Alþýðublaðið - 05.02.1966, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 05.02.1966, Blaðsíða 10
Flugsíðan ( Framhald af 7. síðu. nart upp á hverri bylgjulengd inni eftir aðra en fengu ekkert svar. Kafteinn Uv sagði seinna: Ég sá hvítan hjálm hans glampa í tunglskininu. Hann hallaðist aðeins fram, og hreyfðist ekki. Höfuðið hafði hnigið fram á brjóst ið. Ég vissi að flugvélin hafði ekki eldsneyti nema til nokkurra mín útna flugs í viðbót. Það var hræði legt að vita þetta og geta ekkert gert. Þýzka Starfighterflugvélin stefndi beint á Narvik. Það var hætta á að vélin myndi lenda á bænum, og slökkvilið og lögregla hófu undirbúning. En : loftinu sáu norsku flugmennirnir að mótorar þýzku vélarinnar drápu skyndilega á sér, og klukkan 19,42 splundr aðist vélin á bjargi, sjö kíló- metra frá Narvik. Enn einn Sup- erfighterinn var fallinn í valinn. Loftf erlSavan damál Framhald af síðu 9. stofnunin hefur gert er í ráði að fella Evrópu inn í Miðjarðarhafs- svæðið með tilliti til flugumferðar Og verða þannig eitt af átta „sam- Starfssvæðum” stofnunarinnar. Frl?nerki , Framh. af 5. síðu. í aukana. Akureyri verður höfuð- staður Norðurlands. Bílarnir koma og vegirnir lengjast í allar áttir frá bænum. Akureyringar taka forusíu í flugi — og stofna Flug- félag Akureyrar, sem svo varö móðurfélag Flugfélags íslands. Já, margt mætti telja upp úr bæj- arsögu Akureyrar þessa öld, sem liðin er síðan kaupstaðarréttindin fengust. En líkja mætti Akureyri við öskubuskuna, sem reis upp úr stó sinni og varð drottning. Ó- hrjálegt þorp verður fögur borg á þessum tima. íbúatalan fer nú að nálgast tugþúsundið. Skáld vorra tíma yrkja svo um Akureyri: Innzt við skyggðan Eyjafjörð ert þú bærinn vona minna, Þegar vetrar-veðrin hörð valda tjóni á fósturjörð, fjöllin há þá halda vörð um heill og gæfu barna þinna. Innzt við skyggðan Eyjafjörð ert þú bærinn vona minna. Akureyri! eflaust hún óskir beztar hlýtur mínar. Unir vel á brekkubrún þá blómgast lendur, grænka tún, og sjóinn gyllir geislarún, Glóey hlý við rætur þínar. Akureyri! eflaust hún óskir beztar hlýtur mínar. Akureyrar-frímerkið er fallegt merki og mun vera annað merkið í röðinni af kaupstaðarfrímerkj- um. Hið fyrsta af þeim er Reykja- víkurfrímerkið, sem út kom á 175 ára afmæli Reykjavíkur 18. ágúst 1961. Upplag Akureyrar frímerkisins er W2 milljón. Kvikasilfur Frh. af 6. síðu. fólki í Svíþjóð ráðlagt að borða ekki nema í mesta lagi tvö egg á dag. í fiskunum fannst líka hættu lega mikið af alkylkvikasilfri, og prófað var að steikja og sjóða fiskinn til að sjá, hvort kvikasilfr ið minnkaði við það, en svo reynd ist ekki. Ekki hefur fundist orsök þessa mikla magns kvikasilfurs í fiskinum, en margt bendir til að þar sé um að ræða ólífrænt kvika silfur í náttúrunni. Ef það reynsit rétt, er mikilvægt, að verksmiðj ur og iðnaðarfyrirtæki geri ein- hverja varúðarráðstafanir um úr- gang, sem inniheldur kvikasilfur, en hendi honum ekki í sjóinn án athugunar. 10 5. febrúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Helmssýning í Asíu frá miðjum nóvember til jafn- lengdar í desember. 6.000 fermetrar. í aðalbyggingum sýningarinnar hafa þeir sem sýna vilja um 6000 fermetra til umráða, en þar er líka reiknað með skrifstofum, samkomusölum, kvikmyndasölum og veitingasölum. Undirbúningurinn snertir samt margt fleira en sjálfa sýninguna. Stjórnin í Thailandi verður nú að leggja nýja vegi, koma upp stór- um bílastæðum og sjá sýningar- svæðinu fyrir vatni og rafmagni. Fyrsti hyrningarsteinninn var ný- lega lagður af forsætisráðherra Thailands, Thanom Kittikachorn. Búizt er við að flest ríki Evr- ópu taki þátt í heimssýningunni. Ennfremur munu Bandaríkin, Kanada og allmörg ríki Asíu sýna þar, og sumir láta sér jafnvel detta í hug að einhver ríki í Af- ríku og Suður-Ameríku komi til leiks. Heimssýningin er einn vottur um vaxandi áhuga Asíubúa á að örva efnahagsvöxtinn, en á hon- um fór fyrst að bera fyrir al- vöru á árinu 1965 þegar endan- lega var ákveðið að koma upp þróunarbanka fyrir Asíu. Höfuð- stóll bankans, sem verður stað- settur í Manilla, á að vera einn milljarður dollara (43 milljarðar íslenzkra króna). Sennilega getur bankinn tekið til starfa á hausti koinanda, en þá er gert ráð fyrir að 15 ríki verði búin að sam- þykkja og staðfesta sáttmálann um hann. Rannsókn í Bretlandi á fjárreiðum flokkanna London 3. 2. (NTB-Reuter.) Brezka stjórnin skýrði frá því í dag að hún hefði áform á prjón unum um að skylda fyrirtækj til að veita upplýsingar um fjárfram lög, sem þau kunna að veita stjóm málaflokkum. Stjómmálamenn > London telja að ráðstöfun stjórnarinnar bein- ist einkum gegn íhaldsflokki Ed ward Heaths, sem fær ríkulega fjárhagsaðstoð frá brezkum at )vinnufyrirtækjum, íhaldsmenn eyddu rúmlega einni milljón punda (120 milljónum ísl. kr. síð ustu 17 mánuðina fyrir kosningar 1964. Verkamannaflokkurinn sem fær fjárframlög frá verkalýðsfé lögum, eyddi 300.000 sterlings- pundum (36 milljónum ísl. kr.) iritrininqai'ápjöul s.Ms. Ingólfs-Café Gömlu dansarnirí kvöld kl. 9 Hljómsveit Jóhannesar Eggertssonar Söngvari: Grétar Guðmundsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 5. Sími 12826. Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Kópavogs verður haldin'n í Alþýðuhúsinu Auðbrekku 50, sunnudaginn 6. febrúar kl. 4.30 s.d. DAGSKRA: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Emil Jónsson utanríkisráðherra ræðir st j ómmálaviðhor f ið. 3. Önnur mál. Kópavogur Útburðarbam vantar í Kópavog. Upplýsingar í síma 40753. AlþýðtihlaÓIó. Röskur piltur óskast tll innheimtustarfa. Þarf að vera kunnugur í bænum. Alþýðublaðið. Alþýðublaðið Blaðburðarböm vantar í eftirtalin hverfi: Kleppsholt Laugaveg efri Laufásveg Lönguhlíð Lindargötu Hverfisgötu I og H Bergþómgata. Alþýðublaðið sími 14900.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.