Alþýðublaðið - 07.05.1966, Blaðsíða 2
eimsfréttir
siáasfiiána nótt
SAIGON: Menn úr 'hinu svokallaða flugriddarahcrfylkj Banda
ríkjamanna felldu í gær 141 Vietcongmann á strandsvæði einu í
miðhluta Suður-Víetnam. Sprengjuþotur af gerðinni B-52 gerðu
loftárásir á svæði nokkurt skammt frá landamærum Kambódíu,
sjötta daginn í röð. I Saigon skipaði Cao Ky forsætisráðherra
formlega nefnd, sem á að undirbúa kosningar þær, sem stjórn
in hefur heicið að efna til um miðjan september. Nefndin lióf
fitarf sitt með því að fara þess á leit við innanríkisráðherrann
og aðra embættismenn stjórnarinnar að þeir drægju sig út úr
viðræðunum.
DJAKATtTA: Mikil spenna ríkti í igær í Djakarta, og
Slermenn stóðu vörð á götum borgarinnar, gráir fyrir járnum.
Greinilegt er, að búizt er við nýrri stjórnmáladeilu í landinu
þar sem „hinn sterki maður“ landsins, Suharto hershöfðingi,
frestaði í fyrrakvöld fundi löggjafarbingsins, sem boðaður hafði
verið í næsta viku. Talið er, að Suharto óttist að þingheimur
klofni í tvær fylkingar, andstæðinga og fylgismenn Sukarnos
forseta, en uppi hafa verið háværar kröfur um, að þingið taki
völd Sukarnos og ákvarðanir hans til endurskoðunar. Bak við
fjöldin togast Sukarno og Suharto á um völdin.
GENF: Farandsendiherra Johnsons forseta, Averell Harri-
man, sagði í Genf í gær, eftir að hafa ræzt við forseta Alþjóða
Bauða krossins að hann vonaði að Rauða krossinum tækist að
sjá svo um, að bandarískir stríðsfangar í Víetnam sættu góðri
aneðferð. Harrimann sagði, að Rauði krossinn hefði ekki síður
áhuga á að tryggja réttindi norður-víetnamískra fanga í Suður-
'Vietnam. Rauða krossinum hefur enn ekki tekizt að fá lista yfir
bandariska fanga Norður-Víetnammanna og Víetcongmanna,
og fulltrúum lians hefur verið meinað að heimsækja bandaríska
fanga.
SAIGON: Aðstoðarsendiherra Bandaríkjanna í Saigon, Willi-
am J. Porter, sagði í gær, aS Bandaríkjamenn sæktust ekki eftir
herstöðvum í Víetnam og að allt sem byggt væri í Víetnam væri
eign Víetnammanna. Auk þess sem Bandaírkjamenn veittu Saigon
Stjórninni hernaðaraðstoð styddu þeir hana í mörgum ráðstöfun-
um er hún hefði á prjónunum um að vernda líf og velferð
íbúanna.
LONDON: Brezkir embættismenn segja, að brezka stjórnin
ihafi ekkert á móti því að aðalstöðvar NATO verði fluttar til
London ef önnur aðildarríki bandalagsins eru samþykk því. Einn-
ig vill brezka stjórnin, að hermálanefndin, í Washington verði á
sama stað og fastaráð NATO, en Frakkar 'hafa ekki krafizt þess
að fastaráðið verði flutt frá París. Brezkir embættismenn segja, að
■Bretland og fleiri NATO-ríki vilji að skipulag varna NATO verði
einfaldað.
ALEXANDRIA: Nasser Egyptalandsforseti og Tito Júgóslavíu
fbrseti vilja ræða við frú Indira Gandhi, forsætisráðherra Ind-
•lands, um erfiðleika hlutlausu ríkjanna, að því er sagt var í Alex
andríu í gær eftir fund leiðtoganna.
MEXICO CITY: Sendiherrar Chile og Perú í Mexíkó gáfu í
skyn í gær, að stjórnir landa þeirra mundu slíta stjórnmálasam-
bandi við Frakka ef þeir 'gera fyrirhugaðar kjarnorkutilraunir á
Kyrrahafi. Fleiri Suður-Ameríkuríki fara ef fil vill að dæmi
þeirra.
Barátta fyrir rétt-
línustefnu í Kina
Hong-Kong, 6. maí. (NTB-Reut-
er). — Fréttastofan Nýja Kína
skýrði frá því í dag, að það sem
helzt væri til fyrirmyndar i kín
verskum listum og bókmenntum
væru höggmyndir, sem sýna mann
vonzku landeigenda og skáldsögur
sem eru gegnsýrðar kenningum
Mao Tse-tungs. Fréttastofan birti
útdrátt úr ádeiluræðu, sem liið
75 ára gamla skáld, Kuo Mo-jo,
hélt í einni nefnd þingsiru fyrir
einum mánuði og hrundið hefir af
MOSKVA. 6. maí. (ntb-afp).
Tólftu skákinni í einvígi Pet-
rosjans og Spasskys um heims-
meistaratitilinn í skák lauk í dag
með jafntefli. Petrosjan er með
7 vinninga, en Spassky 5 eftir
12 skákir. 13. skákin verður tefld
á mánudaginn.
Bragi
sýnir
BRAGI ÁSGEIRSSON, listmál-
ari, opnar í dag sýningu í Lista-
mannaskálanum. Myndirnar sem
liann sýnir þar, eru allt olíumynd-
ir, flestar nýmálaðar. Nokkrar
myndanna eru þó fárra ára gaml-
ar. Á sýningunni eru 66 myndir,
bæði stórar og litlar.
Sex ár eru nú liðin síðan Bragi
hélt stóra sýningu, var hún einnig
í Listamannaskálanum. Síðan hef-
ur liann haldið minnl sýningar, í
Snorrasal sýndi hann fyrir nokkr-
um árum svartlistarmyndir og síð-
ar hélt hann sýningu í Gallerý 16.
Auk þessa liefúr hann tekið þátt
í samsýningum heima og erlendis
undanfarin ár.
Sýningin verður opnuð í dag kl.
2 fyrir boðsgesti og kl. 6 fyrir
hvern og einn. Mun liún standa yf-
ir til 15. þessa mánaðar.
Stjórn Alþjóðasambands neyt-
endasamtaka heldar íund hér
Reykjavík
Sveinn Ásgeirsson, formaður ís
. |
STJÓRN Alþjóðasambands neyt lenzku neytendasamtakanna,
endasamtaka. sem nú er stödd i
Reykjavík, bauð blaðamönnum til
fundar að Hótel Borg í gær.
kynnti hina góðu gesti og til-
gang þeirra og ástæður fyrir
heimsókn til íslands. Hann kvað
. Hverfisstjórar Alþýðuflokksins
j Áríðandi fundur verður laugardag kl. 3, Surðurlands- *|
i braut 12, kosningarskrifstofu A-listans. Þár eru beðnir aö §
mæta hverfisstjórar úr Lauganesskóla, Langholtsskóla, $
Breiðagcrðískola, Álftamýrarskóla.
Hverfis^tjórar úr Sjómannaskólanum Austurbæjarskól- g
anum eru beð'nir að mæta laugardaginn kl. 3 á kosningar |
rskrifstofu A-listans Brautarholti 20. ý
komu þeirra- að öðrum þræði
he:msókn til hinna íslenzku sam
taka, en þau eru meða. stofn-
enda. Alþjó.ðasamhandsins. sem
stofnað var í Haag fyrir 6 árum.
„íslenzku neytendasamtökin hafa
á margan bátt notið góðs af störf
úrh Alþjóðasambandsins, sem og
samstarfi við önnur. aðildarsam
bönd“, sagði Sveinn. Hann minnti
á þá skyldu neytendasamtaka, að
sjá hvert öðru fyrir upplýsingum
um, hvað þau eru að gera og
hvað þau liyggjast gera í við-
leitni si-nni til að framkvæma ætl
unarverk sitt á meðal neytenda
og fyrir þá. Hann kvað stjórn
Framhalú a 10. síðu.
stað baráttu, er miðar að því að
siðbæta ritliöfunda og mennta-
menn.
Kuo Mo-jo hyllir í ræðu sinni
skáldsöguhöfund og myndhöggv-
ara, sem í verkum sínum endur
vekja stéttarmeðvitund og bera j
vitni um staðgóða þekkingu á
kenningum Maos. Bók sú, sem
Kuo vísar til, er eftir mann. sem
af eigin reynslu lýsir því hvað
það þýðir að vera ataður blóði
og for á vigstöðvum á ökrum.
Höfundi þessum, Chin Ching-mai
tókst að flétta kenningar Maos
inn í áhrifamikla lýsingu af her
manni, sem týnir lífi eftir að
hafa komið í veg fyrir járnbraut
arslys.
Myndhöggvarinn Kuo Mo-jo sá
ástæðu til að lýsa mannvonzku
landeiganda nokkurs er hann inn
heimtir skatta af leiguliðum sín-
um. Margir, sem virtu fyrir sér
listaverkið, en það er af fólki í
eðlilegri líkamsstæðr, grétu því
að það minnti það á fortíðina,
•segir Kuo Mo-jo. Þetta mikThæfa
stílbragð, sem markar tímamót í
höggmyndalist, er árangur já-
kvæðrar rannsóknar og beitingar
á kenningum Maos, sagði .-káldið,
og bætti því við að þrátt fyrir há
an aldur væri hann reiðubúinn
að ata sig for meðal bænda og
blóði meðal hermanna.
Námskeið í
SÖNGMÁLASTJÓRI þjóðkirkj-
unnar, dr. Róbert Abraham Ottós-
son, heldur kirkjusöngsnámskeið
fyrir starfandi og verðandi kirkju
orgelleikara og kirkjusöngstjóra í
Framhald á 10. síðu.
C OOOOOOOOOO <><><><>OOOOOOOOOOOOOOOOOi
KOSNINGASKRIFSTOFUR
ALÞÝÐUFLOKKSINS
AKRANES:
Skrifstofan er í félagsheimilinu Röst, sími: 1716.
Opið kl. 13—22 alla virka daga; á sunnudögum ki. 14—18.
AKUREYRI:
Skrifstofan aff Strandgötu 9, sími: 2-14-50.
Opiff kl. J0—22 alla virka daga; á sunnudögum kl. 14—18.
HAFNARFJÖRÐUR:
Skrifstofan er I Alþýffuhúsinu, símar: 5-23-99 og 5-04-99.
Opiff kl. 10—22 alla virka daga; á sunnudögum kl. 15-18.
KELAVÍK:
Skrifstofan er aff KÍapparstig 7 (rétt hjá Félagsbíói sími
1866. Opið kl. 17—22 alla v.irka daga; á sunnudögum
kl. 14—18.
KÓPAVOGUR:
Skrifstofan er aff Auðbrekku 50, sími: 4-11-30.
Opiff kl. 14—22 alla virka daga; á sunnudögum ki. 14—18.
REYKJAVTK:
Skrifstofan er aff Hverfisgötu 8—10, símar: 1-50-20, 1-95-70
og 1-67-24. Opiff kl. 10—22 alla virka daga; á sminudögiun
kl. 14—18.
VESTMANNAEYJAR:
Skrifstofan er aff Heimagötu 4 (Berg), sími‘ 1085.
Opiff kl. 10—22 alla virka daga; á sunnudögum kl. 14—18.
ALÞÝÐUFLOKKSFÓLK!
Hafiff samband viff kosningaskrifstofur Alþýffuflokksins og
gefiff starfsfólki A-listans upplýsingar um þaff Alþýffuflokks
(&fólk er verður aff heiman á kjördegi.
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOCxXJí
2 7. maí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ