Alþýðublaðið - 27.04.1966, Blaðsíða 16
Á fundi
með borgarstjóra
KONA EÐA. . .
Reglumaður óskar að kynn-
ast konu eða ekkju um fimmt
ugt. Tilboð merkt „7211“ send
ist afgreiðslu blaðsins fyrir 30.
apríl.
Augl. í Vísi.
Ég var að tala lií sérfræð
'ing minn í Jheimsmálum; og
spurði liann, hvort hann héldi
að iþríiðja heimsstyrjöldin
inundi brjótast út Aúðvitað,
svaraði hann eins og sá sem
allt veit. Hún brýzt út vegna
deilna um það, hvort stói-veld-
ið sé meiri friðarsinni. . . .
MEV bcndir öilum heiðvirð
um konuin á, að forðast að
hlaupa á eftir karlmönnum.
«*að eru nefnilega lítil Iíkindi
til að þcir komizt undan. , .
Herra borgarstjór^ góðir fund-
armenn,
Borgarstjórinn okkar hefur í
kvöld látið svo lítið að koma í
heimsókn til okkar hér í smáhýsa
og háhýsahverfið. Ætlar hann að
vera svo vinsamlegur að svara
spurningum, ef þið að segja liaf
ið einhverjar spurningar um hverf
ið okkar, framkvæmdir þar og
sitthvað fleira.
Borgarstjórann þekkig þið öll,
þið hafið séð svo margar myndir
af honum í Mogganum undanfar
ið og hef ég þessi orð þá ekki
fleiri, og gef borgarstjóranum orð
ið.
Góðir fundarmenn, herra fund
arstjóri.
Það er mér sérstök ánægja í
kvöld að vera gestur ykkar hér í
smáhýsa og háhýsahverfinu, þessu
glæstasta hverfi höfuðborgarinnar
þar sem þegar er búið að mal
bika þrjár götur, gangstétt er
væntanleg skóli er í byggingu og
leikfimishús fyrir bömin verður
væntanlega komið upp fyrir alda
mót.
Þetta borgarhverfi hefur fyrir
margra hluta sakir sérstöðu. Fólk
ið hér er einstakl. alúðlegt og gest
risið, og hverfið allt til fyrirmynd
ar í hvívetna, Ef fegrunarfélagið
væri ekki dautt hefðu áreiðanlega
margir garðar hér fengið fyrstu
verðlaun í fyrrasumar. Kannski
geta einhverjir hér fengið verð
laun í sumar, ef okkur tekst að
endurvekja félagið og þið verðið
dugleg í ko'ningunum. Og þá er
ég kominn að efninu, nefnilega
kosningunum. Eins og þið vafa
laust vitið eru kosningar á næsta
leiti og því er ég nú kominn hérna
í háhýsa og smáhýsahverfið til að
spjalla við ykkur og innræta ykk
ur rétt hugarfar og svara öllum
ykkar spurningum um vandamál
hverfisins, sem ég veit raunar
að engin eru, því okkur hefur
farizt stjórnin svo vel úr hendi
að vandamál eru bókstaflega eng
in fyrir liendi. Ég hef þessi orð
mín svo ckki fleiri en ef þið
góðir kjósendur og borgarbúair
viliið nú vera svo vænir að bera
fram þessar fáu snurningar, sem
bið ef til vill lumið á þá vil ég
biðia ykkur að gera það strax.
því ég þarf nefnilega að klára ann
að hverfi í kvöld líka. Gjörið nú
svo vel og komið með spurningarn
ar, á svörum skal ei standa.
Jón Jónsson: Ég ætla að leyfa
mér að segja hér nokkur orð. Ég
er nú ekki vanur ræðumaður en
bað er bara konunnar minnar
vegna. að ég stend hér upp. Hún
er nefnilega búin að soarka í aumu
lönnina á mér, alveg síðan við
komiitn liér inn og bví var ég til
ti°»"iHur til að standa upp. Þér meg
ið ekki misskilja mig herra borgar
stjóri, borginni okkar er afskap
lega vel stjórnað og efumst við
jum að þar sé hægt að gera betur
en konuna mína langar til að vita
hvenær sé von til þess að komi leik
völlur hérna i hverfið. Það er nú
bráðum tuttugu ár síðan við flutt
um hingað og ungarnir okkar eru
allir flognir úr hreiðrinu, og ekki
hafa þeir gagn af leikvellinum úr
þessu. En barnabörnin koma oft í
heimsókn nú orðið og þætti kellu
gaman að vita hvort hún getur
ekkj bráðum farið að labba með
þau á leikvöllinn þennan, sem
Bláa bókin lofaði okkur fyrir 25
árum?
Borgarstjóri: Það er rétt, það
mun hafa verið minnst á leikvöll
í Bláu bókinni, sem þér vitnuðuð
til, Jón Jónsson. En ég vara yður
við þvi að taka allt of mikið mark
á þvi sem þar stendur. Sú bók
lofaði líka borgarsjúkrahúsi fyr
ir aldarfjórðungi, og það klárast
nú bráðum. Einnig lofaði Bláa bók
in nýrri slökkvistöð fyrir sextán
árum og hún kemst nú kannski í
gagnið í vor. Þér sjáið því Jón
minn Jónsson, að Bláa bókin er
hreint ekki einhlít heimild, þótt
góð sé. Um leikvöllinn þori ég
ekki að lofa neinu, þetta er mörg
um atriðum háð og bezt að segja
sem minnst til að binda sig ekki
um of.
Jónína Jónsdóttir.: Herra borgar
stjóri. Það eru nú senn liðin tiu
ár síðan Kjaravöruausturvalvter
setti upp verzlun í 30 fermetra
skúr hérna í hverfinu. Við hús
mæður erum orðnar langevgar eft
ir almennilegri verzlun. Hvenær
fáum við nýja búð?
Borgarstjórinn: Hmm, hmm, Það
er nú svo með eigendur Kjaravöru
austurvalvers, að þeir hafa ýms
um öðrum hnöppum að hneppa,
en að stunda verzlun, þótt þeir
hafi fengið nokkrar albeztu verzl
unarlóðirnar í borginni. En þetta
stendur nú allt til bóta. Bráðum
fáið þið strætisvagnaferðir og get
ið farið að verzla niður í bæ og
þá er vandinn leystur. Góðir hverf
isbúar! Tími minn er á þrotum
bílstjórinn minn er farinn að pípa
á mig. og ég verð að fara að
koma mér. Þetta var ánægjulegiu-
fundur i hvívetna, og árna ég ykk
ur ble~sunar um framtíð alla.
Fundarstjóri. Þakka yður kæ--
lega fyrir komuna hingað í hver';
ið, borgarstjóri, og fullkomin svör
við flóknum spurningum. Ég von.a
að við sjáum yður aftur fyrii-
næstu kosningar.