Alþýðublaðið - 26.03.1966, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 26.03.1966, Blaðsíða 11
Haukar komu á óvart, sigruðu Fram 20 :18 Valsmerm unnir KR 25:21 - en leikurinn var lélegur ÞAU ÓVÆNTU úrslit urðu í .1 deild Islandsmótsins í handknatt- leik í fyrrakvöld, að Haukar sigr- uðu Reykjavíkurmeistara Fram með 20 mörkum gegn 18 í mjög skemmtilegum og spennandi leik. Var sigur Hauka fyllilega verð- skuldaður, þeir höfðu forystuna viest allan leikinn og voru greini lega sterkari aðilinn. Valur sigr- aði KR með 25 mörkum gegn 21. Er nú augljóst, að fallbarátt- an stendur milli KR og Ármanns en Haukar og Valur eru úr fall- hættu. ★ Haukar - Fram 20:18 (10:9). Asgeir Þorsteinsson skoraði fyrsta mark Hauka í leiknum viS Fram og eftir 15 mínútur var stað- an 4 gegn 1 fyrir Hafnarfjarðar- liðið. Þegar tæpar tíu mínútur voru fram að leikhléi var mun- FH 7 6 0 1 156:140 12 Fram 8 6 0 2 211:172 12 Valur 8 4 0 4 190:202 8 Haukar 9 4 0 5 202:203 8 Árm. 7 2 0 5 163:187 4 KR 9 2 0 7 186:204 • 4 urinn fimm mörk, Haukum í vil — 9 gegn 4. Fram náði nú allgóðum leik- kafla, Þorsteinn Björnsson varði m. a. vítakast og Reykjavíkur- meistararnir minnka bilið í eitt, þegar dómarinn flautaði fyrri hálf leik af — 10:9. Síðari hálfleikur var geysilega spennandi. Stefán Jónsson, hinn snjalli línuspilari Hauka skoraði fyrsta mark eftir hlé, en Fram tókst þó fljótlega að jafna metin — 12 gegn 12. Haukar náðu þó aftur tveggja marka forskoti 15 gegn 13 en 8 mín. fýrir leikslok iafnaði Fram og Gunnlaugur færði Fram forystu úr vítakasti, 17:16. Var nú almennt búizt við, að Fram myndi tryggja sér sigurinn, en það var öðru nær. Gunnlaugur sendi boltann til Ásgeirs vegna mistaka og hann jafnaði og Matt- hías bætti öðru marlci við. Sigurð- ur Einarsson jafnaði fyrir Fram og spenningurinn náði hámarki. “5+efán Jónsson átti síðasta orðið í l.eiknum og skoraði tvö siðustu mörkin og sigur Hauka, 20:18, var staðreynd. Lið Hauka sýndi ágætan leik. Sérstaklega er línuspil liðsins á- gætt. Stefán Jónsson vakti mikla athygli, en einnig áttu Mattias og Ásgeir góðan leik og Logi varði mjög vel. Hjá Fram voru Gunnlaugur og Þorsteinn beztir, en Guðjón var slappur, enda ekkert æft síðustu vikurnar. Dómari var Björn Kristjónsson. ★ Valur-KR 25:21 (13:17). Valsmenn byrjuðu leikinn vel og skoruðu þrjú fyrstu mörkin og síð- an sást 5-1 fyrir Val. Jón Breið- fjörð varði mjög vel í upphafi, en Hermann skoraði fjögur af fimm fyrstu mörkum fyrir Val. KR-ing- ar minnkuðu muninn í 2 mörk um tíma, en þegar nálgaðist hlé sýndu Valsmenn mjöig góðan leik og náðu sex marka forskoti,' 13:7. Síðari liálfleikur var jafnari, en sigur Vals var aldrei í verulegri hættu og sex mín. fyrir leikslok munaði aðeins þremur mörkum, 20 gegn 17. Valsmenn skoruðu þá nokkur mörk og tryggðu sigurinn. Leikur þessi var yfirleitt lélegur, en sigur Vals verðskuldaður yfir ósamstilltu og slöppu KR-Iiði, það vantaði neistann í KR-liðið. Dómari var Magnús Pétursson. Firmakeppni í badminton á Akranesi í dag FIRMAKEPPNI í badminton, sú fyrsta í röðinni, fer fram á Akra- nesi í dag og hefst kl. 15,30 í í- þróttahúsinu: Mikill áhugi er fyrir badminton á Akranesi og alls eru 20 fyrirtæki með í keppninni í dag. Skólamót í frjáls- íþróttum á morgun SKÓLAMÓTIÐ í frjálsum í- þróttum 1966 fer fram í íþrótta- húsi Háskólans á sunnudaginn. — Þátttaka er mjög góð í mótinu eða á 3. hundrað og mun aldrei hafa verið svo mikil. Mótið hefst kl. 2 á keppni sveina og stúlkna, en kl. 4 keppa drengir, unglingar og fullorðnir. í flokki sveina og stúlkna eru 70 keppend- ur í hvorum flokki, en á annað hundrað í hinum flokkunum þrem- ur. Benedikt Jakobsson, aðalforustu maður skólamótsins bað íþróttasíð- una að koma þeim óskum til í- þróttakennara nemendanna að þeir komi til mótsins og aðstoði við framkvæmd þess. Ásgeir Þorsteinsson skorar fyrir Hauka, Gunnlaugur og Þorsteinn eru til varnar. Kaupmannahafnarliðið SISU varð Danmerkurmeistari í körfuknattleik 1966. ÍR-ingur- inn Þorsteinn Hallgrímsson lék með liðinu í vetur, en hann dvelur ytra við verkfræðinám. í Ekstrabladet nýlega er skýrt frá því, að Þorsteinn sé bezti maður liðsins og án hans hefði SISU ekki orðið danskur meist ari. Myndin hér til hliðar birt- ist í blaðinu og segir í texta hennar m. a. að Hallgrímsson sér hér í fullkomnu, já næstum ótrúlega fullkomnu jafnvægi. Fingur hans snerti körfuna, en boltinn sé á leið niður eins og þroskaður ávöxtur. MtMHMMtHWMMMMtMMMtMWMWWIMHMMMHtUUUHt ALÞYÐUBLAÐIÐ - 26. marz 1966

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.