnason. — Símar: 14900 - 14903 — Auglýsingasími: 14906.
Aösetur: AiJíýSuhúsiS viB Hvérfisgötu, Reykjavík. — PrentsmiBja Alþýðu-
blaBsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 elntakiB.
Ctgefandl: Aibýöuflokkurinn.
1 ÁRÁS Á AKRANES
ÞJÓÐVILJINN virðist ekki eiga annað áhuga-
1 mál þessa daga en að níða niður íslenzkan sjávar-
i útveg og teljo þjóðinni trú um, að hann sé á vonar
j völ vegna stefnu ríkisstjórnarinnar. Er þetta því
] furðulegra, sem heildarafli íslendinga hefur aldrei
] verið meiri og verðmæti aflans 'aldrei meira en síð
astliðið ár.
í gær gevði Þjóðviljinn furðulega árás á Akra-
nes og Akurnesinga. Segir blaðið, að það sé „hnign
andi útgerðarbær", sem sé að „veslast upp“ og fólk
flytji þaðan í Iirönnum!
Alþýðublaðið verður að láta í Ijós undrun yfir
þessari óverðskulduðu árás á Akranes. Þar hefur
verið mikil vinna og framleiðsla í sjávarutvegi og
iðnaði, og íbúum hefur fjölgað hvert einasta ár,
minnst um 70 manns á ári, oftast meira. Akranes
er vaxandi og blómlegur bær og Akurnesingar eiga
sízt allra skilið slíkar árásir sem þá, er Þjóðviljinn
hefur gert.
Þróu'n útgerðarmála hefur verið hin sama á Akra
nesi sem annars staðar á Suðvesturlandi. Stórir og
glæsilegir bátar hafa verið keyptir og þeir hafa leyst
af hólmi litla og gamla báta. Síldveiði hefur verið
mikil og margvísleg vinna við hana, en í Faxaflóa
hefur undanfarin ár verið fiskiþurrð, sem hefur vald
] ið, því, að dregið liefur úr vinnu í frystihúsum. Al-
jþýðublaðið getur fullyrt við Þjóðviljann, að Emil
] Jónsson og Benedikt Gröndal eiga ekki sök á þessu
j aflaleysi.
Þjóðviljinn talar um „traustan“ rekstur þriggja
frystihúsa á Akranesi Hins vegar ivita Akumesing
ar vel, að Fiskiver og Heimaskagi hafa átt við
mikla fjárhjagserfiðlleika a|ð etja síðustu 10—15
ár, og þessir erfiðleikar voru sízt minni, þegar Lúð
vík Jósefsson var sjávarútvegsmálaráðherra en þeir
hafa verið síðan. Fiskiver starfaði meðan dugmikils
forstjóra naut tvið, en hefur hætt störfum eftir að
hann féll frá
Arás Þjóðviljans á Akranes er liður í herferð
blaðsins gegn fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar um
aukinn iðnað í landinu. Liggur í orðum blaðsins,
að iðnaðurinn hafi tekið fólk frá fiski á Akranesi.
Er því rétt að spyrja Þjóðviljann, hvort hann telji,
að sementsverksmiðjan hefði ekki átt að rísa á Akra
nesi? Telur Þjóðviljinn, að þessi verksmiðja hafi
ekki orðið Alcurnesingum til góðs?
jÞjóðviljinn reynir að notfæra sér aflaleysi á
þoijskveiðum til að skapa úlfúð milli þeirrar grein-
jfff útgerðar og annarra. Þetta er ódrengilega að ver-
fð jog getur engum komið að haldi. Ríkisstjórnin
hefur reynt að rétta hlut bolfiskveiða eftir mætti
Og mun halda þeim tilraunum áfram, hvað sem Þjóð
viljinn segir.
r 4 5. febróar 196S - ALÞÝÐUBLAÐI0
m
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO;
ic Hvers vegna rannsókn.
Allt frá handlöngurum til arkitekta.
if Rannsóknin stendur yfir.
iz Óhrein hús og eyðilögS föt.
Y
oooooooooooooooooooooooooooooooo-
KKISTINN SKKIFAR: „Byggr-
ingameistarar hafa farið fram á
það, að rannsókn verði gerð á
byg-gingakostnaði í Reykjavík. Ég
skil ekki í öðru en að allir taki
undir þessa ósk byggingameistara,
enda gæti þá ef til vill fengizt
skýring á því, hvers vegna miklu
dýrara er að byggja íbúðir af
sömu stærð innan lögsagnarum-
dæmis Reykjavíkur en annarstað-
ar á landinu, jafnvel hérna við
bæjardyrnar, í Kópavogi og Hafn
arfirði.
ÓSK B YGGIN G AMEISTAR-
ANNA er áreiðanlega sprottin af
því, að þeim hefur verið kennt
um verðlagið á íbúðunum. Þarna
munu þeir eiga einhverja sök en
ekki alla, ástæðan er sú, að það
er „hasar“ í byggingamálum —
og allir, sem koma sálægt
byggingamálunum r«yna að krafsa
til sín allt sem þeir mega, allt frá
yfirborguðum handlöngurum uppí
arkitekta, eða öfugt, eftir því sem
menn vilja hafa það,
OG ALLT KEMUR þetta niður
á þv: fólki, sem er í hú-næðis
hraki og reynir að kaupa íbúð. Ég
þekki persónulega nokkuð marga
sem á undanförnum árum liafa
keypt og verið að borga og ég verð
að segja það, að margt af þessu
fólki hefur lifað hreinu og beinu
sultarlífi. Stundum er þetta þv?
sjálfu að kenna vegna þess, að
það hefur keypt of stóra íbúð en
alls ekki alltaf.
ÞÁ ER ANNAÐ, að engin áætl
un hefur staðizt. Jafnvel skápar og
eldhú'únnréttingar hafa kostað
Frúlofunarhrlngar
Fljót afgrelðsla.
Sendum gegn pöstki öf »
Guðm. Þorsteinsson
rnllsmlSnr
Bankastrætl U.
helmingi meira þegar verkinu var
skilað heldur en talið var líklegt
að það kostaði, og vitanlega set
ur allt slíkt allar áætlanir úr
skorðum. Sagan, sem sögð var um
daginn um isprengingamanninn er
því ekkert ein dæmi. En af þessu
tilefni frá byggingameisturunum
langar mig að spyrja:
ER ÞESSI RANNSÓKN á hygg
ingakostnaði í Reykjavík ekki haf
in fyrir nokkru. Opinber nefnd
undir forystu Jóns Þorsteinsson
ar alþingÞmanns hefur, eftir því
sem mér hefur skilizt, fengið
það verkefni í hendur, að rann
saka hyggingakostnað og ennfrem
ur að gangast fyrir byggingum
íbúða til isölu og leigu, óg held um
1250 a fáum árum. Þes'ú nefnd
hóf starf sitt fyrir nokkru og mun
að ýmsu leyíi vera vel á veg kom
in. Það verður fróðlegt að sjá
skýrslur hennar.“
"-<1
FREYJA SKRIFAR: „Þú minnt
ist á það eftir ofviðrið um síð
ustu helgi. að ekki hefðj verið
vanþörf á því að skola af Lauga
veginumu tii þess að hreinsa af
honum versta óþverrann. Þetta
voru orð í tíma töluð, en ekkert
hefun verið gert og veður mað
ur nú óþverrrann jafnvel til þess
að geta komizt inn í fínustu verzl
anirnar og ekki nóg með það.
Það má vara sig á að koma við hús
in í þrengslunum á gangstéttun
um, því að annars eyðileggur mað
ur fötin sín. Þetta hefur hent mig
og þess vegna skrifa ég þér þess
ar línur. Ég get ekki iskilið, að
það sé ofverk verzlanaeigenda að
þvo utan framhliðar liúsa sinna.“
Hannes á hominu.
Auglýsing
Um úthlutun lóða undir
verzlunarhús í Reykjavík.
25. febrúar n.k. rennur út frestur til að
sækja um lóðir undir verzlunarhús.
Úthlutað verður tveim lóðum, 1 Breiðholti
og tveim lóðum í Fossvogi.
Uppdrættir eru til sýnis í Skúlatúni 2, III,
hæð alla virka daga frá kl. 10 — 12 og 13
— 15 nema laugardaga frá kl. 10 — 12.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Óskað eftir nemanda
til viðgerðar á gjaldmælum í leigubifreið-
um. Æskilegt er að umsækjandi hafi untnið
við rennismíði og eða úrsmíði.
Áskilið er að umsækjandi hafi gagnfræða-
próf eða hliðstæða menntun og sé á aldrin-
um 18 til 22 ára.
Allar nánari upplýsingar verða gefnar í
skrifstofu, Bifreiðastjórafélagsins Frama,
Freyjugötu 26, mánudaginn 7. febr. kl. 10
til 12 f.h. Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Löggildingarmaður gjaldmæla,
Óskar B. Jónsson.
SMURT BRAUÐ
Snlttur
Oplð frá kl. 9—23,30.
Brauðstofap
Yesturgötu 25.
Sfml 16012 .