Alþýðublaðið - 13.04.1966, Page 6
GLUGGINN ____________
Jðck London stal ekki hug-
myndum - heldur keypti þær
Viljið þér fyliíjast með tizkunni? Ef svo er, þá verðið þér að vera
op-art frá toppi til táar. En jafnvel það er ekki nægilegt. Bíllinn
verður líka að fljóta með. Það þarf ekki að kosta svo mikið.
Bíllinn á myndinni hefur verið límdur inn í tízkuna með sjálflím
andi plastikböndum.
Sænskar húsmæður
eru eftirsóttar
'Kæri Jack Londön, skrifaði
Sinclair Lewis, það gladdi mig
mjög að fá tilkynninguna frá yð
ur, þar sem þér segist gjarnan
vilja líta á fleiri hugmyndir að
smáscgum. Hjálagt sendi ég yð
ur þykkan bunka, og vona, að
þér getið notað mikið af þeim.
— Kæri Sinclair Lewis, svar
aði Jack London, hugmyndir yð
ar bárust mér í gærkvöldi, og
ég hef nú þegar ákveðið að nota
níu þeirra, og sendi yður hér
með samkvæmt reikningi yðar
ávísun að upphæð 52,50 doll-
ara.
Sinclair Lewis var árið 1910
ungur og óþekktur rithöfundur
25 ára gamall, en Jack I,ondon,
sem pá var 34 ára, hafði þegar
aflað sér mikillar frægðar Bréfa
skipti þeirra eru nú í fyfsta
skipti gerð opinber, þar sem
þau oru notuð í úrval bréfa frá
Jack London, sem nýlega er
komiö út í New York. t>ar með
hefur Jack London verið sýkn-
aður af gamalli ákæru fyrirrit
stuld. !^|
CE>egar árið 1906 varð Jack
London opinberlega ásakaður
fyrir að vera „gróflega þjófótt-
ur“. Ákæran byggðist á því, að
saga hans „Before Adam“ væri
eftirlíking af sögunni „Story of
A'b“ eftir lítt þekktan og hæfi
leikasnauðari rithöfund, Stan-
ley Waterloo. Jack London svar
aði því til, að hann hefði sett
sinn „Adam“ fram sem „svar“
við „Ab“ Waterloos, af þvi sér
hefði fundizt hahn óvícindaleg-
ur. •
Árið 1931, fimmtán árum éft
ir að Jacfc London framdi sjálfs
morð, var því haldið fram í
bandarísku tímáriti, að hann
hefði ekki sjálfur skrifað allar
sögur sínar, heldur leigt til þess
annan mann, nefnilega Sinclair
Lewis. í mikilli sjálfsævisögu
Lewis greinir hins vegar sögu-
ritarinn, kunnur bókmenntafræð
ingur, frá því hvað þeim félög-
um raunverulega fór í milli.
— í guðs bænum, skrifaðj Jack
London, leggið á minnið hverjar
af hugmyndum yðar ég hef not-
að — svo að þér einn góðan veð
urdag farið ekki að vinna úr
þeim.
Sinclair Lewis
Jack London.
— Til þess að vera alveg ör-
uggur, svaraði Sinclair Lewis,
geri ég tvennt: ég eyðilegg upp
kastið að hugmyndinni, sem þér
hafið keypt, og færi það jafnt
framt á skrá. Og ég lít oft á
skrána.
'Með því að skrifa bókina „Be-
fore Adam“ sem „svar“ við fyr-
irliggjandi lakari skáldsögu, út
færði Jaek London hina gömlu
samvinnureglu, sem var i fullu
gildi í menningu vorri þangað
til um 1800. Yrkisefni, sem einu !
sinni hafði verið notað, var tal j
ið sameiginleg andleg eign mann ;
kynsins, sem öllum væri frjálst
að fást við. Þannig giátu sög-
ur, sem fjölluðu um athyglis-
vert efni, verið endursagðar aft
ur og aftur, þangað til að einr
hver þeirra náði endanlegu
farmi í hönidum raunverulegs
snillings.
'Sinclair Lewis átti fleiri hug
myndir en hann sjálfur hafði
not fyrir, og hann hafði einn-
ig þörf fyrir peninga, af því
að hann vildi gjarnan segja
lausu borgaralegu starfi sínu og
lifa eingöngu af ritstörfum sín-
um. Hér var því góður grund-
völlur að samvinnu tveggja and
ans manna, sem þjóðfélagið varð
að taka gott og gilt. Jack Lond
Ojn sfcinti við Sinclair Lewis
gegn staðgreiðslu.
Þegar hugmyndin að skáldsögu
hafði verið keypt, gat þá nokk
ur mótmælt því, að andlegur
eignarréttur hugmyndarinnar
væri hjá J,ack London?
Hann gat ekki notað allar hug
myndir Sinclair Lewis. Sumar
þeirra krö/ðust fleiri staðreynda
og smáatriða en hann nennti að
safna,. og; aðrar, - sfcrifar hann,
eiga ekki .við skapgerð mfna.
Þeirra á meðal eru „reglulegar
O'Henry hugmyndir“, tekur hann
Framhald á 15. sfðo.
Svíar hafa reiknað það út, að
þjóðfélagið hagnist svo milljörð-
Um skipt, ef húsmæðumar fara
aftur út í atvinnulífið, þegar
yngstú böril þeirra eru orðin sjö
ára gömul.
Því leggja þeir mikla áherzlu
á að veita konunum alla þá hjálp,
sem fært er talið til þess að þær
geti farið að vinna úti á nýjan
leik. Þess vegna er hjónum það
í sjálfsvald sett, hvort þau vilja
sér- eða sam-sköttun, og í athug-
un er að fella úr gildi lögin um
samsköttun hjóna.
Einnig gera þeir húsmæðrunum
það auðveldara að afla sér mennt-
unar — álveg nýrrar pða annarr-
ar en þær fengu áður en þær gift-
ust.
NÁMSKEIÐ FYRIR HÚS-
MÆÐUR.
Þeim er bæði gefinn kostur á
byrjunarnámskeiðum og svo nýj-
um sérnámskeiðum.
Byrjunarnámskeiðin vara í sex
vikur og þar fer m. a. fram
kennsla i kerfisbundinni vinnu,
iðnaðarhagfræði og vinnuvernd,
svo dæmi séu nefnd. Þrjár fyrstu
vikurnar fer kennslan fram í sér-
stökum bóknáms- og æfingaskól-
um, en síðustu þrjár vikurnar er
dvalið á vinnustöðum.
Hugmyndin er sú, að gefa kon-
unum kost á víðtækara atvinnu-
vali. Og þær fá fjárhagslegan
; stuðning á meðan á námskeiðinu
stendur, fjölskyldustyrk, eftir
stærð fjölskyldunnar, fríar ferð-
ir, vinnufatastyrk og visst grunn-
kaup. Þessi styrkur er skattfrjáls,
og hann geta einnig fengið efn-
aðar konur, þó ekki hómarks-
styrk.
Óski húsmæðurnar hins vegar
frekari menntunar, geta þær sótt
sérnámskeið fyrir fullorðna, sem
byrja vilja á einhverju nýju. Þau
eru líka fyrir karlmenn, sem orðn-
ir eru leiðir á starfi því, sem þeir
eru í. Þessi námskeið taka allt
Framhald á 15. síðu
£ 13. apríl 1966 - ALÞÝ0UBLAÐIO