Alþýðublaðið - 13.04.1966, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 13.04.1966, Blaðsíða 8
að 200 landskikum, og hefur ver- ið stefnt að því að flytja hinar 11 milljónir þeldökkra «4 nna, sem í Suður-Afríku búa, til þess- ara afm'örkuðu svæða, sem eru aðeins 13% af flatarmáli lands- ins. Að öðru leyti skuli landið vera algerlega á valdi hvítra manna. ★ SULTARLAUN Til þessa hefur þriðjungi allra þeldökkra íbúa Suður-Afríku ver ið komið fyrir á hinum afmörkuðu svæðum, en þar er aðeins 32% alls jarðnæðis ræktanlegt. Land- búnaðurinn er eini atvinnuvegur inn, sem hægt er að stunda á þessum |landskikum. Þar er eng- inn iðnúður og fjárfestingar rík- isins nona aðeins 120 milljónum króna ájári. Hins vegar nema fjár festinear ríkisins á vfirráðasvæð- um hvífra manna 750 milljónum króna á ári. Árslaón meðalfjölskvldu á svæð um blökkumanna nema 4800 krón- um samkvæmt opinberum, suður- afrískum skýrslum. Þetta er 2.040 krónum minna en áætlað er að meðalfiölskylda þurfi til að flevta fram lífinu. Og auk þess. fæst um það bil helmingur tekna meðal- Svörtu blettirnir á kortinu sýna þau svæði, sem hvíti minni- hlutinn hefur úthlutað svarta meirihlutanum. Þetta eru einhver fá- tækustu landbúnaðarsvæði Suður-Afríku. fjölskyldu með því, að einn eða fleiri fjölskyldumeðlimir yfirgefa fjölskylduna og fá sér atvinnu á yfirráðasvæði hvítu íbúanna. Verkamenn frá svæðum blökku manna og þeir tveir þriðju hlutar innfæddu íbúanna, sem ekki rúm ast fyrir á hinum ómerkilegu land kikum, sem stjórnin úthlutar blökkumönnum, búa við sífellda kúgun lögreglunnar á yfirráða- svæði hvítu íbúanna. ★ FRÁSÖGN SJÓNARVOTTS Hér fer á eftir lýsing frá suður- afrísku fangelsi. Fangelsin eru sí fellt fyllt með innfæddum mönn um. Á einu ári voru 384 þús. inn- fæddir dæmdir fyrir það eitt að brjóta „vegabréfslögin“ svoköll- uðu. Frásögnin er eftir hvítan andstæðing st.iórnarinnar, sem fangelsaður var af pólitískum á- stæðum: — Föstudaginn 15. júní 1962 kom ég inn í skrifstofuna í North End-fangelsi i Port Elisabeth. Ég sá lítinn. horaðan bú~kmann standa holdvotan í stuttbuxum og rauðri skyrtu. Hann skalf af kulda. Caasens fangavörður skipaði hon um að fá sér kalt steypibað. Ég spurðí einn af afrísku föngunum hvað komið hefði fyrir. Hann sagði að þetta væri í fjórða sinn sem fangavörðurinn skipaði manninum að fá sér steypibað utandyra í kuldanum, án þess að fá honum nokkuð til að þurrka sér með, og létj hann síðan standa hríðskjálf- andi í votum fötunum í skrifstof- unni. Að stundarfjórðungi liðn- um stóð Claasens á fætur. lamdi hann af alefli í magann svo að hann hneig niður. Hann þreif hann á fætur og barði hann hvað eftir annað í andlitið. Ann ar fangavörður sat við skrifborð og hló. Á gólfinu stóð fata með skítugu vatni, sem gólfið hafði verið þvegið með. Claaessens hélt í fasturna á litla manninum og dýfði höfðinu niður í fötuna. Síð an dró hann hann upp aftur. setti hann á stól og lét sem hann ætl- aði að yfirheyra hann Hinir réttlausu í Suður-Afríku verða að þola pyntingar og morð. Ef skotvopn finnst í fórum svert ingja er honum hegnt með lífláti. Hvítir menn mega fá sér öll vopn, sem þá langar í. Aðskilnaður kynþáttanna hefst með börnun um. Bekkir eru aðeins fyrir hvíta. KASTLJÓS HEILÞJOD „EXNKAGATA - AÐGANGUIt BANNAÐUR," stóð á skilti, sem Barnard bóndi hafði komið fyrir á veginum sem lá framhjá bæ hans. Simon Thakisi lét sem hann sæi ekki skiltið og gekk eftir götunni. En honum hefndist grimmilega fyrir þessa yfirsjón sína. Barnard bóndi sá til hans, skipaði honum að nema staðar, réðist á hann með höggum og barsmíðum svo að hann féll í göt !una og sparkaði í hann hvað eft ir annað unz hann gaf upp önd ina. Síðan fleygði Barnhard bóndi Jíkinu í Virginíufljót. Simon Tha kisi var fjórtán ára gamall. Virginíufljót rennur gegnum !Óraníuhérað í Suður-Afríku. Á skiltinu við götu Barnards bónda stóð sem sé, að einungis þeldökk um mönnum væri bannaður að- gangur. Simon Thakisi var þel- dökkur. Ýmsir mundu segja, að Barn- ard bóndi væri geðveikur. En (hann er eins andlega heilbrigður og nágrannar hans og landar, hin ir hvítu íbúar Suður-Afríku. Þetta geta menn séð svart á hvítu í réttarbók. Barnard bóndi var nefnilega leiddur fyrir rétt, gefið að sök að hafa ráðið Simon Thakisi bana, og hann var dæmdur. Dómur landa hans var 3.000 króna sekt. ★ GEÐVEIKI? Þannig er mannslífið metið und ir apartheid-kerfinu, sem hvítir menn í Suður-Afríku hafa komið á. Það er engu líkara en að heil þjóð sé vitfirrt. Stundum brýzt geðveiki fram þegar sjúklingurinn kiknar undir ytra álagi. Dæmi þessa má finna í sögunni. Á árunum eftir heims styrjöldina fyrri kiknuðu Þjóðverj ar undir hinni ægilegu neyð, sem fylgdi í kjölfar hins mikla hildar- leiks. Afleiðingin varð sú, að vit- firringurinn Hitler komst til valda og skipulagðar ofsóknir voru hafnar gegn Gyðingum. Franska stjórnarbyltingin, sem var upphafið á sigurgöngu lýðræðis- íns í Evrópu, brauzt út eftir margra ára kúgun aðal= og konungs svo að hún breyttist í gengdarlaus morð. I .Álagið sem hinir hvítu íbúar S-Afríku eru að kikna undir á þinnig rót sína að rekja til bvlt- ingar, bvltingarinnar í Afríku. Jafnréttishugsiónin hefur ger- breytt Afríkukortinu. Gamlar ný Aðskilnaður kynþáttanna hefst með börnunum. Blökkumennirnir eru bak við gaddavír. lendur urðu að nýjum ríkjum, næstum því í hverjum mánuði. En í Suður-Afríku bjuggu 3 milljónir hvítra manna, sem höfðu byggt tilveru sína á því að arð- ræna 11 milljónir þeldökkra íbúa landsins og gert það svo lengi að þeir gátu ekki hugcað sér að flytjast til ættlandsins — því að Suður-Afríka var þeirra eina heim ili. Þörfin á að arðræna svertingj ana hafði aukizt hröðum skref- um: Iðnaðurinn blómgaðist, en á- stæðan til þess var sú að hann gat fengið vinnuafl, sem greitt var sultarkaup. Kröfurnar um frelsi og jafnrétti mættu gífurlegri andspyrnu. Ný ,,herraþjóð“ varð til. Apartheid — aðskilnaður kynþáttanna — varð kjörorðið. Reynt hefur verið að hrinda þes'ari stefnu í fram- kvæmd allar götur síðan 1950. Og neyðin í Suður-Afríku hefur sí- fellt aukizt. í fljótu bragðí virðist apartheid vera sakleysislegt hugtak. Því er haldið fram, að þar sem menning hvítra manna og svartra sé svo gerólík geti þeir ekki lifað hlið við hlið og þess vegna verði kyn þættirnir að lifa á aðskildum svæðum. En hvemig er þetta í reynd? Svertingjum hefur verið úthlut 3 13. apríl 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.