Alþýðublaðið - 13.04.1966, Síða 9
★ ÞVINGANIR
En hinar efnahagslegu þvingan
ir, sem blökkumenn eru beittir,
eru litlu skárri. Suður-Afríka er
auðugt ríki á afrískan mælikvarða.
Ilún er auðugasta ríki Afríku.
En 40 af hverjum 100 innfædd-
um ungbörnum deyja. í bæjunum
deyja 20 af hverjum 100 innfædd
um ungbörnum. Af nýfæddum
börnum hvítu ibúanna deyja að-
eins 2,7 í landinu öllu.
Hvítur námuverkamaður hefur
144 þús króna árslaun að meðal-
tali. Námuverkamaður, sem vinn
ur sömu vinnu en hefur annan
litarhátt, fær 7,300 krónur í árs-
laun. Og hann hefur góð laun mið
að við aðstæður. Meííalárslaun
blökkumanna eru 4,800 krónur.
Afleiðingin er sú, að bömin eru
vannærð og deyja. Á hverju ári
koma upp 60 þús. berklatilfelli.
Hvítur Suður-Afríkumaður getur
gert ráð fyrir því eins og íbúar
Vestur-Évrópu, að hann nái sjö-
tugsaldri. Þeldökkur Suður-Afríku
maður hefur lifað lengur en flest
ir ef hann nær fertug=aldri.
Suður-Afríkumenn svöruðú kröf
unum um jafnrétti með ógnar
stjórn. Nú er hin stóra spurning
sú, hvernig innfæddir íbúar lands
ins bregðast við því mótlæti, sem
þeir eiga við að stríða.
Sem stendur eru hvítu menn-
irnir að drepa blökkumennina
hægt en bítandi. Munu blökku
mennirnir drepa hvítu mennina
fljótt og örugglega þegar dagur
reikningsskilanna rennur upp?
SÖNGUR STÚÐ-
ENTAKÓRSINS
S'túdentakórinn hélt samsöng í
Gamla bíói á skírdag við hinar
ágætustu undirtektir, sem voru aö
langmestu leyti verðskuldaðar.
Kórinn hefur ágætu mannvali á
að skipa, þó að hann þurfi sjálf
sagt heldur lengri tíma til að
„syngja sig saman'^ þ.e.a.s. sum
ar raddirnar, eins og t.d. tenór-
inn, eru enn dálítið hrjúfar.
Efnisskráin var að langmestu
leyti gömul stúdentalög og nor
ræn lög, sem mikið hafa verið
sungin af stúdentakórum á Norð
ulrlöndum. Skilaðii kórinn efnis
skránni í heild vel, en þó bezt
þeim lögum, sem liann hefur sung
ið lengst, eins og t.d. stúdenta
lagasyrpu söngstjórans Jóns, Þór
arinssonar, þar sem frúrnar Eygló
Haraldsdóttir og Kolbrún Sæ-
mundsdóttir áttu ágætan hlut að
máli. Einsöngvarar skiluðu og sín
um hlutvarkum með prýði og
Gunnar Möller, sem lék á píanó
í tveim lögum, átti einnig sinn
góða þátt í velheppnaðri söng
skemmtun.
Það má teljast vonum seinna,
að tekizt hefur að koma á fót stúd
entakór sem fastri stofnun hér á
landi. Fjölmargar tilraunir hafa
verið gerðar til þess á undanf.
árum en ekki tekizt fyrr en í
fyrra. Hafa þó stúdentar árum sam
an lagt fram mjög verulegan
skerf til karlakóranna í bænum
og margar ágætar raddir í þeirra
lióþi. Er vonandi, að áhuginn hald
ist og kórnum verði langra líf
daga auðið, því að hann hefur alla
möguleika á að verða hinn ágæt
asti kór með aukinni sefingu. G.G.
Natalia Ginsburg: — S'i’o lengi sem hjónabandið er gott, hefur
eiginkonan það gott, EN , . .
Hjónaskilnaðir
þekkjast ekki
Á síðustu árurn hafa biöðin
Róm tekið upp á því að hafa dai_
legar kvennasíður. Það telst til
byltingar í ítalskri blaðamennsku,
segir Gabriele Baldini, prófessor
í enskri tungu og bókmenntum
við háskólann í Róm, í blaðavið-
tali, sem hann og kona hans,
skáldkonan Natalia Ginsburg, áttu
nýlega.
Það er skrifað um tízkuna
og matartilbúning, en einnig er
skrifað um alvarlegri hluti. þótt
ég taki það fram, að matartilbún
ingur er mér mikið alvörumál,
segir prófessor Baldini.
MEIItA KYNFRÆÐSLA.
— Nú er mikið um það rætt í
blöðunum, að hve miklu leyti það
sé nauðsynlegt að koma á fræðslu
itm kynferðism'ál í skólunum og
annars staðar, segir Natalia Gins
burg — hún er nefnilega ekki
fyrir hendi. Konur eiga ekki í
neinúm erfiðleikum með að verða
sér úti um vinnu á Ítalíu —
hina raunverulegu mismunun
kynjanna er að finna í hjúskap-
arlögunum.
— En hjálpa eiginmennirnir
ekki konum sínum, ef þær vinna
utan héimilis?
— Niente, niente, svaraði Nata.
lia Ginsburg hlæjandi, og þó,
það er ekki allskostar rétt. Syn
ir mínir tveir, sem eru nýkvænt
ir. fá leyfi til að hjálpa konum
sinum, sem einnig vinna úti.
Yngsta kynslóðin er að breytast.
— Með menntastéttum á Vest
urlöndum á sér stað samskonar
í þróun, skýtur prófessor Baldini
inn í — það er í hinum stétt-
undm, sem maður verður var
við mismuninn. Lífið á Norður-
Ítalíu er t. d. allt annað og nú-
tímalegra en í suðurhlutanum,
þó að það sé samt ekki eins
þróað og í Svíþjóð t.d., þar sem
konurnar ráða, eftir því sem ég
hef heyrt.
SÆNSKT ÁSTAND?
Þátttaka konunnar í atvinnu-
lífinu á Ítalíu er með nokkuð öðr
um hætti en t.d. í Svíþjóð. Það
er athyglisvert, að árið 1901 unnu
utan heimilis 5,150.000 konur, en
árið 1951 voru þær aðeins 4.
914.000 — nýrri tölur eru ekki
fyrir hendi, en þetta sýnir þó
ákveðna hneigð. Giftu konurnar
vinna úti af nauðsyn. og strax og
lifskjörin batna, og eiginmennirn
ir geta einir séð fyrir heimilinu
fjárhagslega, draga konurnar sig
út úr atvinnulífinu og helga sig
heimilinu eingöngu.
VARNARLAUSAR.
— En það eru hjúskaparlögin,
sem eru í brennipúnktinum,: seg
ir prófessor Baldini.
— Svo lengi sem hjónabandið
gengur snurðularust hefur hin
italska kona það, ágætt, segir
Natalia Ginsburg.
En sé það brösótt, eru kon-
urnar varnarlausar. segir mað
ur hennar ,— lögin styðja ekki
við bak konunnar,
Eiginmaðurinn er höfnð fjöl
i ramhald á 15. siðu
Nýjung frá Stoddard
Wilton teppi úr acrilan
Þrúðurinn faér sérstaka hitameðferð, sem gerir hann
stinnan og fjaðrandi. Kosti-r teppanna eru þessir m.a.:
1) Þau bælast ekki eða sporast, og skuggar mynd- ^
ast ekki á yfirborði.
2. Þau soga ekki í sig vætu, og er því auðvelt að
ná blettum úr þeim.
3) Þau halda litnum eftir langvarandi notkun og eru
æ sem ný eftir hreinsun.
\\l ■
4) Þau eru öðrum teppum sterkari og endingarbetri ; |
og hæfa bæði á lieimilum og í opinberum bygg-
ingum.
1; .
I? -
■Teppiíi fást í 10 mildum og hlýlegum litum, sem fara j
vel við næstum hvaða umhverfi sem er, og í 5 mis-
munandi breiddum: 70 em, 90 cm, 275 cm, 365 cm
og 450 cm.
t Verð og sýnishorn hjá umboðsmönnum: j
ÍVSagni Guðmundsson sf.
Austurstræti 17. — Simi 1-1676.
ÚRSMIÐUR
Veltusundi 3. Sími 13014.
V atnþétt
Höggvarið
Óbrjótanleg
gangfjöður
Sjálfvinda
Dagatal
Sendum gegn
póstkröfu.
Magnús Benjamínsson & Co.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. apríl 1966 $