Alþýðublaðið - 23.03.1966, Qupperneq 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. marz 1966 3_.
Færeyingar landa
síld á Eskifirði
Eskifirði. — MB-GO.
FÆREYSKA skipið Goðanes, |
sem er 400 tonn að stærð, kom
í nótt af síldarmiðunum við Fær-
eyjar með 2300 tunnur af síld, sem
fara í bræðslu í verksmiðjunni
hér. Verksmiðjan fékk leyfi til
að leigja færeysk skip til síldveiða
til næstu mánaðamóta.
Sk'ipstjórinn, sem héiti’r Ey-
steinn Dalgaard,- segir að mikil
síld sé um 40 mílur suðvébtuí af
eyjunum, en veður hefur verið
vont að undanförnu og ekki hægt
að athafna sig við veiðarnar. Jón
Kjartansson frá Eskifirði er á þess
um slóðum, en hefur ekki fengið
síld ennþá.
ísborgin er hér að lesta efni í
nýju síldarverksmiðjuna, en fram
kvæmdir við hana ganga vel. Þá
var Litlafellið væntanlegt í gær-
kvölði til að taka 300 tonn af lýsi
og er þá öll framteiðsla síðasta árs
farin frá Eskifirði.
Tvær myndir eftir Sölva
Heigason boðnar upp
SÆMUNDUR TÓMASSON,
Spítalastíg 3, sem var formaður
á einum teinæringnum frá
Grindavík, sem bjargað var í
þessu óveðri, hefur sent Slysa-
varnafélagi íslands kr. 2.000.00,
að gjöf til að minnast þessa at-
burðar og í minningu og þakklæt-
isskyni við Guðbjart Ólafsson
fyrrverandi forseta Slysavarnafé-
lagsins, sem bjargaði 38 sjómönn-
um frá Grindavík þennan dag.
Sæmundur hefur iðulega minnzt
þessa atburðar með fjárgjöfum til
Slysavarnafélagsins á undan-
gengnum árum. í bréfi sem hann
lét fylgja gjöfinni og dagsett er
,,í dag hefði Guðbjartur Ólafs-
son orðið 77 ára. Tveimur dögum
eftir afmælisdaginn hans, er hann
21. þ.m. segir liann m. a.:
varð 27 ára, en við erum jafn-
aldrar, þá bar fundum okkar fyrst
saman. Þá var hann skipstjóri á
Rutter „Ester” frá Reykjavík, en
ég var formaður á tíu manna fari
frá Grindavík. Fundum okkar bar
fyrst saman 24. marz 1916 klukk-
an 5 síðdegis þrjár sjómílur suð-
austur af Reykjanesi í ofviðri með
sjódrifi, byl og hörkufrosti í á-
landsvindi, ég var sá þriðji í röð-
inni, fjórða skipið kom strax á
eftir mér.
Við vorum 38 menn úr Grinda-
vík, sem þá leituðum til hans í
vanda okkar. Svo giftusamlega
tókst til hjá Guðbjarti, og hinum
ágætu mönnum hans, við þær svo
mjög erfiðu aðstæður, að allir
mennirnir komust um borð svo
ekkert minnsta mein varð að, þó
voru þarna menn á öllum aldrl frá
16—43 ára.
Við dvöldum svo á Ester í rétta
þrjá sólarhringa vegna veðurs. —
Loks var okkur skilað til Grinda-
víkur án þess að nokkuð yrði að,
allir frískir og heilir á lífi og lim-
um við heimkomuna. Það var dá-
samlegt og mikið björgunarafrek,
við þær mjög svo erfiðu aðstæður.;
Við þessar aðstæður hófust kynni
okkar jafnaldranna sem varð að'
góðri vináttu meðan báðir lifðu.
Að endingu vil ég svo þakka:
Slysavarnafélaginu fyrir mikil óg
gæfurík störf á liðnum árum óg
óska því allra heilla og þlessunar'
um alla framtíð.” *
Stjórn Slysavarnafélags íslands'»
sendir þessum aldna sjógarpi sín- j
ar allra beztu þakklætiskveðjur'
með þeim óskum að ævikvöldiðl
verði hönum blítt og fagurt. í
Ein af myndunum eftir Kjarval, Stapafell. Mynd in er máluð með vatnslitum og tússi á pappír.
Reykjavík----EG.
— Meirihlnti allsherjamefndar
neðri deildar mælir með þvi, að
frumvarpið um hægri handar akst
ur verði samþykkt óbreytt, sagrffi
Birgir Finnsson (A) er hann hafði
framsögu fyrir meirihlutann við
aðra nmræðu málsins í gær.
Birgir reifgð; helztu efnisatriði
málsins og sagði, að því lengur
sem þessi breyting væri dregin
því dýrári mundi hún verða okkur
og sá skattur, sem leggja ætti á
bifreiðaeigendur til að standa
:straum af kostnaði gæti vart kall
azt mikill eða þungbær.
Skúli Guðmundsson (F) talaði
af hálfu minnihluta nefndarinnar
sem leggur til að ákvæðin um
skatt til að stnnda straum af
framkvæmdinni verði felld niður
og styðii annars málið. Einn nefnd
ar manna. Óskar Leví (S) var fjar
HOTEL SAGA
EKKISELD
Á SÍÐASTA Búnaðarþingi, sem
lauk 18. þessa mánaðar bar einn
af þingfulltrúum upp þá tillögu,
að samtök bænda seldu Hótel
Sögu.
Alþýðublaðinu hafa borizt yfir-
lýsingar frá stjórn Stéttarsam-
bands bænda og stjórn Búnaðarfé-
lags íslands vegna þessarar til-
lögu Búnaðarþingsfulltrúans. Þar
sem báðar yfirlýsingarnar eru svo
samhljóða verður látið duga að
birta aðra þeirra, sem er svohljóff-
andi:
„Stjórn • Búnaðarfélags fslands
leyfir sér hér með, að gefnu til-
efni, að lýsa yfir því, að tillaga
sú, sem borin var fram af einum
búnaðarþingsfulltrúa á síðasta
Búnaðarþingi, er lauk 18. þ. m. um
sölu á Hótel Sögu, var flutt án
Framhald á 15. síffu
Stór fjárveiting
vegna Vietnam
WASHINGTON, 22. marz (NTB
Reuter). — Öldungadeild Banda
ríkjaþings samþykkti í dag meff
92 atkvæffum gegu tveimur 94
milljarffa dollara aukafjárveit-
ingu vegna Vietnamstríffsins.
Fénu verffur aff mestu leyti var
iff til aff fjölga í herliði Banda
ríkjamanna í Suffur-Vietnam, út
vega fleiri vopn og reisa fleiri
herstöffvar.
Tæpur fjórðungur fjárveiting
arinnar er hins vegar efnahags
aðstoð, aðallega við Suður-Viet
nam en einnig lönd S Rómönsku
Framhald á 14. síffu
yrði samþykkt.
Aftakaveður
á Akureyrí
Akureyri. — GS.
AFTAKAVEÐUR skall á hér
á Akureyri um þrjú leytið í dag.
og mestan hluta dagsins hefur
verið iðulaus stórhríð og varla
séð út úr augum. Lögregla varð
að fylgja börnum heim úr skólum
og færð á götum í bænum var
orðin mjög slæm, því mikið hafði
skafið í traðir. Hingað inn flúði
einn>bátur, Stígandi, frá Ólafsfirði
og einnig kom Björgvin frá Dalvík
hingað vegna veðurofsa.
Það slys varð í dag í hinni nýju
kjötmiðstöð, sem KEA er að láta
byggja, að planki féll i höfuð
manni, sem þar var að vinna. Var
maðurinn fluttur á sjúkrahús, en
meiðsli hans voru ókunn.
Reykjavík — GO.
Meðal mynda á listaverka
uppboði Sigurðar Benediktsson
ar, sem haldið verður á Hótel
Sögu í dag eru tvær myndir eft
ir Sölva Helgason. Á annarri
þeirra eru tvær sjálfsmyndir
og á hinni eru stafir og flúr. Á
bakhlíð beggja myndanna eru
ritsmíðar með hendi Sölva.
Alls verða boðin upp um 50
listaverk, þar af 12 eftir Kjar
val. Meðal þeirra er mjög
stór mynd af Heklu, máluð árið
1947 — 1965. Myndin er 165x
276 sm. að stærð. Listamaður
inn kallar hana heyþurrk eftir
Heklugos.
Ein vatnslitamynd eftir Ás
grím Jónsson verður á uppboð
inu^ og tvær olíumyndir eftir
Þórarin B. Þorláksson Þá
verður boðin upp stór sjávar
mynd eftir Gunnlaug Scheving.
Er hún 200 x 260 cm. að stærð
og nefnist í vondum sjó.
Alls verða boðnar upp mynd
ir eftir 26 listamenn. Fyrir ut
an þá sem fyrr eru nefndir
eru meðal þeirra Jón Helga
son biskup, Magnús Jónsson
prófessor, Sverrir Haraldsson
Jón Þorleifsson. Gunnlaugur
Blöndal og Kristín Jónsdóttir.
Myndimar eru til sýnis í dag
til kl. 4 síðdegis, en uppboðið
hefst kl. 5 .
eMMHHHUMHHMMHMWMtHWMMIMtllMMWMIMWWMIHHMMMMMMMHHMMHHV.
BJÖRGUNAR FJÖGURRA SKIPSHAFNA i
í GRINDAVÍKURSJÓ MINNZT Á MORGUN