Alþýðublaðið - 26.03.1966, Page 2

Alþýðublaðið - 26.03.1966, Page 2
lieimsfréttir siácssfiiána nétf BONN: Vestur-Þýzka stjórnin hóf mikla friðarsókn í gœr eg skýrði frá nýrri friðaráætlun í orðsendingum til flestra ríkja Sieims. Bonnstjórnin leggur til, að kjarnorkuvopnum í Evrópu verði fækkað stig af stigi og Bonnstjórnin og Austur-Evrópu- likin geri með sér samninga er kveði á um að ríkin beiti ekki vopnavaldi. LONDON: Brezka stjórnin fagnaði í gær friðaráætlun vest- lUfJþýzku stjórnarinnar og kvaðst vona að liún mundi varpa Ijósi á viðhorf Vestur-íÞjóðverja. Athygli vekur, að Vestur-Þjóðverjar cru fúsir til tilslakana, enda igeti þær stuðlað að sameiningu I’ýzkalands. VfirJýsingarnar um, að Múnchensamningurinn sé iúr gildi falUn.ii og að Bonnstjórnin muni eklci framleiða kjarn orkuvopn vekja mikla athygli. MOSKVU: Afvopnunarmálaráðherra Breta, Chalfont lávarð xir, ræddi í gær við Andrei Gromyko, utanríkisráðherra Rússa, um aiiar hliðar afvopnunarmálsins, útbreiðslu kjarnorkuvopna, neð' anjarðartilraunir og almenna og algera afvopnun. Góðar heim- íldir herma, að Chalfont hafi ekki orðið var við neina hreyt- ingu á viðhorfi Rússa til afvopnunarmálsins. Vietnam bar einn ig á góma. PA'RÍS: De Gaulle forseti hét frú Indira Gandhi forsætis- n'áðherra því í gær, að Frakkar mundu aðstoða Indverja við 'uppbyggingu jðnaðar landsins. Frú Gandlii er komin tii Parísar ’r þriggja daga heimsókn ag heldur áfram til Washington á morg i;n. De Gaulle og frú Gandlii ræddu einnig Vietnamdeiluna, og fcomust að raun um að þau höfðu sömu skoðun á því máli. Þau voru sammála um, að Bandaríkjamenn væru orðnir svo virkir Iþátttakendur í stríðinu í Víetnam að allar hernaðaraðgerðir (peirra hefðu áhrif á innanríkismál í Bandaríkjunum. WASHINGTON: Dean Rusk utanríkisráðherra lét í Ijós von um það í gær, aö undirritaður yrði samningur um bann iað útbrciðslu kjarnorkuvopna, en áfram ætti að miða í þvi —«aáli ef óviðkomandi málum væri ekki blandaö inn í það. Talið er, að með þessu hafi Rusk átt við andstöðu Rússa gegn til- •«jgunum um kjarnorkuvarnir NATO. Rusk lét í Ijós ánægju ftína með vestur-þýzku friðaráætlunina og kvatfst telja a» öll Itjarnorkuveldin, að Kínverjum meðtöldum, væru sammála um ►íauðsjn þess að stöðva útbreiðslu kjarnorkuvopna. Um sam- dkiptin við Kína sagði hann, að Kínverjar virtust ekki hafa áhuga á því, að þau hölnuðu. HELSINKI: Alexei Kosygin, forsætisráðlierra Rússa, fer í öpinbera heimsókn til Finnlands í júní. Hann fer í opinbera Öeimsókn til Svíþjóðar 4. júlí. BERLÍN: AusturJÞýzkur dómstóll dæmdi í gær SS-mann ikin dr. Horsc Ftscher til dauða. Hann er ákærður fyrir að hafa eent a.m.k. 70.000 manns til igasklefanna í Auschwitz. MOSKiVQ: Japanski kommúnistaflokkurinn skýrði frá því li gær, að hann mundi ekki senda fulltrúa á sovézka flokksþing iff í Moskvu í næstu viku. Búizt er við að 86 kommúnistaflokk ar sendi fulltrúa á ráðstefnuna. ki vantraust fyr- ir að by Benedikt Gröndal í útvarpsumræðunum í gærkveldi: VIÐ getum ekki lýst vantrausti á ríkisstjórnina a} því að hún jramkvæmir oj mikið af draumum þjóöarimiar, sagði Benedikt Grön- dal í lokaræðu útvarpsumræðn- anna um miðnætti l nótt. Hann ræddi aðallega um Biírfellsvirkj- un og átbræðslu og lýsti afstöðu Aiþýðuflokksins til þeirra mála. Auðvitað tökum við á okkur margvíslega áhættu, sagði Bene- dikt. Hjá því verður aldrei kom- izt. Auðvitað rísa margvísleg vanda mál, en þau eru til að leysa þau. Hvort tveggja eru aukaatriði mið- að við kjarna málsins: Að beizla stórfljótin á næstu áratugum og nota orkuna ekki aðeins tii ál- bræðslu lieldur í margvíslega aðra framleiðslu. Kjartan sýnir IKJARTAN GUÐJÓNSSON, listmálari opnar í dag sýn- ingu í Listamannaskálanum. Sýnir hann þar olíumálverk, krítarmyndir og teikningar. ■Nokkuð langt er nú liðið siðan Kjartan hélt síðast sýn- ingu. Hefur túlkunarmáti hans breyst mikið síðan hann sýndi •síðast og er þessi sýning hin forvitnilegasta. A sýningunni eru 34 olíu málverk og um 30 krítarmynd ir og teikningar. Teikningarn ar eru allar við efni úr Har- alds sögu harðráða, eða Morð hf. eins og listamaðurinn kall ar söguna. Sýning Kjartans verður op in fram að páskum. Myndirn ar eru allar til sölu. BENEDIKT GRONDAL Benedikt Gröndal þótti það stór- brotið, að nú á tímum skyldi stjórnarandstaða finna það helzt til gagnrýni á ríkisstjórn, að hún ætli að gera of mikið, byggja landið of ört. Ekki getur sú ríkis- stjórn verið dáðlaus eða aftur- haidssöm, sem verður fyrir slíkri gagnrýni. Við megum ekki gleyma því, hve þjóðin stækkar ört, sagði Benedikt ennfremur. Þegar raf- orka byrjar að renna frá Þjórsá og fyrsti málmurinn verður bræddur við Straumsvík, verða í- búar íslands um 210.000 Þegar síðari áfanga virkjunarinnar lýkur og siðari hluti verksmiðjunnar er tilbúinn, verða íbúar landsins um 230.000. Bað Benedikt menn að hugsa um þetta og gera sér grein fyrir, hve margt þyrfti að gera í Iand- inu til að tryggja afkomu þessa fólks, en liér sé ekki talað um langa framtíð, heldur næstu 10 ár. Við þurfum meiri tækni, — meiri framleiðni, meiri fjölbreytni í atvinnuvegi okkar næstu ár. Þess vegna er ástæða til að segja við íslendinga það, sem sýslu- Framhald á 15. síðu. Kunnur tékkneskur píanó- leikari heldur tónleika hér TIL Islands er kominn á vegum Péturs Péturssonar — Skrifstofu skemmtikrafta — tékkneskur pí- anóleikari að nafni Radoslav Kva- pil. Mun hann halda tónleika í Austurbæjarbíói í kvöld kl. 7 og leikur þá eingöngu verk eftir tékkneska höfunda, m. a. Dvorak, Vorisek, Janacek og Smetana. — liingað kom Kvapil úr hljómleika ferð um Norðurlönd. Radoslav Kvapil er fæddur í borginni Brno í Tékkóslóvakíu ár- ið 1934. Hann hóf nám í píanó- leik ungur að árum og var kenn- ari hans allt frá bernsku dr. L. Kunders, sem var nemandi hins • kunna tónskálds og píanóleikara Janaceks. Lauk Kvapil prófi undir : handleiðslu dr. Kunders frá Jana- cek Academy of Music í Brno (þ. e. tóniistarháskólanum þar). Allt frá því Kvapil fór fyrst að koma fram opinberlega hefur liann lagt áherzlu á flutning lítt kunnra eða áður óþekktra verka eftir Dvorak og Janacek, þótt hann hafi jafnframt leikið verk annarra meistara, eldri sem yngri. Árið 1959 vann hann fyrstu verðlaun og hlaut mikið lof á Janacek tón- listarsamkeppninnl í Brno. Sið- ustu tvö ár hefur Kvapil verið prófessor við Konversatoríið í Prag. Þess .má geta að árið 1959 stofn- aði 'Radoslav Kvapil duo ásamt ýíni-þínúm Stanislav Apolin, celló- leikara, sem einnig hafði stundað tónlistarnám í Brno og þegar get- ið sér gott orð sem einleikari. Vöktu fyrstu hljómleikar þeirra þegar mikla athygli og eftir um það bil sex mánaða samstarf hlutu þeir verðlaun á alþjóðlegri tónlistarsamkeppni í Genf. Síðan hafa þeir haldið hljómleika víða um lönd og hlotið einróma lof gagm-ýnenda fyrir fágaðan sam- leik og fullkomna tækni. Þeir léku tii dæmis á tónlistarhátíðum sumartónlistarskólans í Dartington Framhald á 15. síðu ERINDI UM MÁVA NÆSTKOMANDI mánudag, 28. marz kl. 8,30 heldur Hið ísl. nátt- úrufræðifélag fræðslufund í 1. kennslustoíu Háskólans. Agnar Ingólfsson dýrafræðingur flytur erindi með litskuggamyndum: Um íslenzka máva og fæðuöflun þeirra. Agnar Ingólfsson hefur undan- farin ár lagt stund á rannsóknir á íslenzkum mávum, sambúð þeirra og fæðuöflun. Hann mun á vetri komanda verja doktors- ritgerð um þetta efni við háskól- ann í Ann Arbor í Bandaríkjun- um. í erindinu mun hann fjalla nokkuð um ýmsar niðurstöður rannsókna sinna. 2 26. marz 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.