Alþýðublaðið - 22.02.1966, Qupperneq 11
Haukar sigruðu KR
í I. deild 23:19
✓
Fram vann Armann auðveldlega
TVEIR leikir voru háðir í I.
deild íslandsmótsins í handknatt-
leik á sunnudag. Haukar sigruðu
KR í allspennandi leik með 23
mörkum gegn 19 og Fram hafði
yfirburði í lelknum við Ármann,
vann með 40 mörkum gegn 25.
Haukar — KR 23:19 (14:9)
Viðureign Hauka og KR var
skemmtil., sérstaklega í fyrri hálf
leik. KR-ingum gekk betur í upp-
hafi, Karl Jóhannsson var sérstak-
lega markheppinn. Um miðjan
hálfleikinn jöfnuðu Haukar 6:6 og
síðustu mínútur hálfleiksins, þegar
Haukar gættu sín betur á Karli,
tókst þeim að skapa sér fimm
marka forskot fyrir hlé, 14:9.
Síðari hálfleikur var jafnari,
Haukar breikkuðu að vísu bilið
fyrstu mínútur hálfleiksins, kom-
ust í 17:10. KR-ingar minnkuðu
aftur á móti bilið jafnt og þétt og
10 mínútum fyrir leikslok, var
munurinn aðeins 2 mörk 19:17.
Haukar voru harðari í lokin og
unnu verðskuldaðan sigur 23:19.
Lið Hauka er jafnt og skemmti
legt en beztir eru Matthías, Stef-
án Jónsson, Viðar og markvörður-
inn, Logi Kristjánsson, sem varði
ágætlega.
Karl Jóhannsson var langbezti
maður KR-liðsins og án hans er
KR ekki upp á marga fiska.
Dómari var Gestur Sigurgeirs-
son og dæmdi vel.
Frain — Ármann 40:25 (22:14)
Það var mikið markaregn í við-
ureign Fram og Ármanns, alls 65
mörk á 60 mínútum! Ármenningar
byrjuðu vel, skoruðu tvö fyrstu
Framhald á 14. síðu.
I gær lauk keppni í nor-
rænni tvíkeppni á HM í Osló.
Sigurvegari varð Georg
Thoma, V-Þýzkalandi 443,04,
þriðji Alois Kaelin, Sviss,
440,73. Enginn Norðurlanda-
búa var meðal sex beztu.
Að lokinni keppni í íjórum
greinum hafa Norðmenn hlot
ið 2 gull, Finnar 1, Sovét i,
V-Þýzkaland 1. Norðmehn
hafa einnig forystu l stiga-
k'eppninni með 23 stig, Finn-
land 19 og Sovét 17.
mMMMtMMMMMMHMmW
NORÐMENN SIGURSÆLIR
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í
norrænum skíðagreinum (göngu
og stökki) hélt áfram í Osló um
helgina. I blaðinu á sunnudag
skýrðum við frá úrslitum í 10
km. göngu kvenna, en á sunnudag
var keppt í 15 km. göngu kœrla
og skíðastökki, minni stökkbraut.
Einnig hófst keppni í tvíkeppni
(göngu og stökki).
Norðmenn voru sigursælir á
sunnudag, Gjermund Eggen varð
heimsmeistari í 15 km. göngu og
hafði forystu mestalla leiðina. Tími
hans var 47 min. 56,2 sek. Ole
Ellefsæter, Noregi varð annar á
48:11,3 klst. þriðji Odd Martin-
sen, Noregi, 48:11,7 klst. fjórði
Bjarne Andersson, Svíþjóð, 48:
22.8 klst. fimmti Kalevi Laurila,
Finnland, 48:23,8 klst. og sjötti
Eero Mantyranta, Finnlandi, 48:
29.8 klst. Fyrsti Rússinn var Ve-
Verkerk, Hollandi heims-
meistari í skautahlaupi
Gunnlaugur
16 mörk á sunnudag.
HOLLENDINGURINN Cees Verk-
erk varð heimsmeislari í skauta-
hlaupi 1966, en mótið var haldið
i Gautaborg um helgina. Verkerk
hlaut 182,770 stig og sigraði einn-
ig í þrem einstaklingsgreinum
mótsins. Annár varð landi hans
Ard Schenk með 183,498 stig, en
hann varð Evrópumeistari fyrir
noklcrum vikum. Þriðji varð Jonny
Nilsson, Svíþjóð, 184,733 stig,
fjórði Per Willy GiUtormsen, Nor-.
egi 184,990 stig, fimmti Svein
Erik Stiansen, Noregi, 185,295 stig.
og sjötti Edvard Matusevitsj, Sov-
étríkjunum, 185,427 stig.
Úrslit í einstökm greinum:
500 m.: Tom Gray, USA, 41,0 sek.
(vallarmct) Suzulci, Japan, 41,2
sek., Keller V-Þýskalandi 41,6 sek.
1500 m.: Cees Verkerk, Holl.
2:12,9 mín., Jonny Nilsson, Sví-
þjóð, 2.14,5 mín, Svein Erik Stian-
sen, Noregi 2:15,0 min.
1500 m.: Verkerk, Holl. 7:42,9
mín., Fred A. Maier, Noregi, 7:43,2
mín., Ard Schenk, Holl. 7:44,0
10.000 m.: Verkerk, Holl. 16:21,6
mín., Jonny Nilsson, Svíþjóð,
16:32,2 mín., Per Willy Guttorm-
sen, Noregi, 16:38,4 mín.
denin varð áttundi.
Hinn 22ja ára gamli Björn Wir-
kola varð heimsmeistari í skíðar
stökld hlaut alls 234,6 stig og
stökk 79,5 m. og 78,0 m. Dieter
Neuendorf, Au.-Þýzkalandi varð
annar, hlaut 230,8 stig og stökk
79.5 m. og 77,5 m. Þriðji var Paavo
Lukkariniemi, Finnlandi með 228,8
stig og stökk 77,5 m. Fjórði varð
Jiri Raska, Tékkóslóvakíu með
218.5 stig, fimmti Veit Kuehert,
Au.-Þýzkalandi og sjötti Kell Sjö-
berg, Svíþjóð, 212,1 stig.
Austur Berlín 21. 2. (NTB-Reuter.)
Jiirgen May setti heimsmet í
míluhlaupi innan húss á sunnu
dag, hljóp á 3:58,2 mín. Landi
hans S. Hermann átti gamla met
ið 3:58,6 mín.
Staðaní I. deild
Fram 4 4 0 0 8 117:91
Valur 4 3 0 1 6 105:94
FH 3 2 0 1 4 66:61
Haukar 4 2 0 2 4 84:93
KR 4 1 0 3 2 84:93
Ármann 5 0 0 5 0 112:143
í kvöld fara frain tveir leikir
í I. deild íslandsmótsins i hand
knattleik. Þá leika Haukar og Ár
mann og Valur og Fram. Báðir
leikirnir geta orðið skemmtilegir.
PÁLL EIRÍKSSON, FH
sex mörk i Prag
Dukla vann FH 23:16
í mjög góðum leik
FH og DUKLA PRAG léku síðari
leik sinn í Evrópubikarkeppninni
á sunnudag í Prag. Dukla sigraði
með 23 mörkum gegn 16 og það
kom ekki á óvart. Staðan í hléi var
12:6 fyrir Dukla.
í fréttum frá Prag segir, að leik
urinn hafi verið mjög góður af
beggja hálfu, hratt leikinn og
skemmtilegur. Tékkarnir áttu betri
skyttur og það gerði gæfumuninn.
Dómarinn í leiknum var Vojocic
frá Júgóslavíu.
FH er nú úr leik í Evrópukeppn
inni, en þrátt fyrir tapið gegn
Dukla, er ekki hægt að segja ann-
að en Hafnfirðingar hafi staðið
sig með ágætum. Tékkarnir eru
nú komnir í undanúrslit og dregið
verður um það í París í næstu
viku, hvaða lið þeir leika við
næst. Áhorfendur að leiknum $.
sunnudag voru um 1000.
Mörk FH skoruðu Páll Eiríksson
6, Geir Hallsteinsson, Birgir
Bjömsson og Guðlaugur Gíslason
2 hver, Einar Sigurðsson, Þoi'-
valdur Pálsson, Örn Hallsteinssoa
og Auðunn Óskarsson 1 hver.
Mörk Dukla skoruðu Razek 6,
Benes 5, Trojan og Duda 3 hvor,
Konekkly og Mares 2 hvor.
>
Bendix hraðhreinsun - Bendix hraðhreinsun
Höfum opnað FATAHREINSUN AÐ STARMÝRI 2 með Bendix hraðhreinsunarvélum.
Hreinsum 4 kg. af fatnaði fyrir 210 kr.
30 kr. fyrir hvert kíló að 4 kílóum. — 20 kr. fyrir hvert kíló þar yfir.
Algjörlega lyktarlaust
BENDIX hraðhreinsun
Starmýri 2. .
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. febrúar 196b ÍS,