Alþýðublaðið - 22.02.1966, Page 9
harðnað og ástæðan til þess að við
horfin hafa harðnað, er sú, að
Bandaríkjamenn telja mótaðilann
ekki hafa áhuga á samningaviðræð
um.
Er þá tröllaukið styrkleikapróf
Bandaríkjamanna og Kínverja
hugsanlegt eins og málum er nú
komið? Hoger Hilsman Jr., sér-
fræðingur í Asíumálefnum og fv.
aðstoðarutanríkisráðherra, sem nú
er prófessor við Columbía-háskóla
staðhæfir að fyrirsjáanlegt sé að
Bandaríkjamenn og Kínverjar rek
ist á ef dæma eigi eftir stefnu
þeirri sem þeir fylgja nú, og
hljóti þetta að leiða til styrjaldar
á einn eða annan hátt. Hann tel
ur, að Kínverjar séu haldnir svo
miklum metnaði, að þeir kunni
að knýja fram styrkleikapróf. Hann
heldur því síður en svo uppi ein
liliða gagnrýni á stefnu Bandaríkja
stjórnar í Asíumálum.
Gavin hershöfðingi
||RIÐJA vitnið, sem nefndin
*kallaði fyrir, Maxvvell Tayior
hershöfðingi, fv. forseti banda-
ríska herráðsins og fv. sendiherra
í Suður-Vietnam, lýsti sig andvíg
an kyrrstöðustefnu Gavins, sem
bann taldi að auka myndi baráttu
hug Vietcong og draga úr baráttu
iþreki bandarísku hermannanna,
sem stæðu vel að vígi um þessar
mundir í viðureigninni við Viet
cong en yrðu að gegna niðurlægj
andi hlutvei'ki ef kyrrstöðustefn
unni yrði framfylgt og mundi það
iama baráttuþrek þeirra. Hann
taldi ósennilegt, að Kínverjar
drægjust inn í deiluna, jafnvel
þótt 600.000 bandarískir hermenn
yrðu sendir til Suður-Vietnam,
enda ættu þeir við efnahagsörðug ■
leika að stríða og vegna deilunn
ar við Rússa gætu þeir ekki veikt
varnir landsins.
Taylor hershöfðingi reyndi í
framburði sínum að eyða þeim
ugg„ sem bæði Kennan og Gavin
eru haldnir, að stefna sú, sem nú
er f.vlgt, kunni að verða til þess,
að Bandaríkin dragist inn í víð
tæka og kostnaðarsama iandsstyrj
öld á meginlandi Asíu. Einn
þeirra, sem lengi hafa varað ein
dregið við þessum möguleikum, er
fréttaskýrandinn Walter Lipp
mann, sem telur að Johnson for
seti hafi orðið að láta í minni
pokann fyrir Ky marskálki, for
sætisráðhertra Suður-Vietnam, á
Honolulu-ráðstefnunni fyrir
skemmstu.
Lippmann telur að svo virðist
sem bandaríska stjórnin leggi ekki
eins mikla áherzlu á möguleikana
á samningaviðræðum og áður. í
þess stað hafi stjórnin rígbundið
sig við þau sjónarmið, að sigra beri
hersveitir fjandmannanna og end
urreisa byggðir landsins um leið og
hersveitir Vietcong eru hraktar
þaðan.
ÍKVÖRÐUNINA um endurupp
Mtöku loftárásanna og hinn yf
irlýsta stuðning við Ky-stjórnina
á ráðstefnunni í Honolulu má því
ef til vill túlka sem svo, að afstaða
Bandaríkjastjórnar sé rígbundin.
Engin ástæða er til að ætla, að
Johnson stjórnin fari út í öfgar
og að stóraukinn vígbúnaður sé'
á næsta leiti. En stefna sú, sem nú
er fylgt, sýnir að viðhorfin hafa
UINS vegar er hann þeirrar
,fskoðunar að framtíðarstefna
Bandaríkjanna verði að vera sú að
hörfa frá Asíu og fá löndunum í
álfunni smám saman það verk
efni að viðhalda valdajafnvæginu
gagnvart Kína. Hann sér fyrir sér
Indland og Japan sem hornsteina
öryggiskerfis gegn Kinverjum í
framtíðinni. I-Ivað Suðaustur-Asíu
snertir leggur hann til að hún
verði gerð hiutlaus. Hann hugsar
sér, að Laos, Kambódía og Suður
Vietnam verði látin mynda hlut
laus svæði á landamærum Kína.
Um leið og hann gerir ráð fyrir
nauðsyn liernaðaraðstoðar við Suð
ur-Vietnam um langa framtíð svo
að þar megi halda velli hvetur
hann eindregið til þess, að gerðar
verði ákveðnar tilraunir til þess
að bæta sambúðina við Kínverja
Hilsman telur þátttöku Kínverja
í afvopnunarviðræðunum í Genf,
afnám hamla á ferðum bandarísk
ra borgara til Kína og endurskoð
un stefnunnar á sviði verzlunar við
Kína kunnj að hafa heillavænleg
áhrif.
Hilsman telur með öðrum orð
um ,að þörf sé á nýrri bandarískri
stefnu gagnvart Kína. Margir
Bandaríkjamenn eru honum sam
mála, en í svipinn eru þessar radd
ir ekki háværar.
FULBRIGHT
Herrabuxur
Nýkomnar dökkgráar herrabuxur úr
TERLANKA (hliðstætt terylene).
Mjög gott snið. — Vandað efni.
Margar stærðir.
Verð kr. 595,-
Miklatorgi — Lækjargötu 4.
Ryðfrí búsáhöld
MIKIÐ ÚRVAL — GÓÐAR VÖRUR —
GOTT VERÐ.
Smiöjubúðm
við Háteigsveg — Sími 21222.
Ársháfið
félags SnæfeSlinga og
HnappdæEinga í Reykjavík
verður haldin á Hótel Borg laugardaginn 27. febrúar
kl. 7.00 s.d. — Góð skemmtiatriði og dans.
Aðgöngumiðar verða afthentir að Hótel Borg isuðurdyr)
miðvikudag, firnmtudag o@ fö'studag frá kl. 5 — 7 s.d.
Borðpantanir á sama tíma.
Skemmtinefndin.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í sölu á 230 rúmdýnum úr lystadún,
gúmfrauði eða hliðstæðum efnum, fyrir borgarsjúkra-
húsið í Fossvogi.
Úthoðsskilmálar eru aflhentir í skrifstofu vorri Vonar-
stræti u.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Skrifstofustúlkur óskast
Flugfélag íslands h.f. óskar að ráða stúlk-
ur til starfa á skrifstofum félagsins í Lækj-
argötu 2 í Reykjavík, strax eða á vori kom-
anda.
Hér er um sumarstörf að ræða, en fast-
ráðning kemur til greina að hausti. Nokk-
ur kunnátta í ensku og dönsku nauðsynleg,
einnig vélritunarkunnátta.
Umsóknareyðublöðum, er fást á skrifstof-
um vorum, sé skilað til starfsmannahalds
félagsins fyrir 1. marz n.k.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. febrúar 1966 §