Alþýðublaðið - 05.02.1966, Side 16

Alþýðublaðið - 05.02.1966, Side 16
 Jonni frændi var í bíla keleríi um daginn, en þeg ar bílstjórinn kveikti ljósið jesúsaði daman sig og sagði: Þör ert alveg eins og beygl uð öskutunna í framan. . . Nú er búið að sanna að tunglið er ekki úr eintóm um osti og þá er spurningin hvort við eigum nokkurt erlndi þangað upp. Allt og sumt sem hefst upp ún krafs inu verður það, að þegar þeir eru búnin að birta svartar myndaklessur frá tunglinu af eintómum tsandl og grjóti — Þá finnst manni það ekk ert fallegt lengur. .. . AKRANES ER HNIGN- ANDI ÚTGERÐRBÆR í VIÐ REISN. Fyrirsögn i Þjóðviljanum KUNNINGI minn þekkir mann, sem á kunningja, sem er svo vinstrisinnaður að armbandsúr- ið lians gengur ekki á hægri hand leggnum. Þetta olli honum um- talsverðum óþægindum, þegar liann handleggsbriotnaði á vinstri upphandlegg og þurfti að ganga með hana í gifsi í þrjár vikur. Nú tilheyri ég vinstri armi bak síðuflokksins og ég veit af eigin reynslu að úrið mitt gengur ná- kvæmlega rétt á vinstri handleggn um, enda hef ég aldrei borið við að setja það á hægri hándlegginn. Ennfremui' reyni ég eftir megni að forðast að heilsa fólki með handabandi, þar eð forlögin hafa verið mér svo grimm að gera mig örfhentan. Þá get ég lýst því strax yfir. að ég er á móti hægri liandar akstri og tek ekki hægri beygjur, nema með semingi. Hart í bak er leik rit að mínu skapi. En nú er mælirinn fullur að mínu viti og það staðfestist í eft- irfarandi fyrirsögn í Þjóðviljanum í gær: „Sovézkt geim.far lenti hægri lendingu á tunglinu í gær.“ Og í inngangi að fréttinni segir á þessa leið.: „Sovézkum vísinda mönnum tókst í fyrsta sinn að láta geimfar lenda hægri lendingu á tunglinu í dag. Geimfarið „Luna 9.“ lenti kl. 17,45 eftir íslenzkum tíma í svonefndu Stormahafi. Tæki geimfarsins eru í lagi.“ Ég fer að halda að það sé eitt hvað til í því sem Kínverjar segja um hægrisinnaðrar tilheigingar í Sovétríkjunum. Til þessa liéldum við að hin meinta hægri villa þar í landi beindist einkum að hug sjónalegum efnum, en nú hafa þeir greinilega farið út fyrir þann ramma og komið hægrivillunni inn í geimvísindin. Manni kæmi meira að segja ekki ó óvart, úr því sem komið er, að sovézkir geri hægri handar akstur í geimn um að skilyrði fyrir alþjóðlegri samvinnu á því sviði. Ennfremur þykir mér það grun samlegt að Johnson Bandaríkja- forseti varð fyrstur manna til að óska sovézkum fyrirmönnum til hamingju með hina margumtöluðu hægri lendingu á tunglinu og renn ir það ekki óstyrkum stoðum und in kenningar Kínverja um vafa samar fyrirætlanir sovézkra og skuggalegt samsæri þeirra við Bandaríkin um að leiða hægri stefnu yfir heiminn — og geim inn úr því sem komið er. Þá þykir mér, vinstrisinnuðum baksíðuflokksmanni, táknrænt að liægri lendingin skyldi einmitt hafa farið fram á svonefndu „Stormahafi‘“ því ekkert er lík legra en nú verði innan tíðar stormasamt í sambúð Kinverja og Sovétmanna, vegna þessa sem vest rænir vísindamenn og Bandaríkja forseti kalla stórafrek í geimvís indum. Mér er nefnilega tíl efs, að þein hinir sömu hefðu látið aðdáun sína jafn afdráttarlaust í ljós, ef Sovétmenn hefðu verið trúir sinni Iiugsjónafræði og lent vinstri lendingu á tunglinu. „MaSurinn minn hefur 'svo sér- stæðan smekk. Hann haiar tilbú- in }öt!” — Hversvegna lögum við okk ur ekki eftir aðstæðunum og lát u meins og við séum í brúðkaups ferð?

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.