Alþýðublaðið - 07.05.1966, Síða 1
Laugardagur 7. maí 1966 - 46. árg. — 102. tb!. - VERÐ 5 KR.
Fær hún nýtt húsnæði?
□ HANN VAR HVASS og kaldur á norð
an í gærdag, þegar við heimsóttum Lilju
Guðlaugsdóttur að Suðurlandsbraut 58
til að forvituast um. hvort hún hefði nokk-
uð heyrt frá borgaryfirvöldunum, en forsíðu
grein Alþýðublaðsins í gær um ástæður Lilju
Vog barna hennar sjö vakti mikla athygli. í
óvörðum timburskúr liafast átta manns við
á gólffleti sem er minni en stofa í flestum
húsum, — eða rétt um fimmtán fermetrar.
— Nei, hingað hefur enginn komið og ég
hef ekkert beyrt, sagði Lilja. Þegar það er
eins kalt og í dag, er óverandi hér, þótt ég
kynd’i eins og hægt er, þá hefur það sára-
lítið að segja. Það er litlu hlýrra inni en
úti, — eitt af börnum míniun er veikt, hélt
hún áfram, og mér tókst ekki að ná í lækni,
því ég komst ekki í síma fyrr en of seint.
Ég næ vonandi í hann á morgun, en hér er
heljarkuldi og óvært eins og alltaf er, þegar
eitthvað kólnar.
Þá hafði blaðið tal af einum talsmanni
Reykjavíkurborgar, sem dálítið hefur haft
með mál Lilju og barna hennar að gera.
Hann sagði: Þetta mál er í afgreiðslu hjá
okkur, og við vonumst til að geta leyst það.
Alþýðublaðið vill bæta því hér við, að von-
andi verður ekki Iöng bið á því, að Reykja-
víkurborg taki á sig rögg og ráði á einhvern
hátt fram úr vanda Lilju og barna hennar
sjö.
ÞETTA ER ENN ÞA TIL
í REYKJAVÍK
' frbkíyhlo býr |
j .Wrm. wj&jtx i
r ufo llmmfón fá/twíftjr ]
Alþjóðaþing jafnaðarmanna i Sviþjóð:
ÁKÁFT FA
Stokkhólmi. 6. maí. (NTB).
Brezki Alþýðuflokkurinn lýsti í
dag með skýrari og ótviræðari
orðum þeim eindregna vilja sín-
um að komast að samkomulagi við
Efnahagsbandalagið. Aðalfulltrúi
flokksins á alþjóðaþingi jafnaðar-
manna í Stokkhólmi, George
Brown varaforsætis- og efnahags-
málaráðherra, sagði í ræðu á þing
inu, að spurningin væri ekki leng
ur sú, hvort Bretar ættu að ganga
í EBE, heldur hvenær og með
hvaða skilyrðum. Ræða hans er
ÁHRIF FRÁ UMHVERFINU
Oft heyrist því fleygt, að skólamenn sæki efni í dæmi
sín í fjarskylda hluti og nemendum alls ókunna, eins og
þegar þeir tala um járnbrautir, sem þjóta í gegn um jarð-
göng eð.a eidflargar, sem geyisast til fjarlægra himin-
hnatta. Nýiega barzt okkur í hendur reikningsdæmi úr
igagnfræðaprófi frá i vor, sem óneitanlega byggist á hinu
gagnstæða þar sem nánasta urtihverfi skólans er vafið á
meistaralegan hátt inn í úrlausnarefnið, þannig að allar
aðstæður verða nemendúþum ljóslifandi veruleiki. Segi
menn svo, að kennarastéttin hafi ekki vákandi auga á um
hverfi sínuí
Gatan fyrir framan Gagnfræðaskóla verknáms var tví-
vegis grafin upp á þessum vetri. í fyrra skiptið var meðal
breidd 4 m og dýpt 1,80 m., 8 menn voru í 15 vikur að
vinna við 80 m langan skurð.
í síðara skiptið var skurðurinn 2 m á dýpt og 3 m á þreidd
að meðaltali. Hve margar vikur voru 10 menn að vinna við
jafn langan skurð?
ras
» txttylímX&.-XÍiÍináaa ■
i ílyw-.
~uuu
1. ÍyrXf tr í^zu f.:,: vrrwtáus >.ir trfrrrlR ,:r:,íin u[>(,
á' , >'•.>*■>.. v:.í , i . .1 .**!> „kij.'l,*. >.:.* , >.f.*.;* í ö ífj'f t . :'C‘
í .15 v-ihna við r. Ifiúgttu %.
t -Ni:f i<’i >■■■(.:■ -...l.uröurf í:n !■! w <1 ’óýút ay. r-:, 'ól'ifiú-ú l -
vJÍ-M' vorti H> wnn <»•’> vihn<V vi<> P.ltttrð n
talin einhver mikilvægasta stefnu
yfirlýsing Breta í markaðsmálun-
um.
En þótt ræða Browns í umræð-
unum um markaðsmálin vekti
mikla athygli var ítalski vinstri-
sósíalistinn Pietro Nenni maður
dagsins. Laust fyrir 1950 var
flokkur hans rekinn úr Alþjóða-
sambandi jafnaðarmanna vegna
samstarfs hans við kommúnista
og ágreinings hans við jafnaðar-
menn. En nú hafa Nenni-sósíal-
istar tekið afstöðu gegn kommún-
istum og gengið til samstarfs með
jafnaðarmönnum. Þetta samstarf
hefur komið þeiin í stjórnarað-
stöðu og leitt til þess að Pietro
Nenni er orðinn varaforsætisráð-
herra Ítalíu. Nenni-sósíalistum
var því boðið til ráðstefnunnar
sem bróðurflokki ásamt jafnaðar-
mannaflokknum, sem er fullgildur
meðiimur.
Afturkoma Nennis í bræðralag
jafnaðarmannaflokka heimsins
var fagnað með gífurlegum fagn-
aðarlátum af um það bil 200 full-
trúum, sem þingið sitja. Þegar
borgarstjóri Vestur-Berlínar, Wil-
ly Brandt, sem var í forsæti ráð-
stefnunnar í dag, gaf Nenni orð-
ið og lét í ljós ánægju sína með
þá samvinnu, sem tekizt hefur
með jafnaðarmannaflokkum ítal-
íu, ætlaði allt um koll að keyra.
Nenni gaf þinginu skýrslu um
gengi flokksins síðan stríðinu
lauk, afstöðu lians til kommún-
ista annars vegar og jafnaðar-
manna hins vegar. Ein af ástæð-
unum til að hann sagði skilið við
alþjóðasambandið hefði verið sú,
að hann hefði ekki viljað hætta
við hugmyndina um að sameina
alla andstæðinga fasista á Ítalíu
eftir stríðið, þar á meðal komm-
únista, og hin ástæðan væri sú,
að flokkurinn var andvígur aðild
ítala að NATO. En hins vegar
hefur margt gerzt á undanförnum
20 árum og í dag er flokki okkar
Framhald á 10. síffu.
Voru dæmd í ævi-
iangt fangelsi
Chester, Englandi. 6. maí.
(ntb-reuter). — Hinn 28 áta
gamli skrifstofumaður Ian Brady
og hin 23 ára gamla unnusta hans,
Myra Hindley, voru í dag dæmd
í ævilangt fangelsi fyrir morgto
á Edward Evans, 17 ára, og Les-
ley Ann Downey, 10 ára. Brady
var auk þess dæmdur fyrir morð-
ið á John Kilbride, sem var. 12
ára gamall.
Fenton Atkinson dömari sagði,
að skötuhjúin hefðu gerzt „ek um
viðurstyggileg, vandlega yfirveguC
og grimmdai-leg morð með köldu
blóöi. Við Brady sagði hann: —
Ég dæmi yður þyngsta dómi, sem
lögin leyfa, það er að segja þris-
var sinnum ævilangt fangelsi.
Dauðarefsing fyrir morð var a£-
numin í Bretlandi í fyrra.
SNYRTING
SAMBAND íslenzkra jegrz
tmarsérfræöinga hélt ný-
lega íræðslufund. í Átthnga-
salnum i Hótel Sögu. — Er-
lendur fegrunarsérfræðing-
ur flutti þar erindi og frú,
María Valberg sýndi kröld-
snyrtingu. Það segir nánar
frá þessum fundi á blaðsíðu
þrjú l dag.