Alþýðublaðið - 07.05.1966, Síða 3
Erlendur Hansen
Guðbrandur Frímannsson
Jón Karlsson
Friðrik Friðriksson
Aðalheiður Þorvaldsdóttir
Listi Alþýðuflokks-
ins á Sauðárkróki
LISTI Alþýðuflokksins á Sauðár-
króki við bæjarstjórnarkosníng-
arnar 22. maí er þannig skipaður:
1. Erlendur Hansen rafvirkja-
meistari.
2. Guðbrandur Frímannsson raf-
virki.
3. Jón Karlsson verkamaður
4. Magnús Jónsson verkamaður
5. Birgir Dýrfjörð rafvirki
6. Friðrik Friðriksson sjómaður
7. Aðalheiður Þorvaldsdóttir
verkakona
8. Einar Sigtryggsson húsasmið-
ur
9. Haukur Þorsteinsson vélstjóri
10. Herdís Sigurjónsdóttir, frú
11. Sigmundur Pálsson húsgagna-
smiður
12. Jón Stefánsson verkamaður
13. Friðrik Sigurðsson verkamað-
ur
14. Magnús Bjarnason kennari
Ægir fer í dag í
vorleiðangur sinn
HINN árlegi vorleiðangur Ægis
hefst í dag, laugardaginn 7. maí.
Tilgangur leiðangursins er eins og
að undanförnu að kanna göngur
eildarinnar inn á miðin norðan-
lands og austan. Auk þess verða
1 leiðangrinum gerðar víðtækar
sjórannsóknir svo og athuganir á
plöntu og dýrasvifi. í fyrsta áfanga
leiðangursins verður kannað
svæðið vestur og norður af land-
inu svo langt sem ís leyfir, en síð-
an lialdið á djúpmið norðaustur
og austur af landinu. Þátttakend-
ur leiðangursins af hálfu Hafrann-
sóknastofnunarinnar verða: Hjálm
ar Vilhjálmssson leiðangu. sstjóri,
Dr. Svend Aage Malmberg haf-
fræðingur, Egill Jónsson, Birgir
Halldórsson, Guðmundur Svavar
Jónsson, Geir Magnússon og Vil-
borg ísleifsdóttir. Skipstjóri á
Ægi er Sigurður Árnason.
Hinn 5. maí hóf leitarskipið
Hafþór sildarleit á djúpmiðum
austur og norður af landinu. Skip-
stjóri á Hafþór er Benedikt Guð-
mundsson.
Magmís Jónsson
Birgir Dýrfjörð
WMWWWWmWWmWWMMMWWWMWMWWWMMMMWWMWWWWWMMMWVWWWW
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 7. maí 1966 3
FARIÐ VARLEGA SOLBÖD
SAMBAND íslenzkra fegrun-
arsérfræðinga hélt nýlega
fræðsíufund á Hótel Sögu. —
Sóttu fundinn bæði félagskon-
ur og gestir þeirra og var
fundurinn bæði gagnlegur og
fræðandi. Sæmundur Kjartans
son, læknir, sérfræðingur í
sjúkdómum hélt fróðlegt er-
indi. Hann talaði um ýmsa al-
genga húðsjúkdóma, einnig um
sólböð. Læknirinn sagði, að
sólböð mætti ekki taka of
geyst, þó að ekki væri mikil
hætta á þvl hér á landi, að
sólböð skemmdu húðina eða
réttara sagt bandvefinn undir
húðinni. Þó að húðin flagni af
of mikilli sól myndast fljót-
lega aftur ný húð, en þá hafa
ef til vill orðið skemmdir á
bandvefnum undir húðinni, en
þær sjást ekki, fyrr en seinna.
Frít Þórdís Árnadóttir, eigandi Valhallar, og Annick
Robie, fegrunarsérfræðingur frá Coryse Salomé.
Annick Rcbie:
íslenzkar konur liafa þurra húð.
Á fólki, sem hefur verið of
mikið í sól, verður húðin ó-
eðlilega snemma hrukkótt og
slöpp, en það er vegna
skemmda, sem bandvefurinn
undir húðinni hefur orðið fyr-
ir, þó að slíkt sjáist ekki strax.
í sambandi við ýmis konar
útbrot á húð, gat læknirinn
þess, að oft kæmu fyrst fram
á húðinni ýmiss konar sjúk-
dómar í innri líffærum, t. d.
ef um sykursýki væri að ræða.
Þá gætu komið fram á fótum
gulbrúnir blettir, sem ekki yllu
miklum óþægindum, og því
drægju sjúklingar oft að leita
læknis.
I-Iann minntist einnig á fæð-
ingarbletti og sagði, að fólk
skyldi varast að snerta þá
mikið, þar sem erting gæti
skapað hættu á að bletturinn
yrði illkynjaður, þó kæmi slíkt
aðeins fyrir í einu tilfelli af
þúsund, svo að ekki væri á-
stæða til að óttast slíkt, þó um
bletti væri að ræða.
Að loknu fróðlegu erindi
læknisins, hélt frú María Dal-
berg sýnikennslu í kvöldsnyrt-
ingu með fegrunarvörum frá
Max Fatcor.
Síðan kom Annick Robie,
sem hér er stödd á vegum
Valhallar í Reykjavík, og leið-
beinir konum um val fegrunar-
vara Coryse Salomé. Ungfrú
Robie sagði, að helztu litir í
Framhald á 10. síðu.