Alþýðublaðið - 01.06.1966, Page 3
r
I
sesss a
BERSLXN, 31. maí (NTB-
Reuter). — Allt bendir til þess,
að borgarstjóri Vestur-Berlínar
Willy Brandt, verði endurkjörinn
formaður Jafnaðarmannaflokks
V estur-Þýzkalands á landsfundi
flokksins, sem hefst í Dortmund
á morgun. Enda þótt flokkurinn
tapaði fylgi undir forystu Brandts
í kosningunum 1961 og 1965 ógn
ar greinilega enginn völdu.m hans
í flokknum.
Um 300 fulltrúar sitja lands-
Rektor Háskólans
i Leiden flytur
fyrirlestra hér
Rektor Háskólans í Leiden í
Hollandi, prófessor D. J. Kuenen,
dvelst hér á landi frá 30. maí til
5. júní í boði Háskóla íslands.
Prófessor Kuenen er kunnur dýra
fræðingur, og hefir hann verið á
hrifamikill um mótun stefnumiða í
Ihollenzkum háskólamáluni eftiir
styrjöldina. Á stúdentsárum sín
Um dvaldist prófessorinn sumar
langt liér á' lándi fyrir" styrjöld
ina. ,Hanri heldur hér tvo fyrir
lestra í Háskólanum, liinn fyrri
miðvikudaginn 1. júní kl. 5,30'e.
li. og,- hjnn síðari föstudaginn 3.
júní kl. 5.30. Fyrri fyrirlesturinn
nefpist „IJolienzkir, liáskólar .éftir
heimsfyrjöldina siðari- óg hinn síð
ari v.Maðurinn "og úmhverfi hans
frá liffræðilegu sj.ónartniði-:!1 > * "
. Fyrirle'strarnir verða fluttir á
ensku, og er.öllum hftinjill aðgang
ttr. • ' • ■ ■
fundinn, sem stendur til 4. júní.
Ýmsar hliðar Þýzkalandsmálsins
munu bera hæst á fundinum.
Meðal annars verður rætt um
það á fundinum hvort vestur-
þýzkir jafnaðarmenn og austur-
þýzkir kommúnistar skuii skipt
ast á ræðumönnum einhvern tíma
í júlí nk. eins og um hefur
verið rætt.
Ráðgert hefur verið að halda
opinbera fundi í Karl-Marx-
Stadt (áður Chemnitz) í Austur-
Þýzkalandi 14. júlí og í Hannov
er í Vestur-Þýzkalandi 21. júlí.
Willy Brandt hefur verið skipað
ur aðalræðumaður flokks síns á
báðum stöðunum. Samstarfsmenn
hans, Berbert Wehner, varafor-
maður fiokksins og Fritz Erler
eiga einni-g að halda ræður á fund
iinum.
Enn er ekki ljóst hvort vestur-
þýzk yfirvöld leyfi austur-þýzkum
ræðumönnum að mæta á fundin
um í Hannover. Samkvæmt vest-
ur-þýzkum lögum ber að hand
taka þá um leið og þeir fara
yfir landamærin og stefnj þeim
fyrir rétt.
Ef af fundunum verður verð
úr 'þe(ttá í fyrsta skipti frá
styrjöldárlokum sem' austur-
þýzkii- kommúnistar og vestur-
þýzkir jafnaðarmenn únætast op-
inbetlega' á fundi.' v
Antiað mikilvægt rrtál, sem tek
ið verður til Umræðú á lánds-
fundinum er væntanlegar fylkis
st jórnarkosningar í ' Nordrheiii-
Westfalen 10. júlí. IJér er um
áð ræða stærsta fylki Vestur-
Þýzkalands og horfur éru á því
að jafriaðarmenri vinni irieírihluta.
Flokkurinn hefur nú meirihluta
■í' fimm fylkjum.
Kampavínsflöskunni komið fyrir á snarfaxa, rétt eftir að vélin lenti. (Mynd: JV.)
Hyggjast kaupa
F riendship-véliua
Reykjavik. — ÓTJj
GLÓFAXI gamli Áóð heiSurs-
vörð,þegar hin nýja FSkkcr Friend
ship vél Flugjélags Ísínds ók upp
að jlugskýll númer 4 -sl. taúgar-
dag. Og þegar jrú Ágústa Vignis-
dóttir. braut kampawnsjlöaku á
neji hennar og skírði hana Snar-
faxa, dríindi í hreyflum Dakota-
vélarinvar.
•Margt' gesta fagnaðt nýja far
kostinum, og ræður ftuttu Birgir
Kjaran, formaður stjórnar F. í,,
Ingólfur Jónsson, fiugmálaráð-
herra og.-Örn Ó. Johnson, forstjóri
AMHtMUMMtútM'ktWtWUMMUUMMUMW MWUHIUMMMHMtWMMWHtMMMtMMtMi
■ r
sjonvarp
Reykjavík. — OÓ.
Óðum líður að því áð íslenzka
sjónvarpið taki til starfa. —
Varla hefur farið fram hjá
blaðalesendum að mikið hefur
verið starfað að undirbúningi
þess. Fjölmargir starfsmenn
stofnunarinnar hafa verið er-
lendis lengri og skemmri tíma
við nám og byggingafram-
kvæmdum miðar óðum áleiðis.
Enn mun ekki ákveðið hvenær
stöðin hefur starfrækslu en
öruggt má telja að það verður
i haust eða fyrri hluta vetrar.
En það eru fleiri en starfs-
menn sjónvarpsins sem búa sig
undir sjónvarpssendingar. Þeg-
ar er lögin um starfrækslu sjón-
varpsins voru samþykkt var á-
kveðið að drýgja tekjur stofn-
unarinnar með auglýsingaút-
sendingum. Og þessar auglýs-
ingar verður að búa til.
Sjálfsagt eru nokkrir aðilar
á íslandi sem taka að sér að
gera auglýsingar fyrir sjónvarp,
en Alþýðublaðið sneri sér til
þriggja manna er fyrir nokkru
sendu væntanlegum auglýsend-
um bréf og buðu fram þjón-
ustu sína. Þessir menn eru Ás-
geir Long, Ragnar Páll Einafs
son og Ólafur Ragnarsson. —
Munu þeir i sameiningu vinna
að gerð auglýsingakvikmynda
fyrir sjónvarp, og eru þegar
byrjaðir á nokkrum verkefn-
um.
_ Þeir þremenningarnir vinna
eingöngu að gerð sjónvarpsaug-
lýsinga, og taka ekki að sér að
vinna auglýsingar fyrir kvik-
myndahús eða blöð. Hafa þeir
unnið að undirbúningi þessa
siðastliðið ár og komið sér upp
tækjabúnaði sem gerir þeim
kleift að framleiða bæði leikn-
ar myndir og teiknimyndir,
nema að hvorttveggja sé. Þá
setja þeir einnig tón og tal inn
á myndirnar og skila þeim að
öllu leyti tilbúnum til útsend-
inga. Þá munu þeir ganga frá
handritum auglýsingamynd-
anna í samráði við auglýsendur.
Ásgeir mun að mestu sjá um
tæknilega hlið kvikmyndagerð-
arinnar og Ragnar mun jöfnum
höndum teikna og sjá um tón-
list.
Auglýsingar í sjónvarpi hafa
möguleika á að vera mun fjöl-
breyttari en útvarpsauglýsingar
og munu þeir félagar taka að
Framhald á 14. afffn
ttVMMMMtMMMMtUMttWmMMMVWVMMtt iMMMMMMWMMMMMMMMMMMMMttMMt*
F.. í. Birgir Kjaran sagði m. a.
að þótt kalsi væri i veðri, væri
vor í hjörtum þeirra Flugfélags-
manna, þvi að þeir teldu að enn
hefði verið stigið spor í rétta átt.
Fyrstu spofin hefðu verið stigin
fyrir næi- þremur áratugum er
Flugfélagið vá'r stofnað. Þótt ekki
væri staður né stund til að rekja
sögu félagsins væri'þó fróðlegt að
þera sámán ýmsar tölur. Þannlg
hefði-. txlr Högfiotinn i fyrstu'
getað f-lutt þrjá farþega. í dag
gæti hann flutt- 453. Hluthafar
fycsfu árin', hefðu verið tæpléga
20, nú væru þeir yfir þúsund. Ög
að fýrstu' árin var veltan inrian
við fimiritíu þúsurid krónur, en ár-
ið 1965 var hún 220 milljónir. Að
lokum sagði Birgir: Góðar sam-
göngur i lofti, á láði og legi eru
mikil þörf þjóð, sem byggir víð-
áttumikið land, og þær eru lífs-
nauðsyn þjóð, sem býr á afskekktri
eyju í órafjarlægð frá öðrum lönd
um Sltk er staða okkar Tii þessa
liggja ekki aðeins efnahagsleg
rök, heldur og menningarleg og
mannleg. Bættar samgöngur
kynna þjóðir og einstaklinga. —
Þær auka gagnkvæman skilning
milli mannfólksins og eyða mis-
klíð og fordómum og stuðla þann-
ig að aukinni vináttu'milli þjóða.
Það er ósk mín að þessi nýja
Friendship vél megi og eiga sinn
þátt í slíkri þjónustu. Ég óska
þessum glæsilega farkosti giftu-
ríks starfs. Ingólfur Jónsson, flug-
málaráðherra sagði m. a. að nefnd
hefði verið skipuð til að gera loka
tillögur um flugvallamál Reykja-
víkur og væru þær væntanlegar í
sumar. Væri það haft fyrir satt
að nefndin væri sammála um að
flugvöllur skyldi áfram vera í
svæði borgarinnar. Væri líklegt
að hún legði til að Reykjavíkur-
flugvöllur yrði endurbættur og
notaður áfram næstu árin. Ef hins
vegar færi svo, að ákveðið yrði
að leggja völlinn niður, þyrfti
að sjá fyrir fuilnægjandi aðstöðu
í næsta nágrenni Reykjavíkur.
Hefur nefndin rannsakað ýmsa
staði í þessu tilliti, og þá einkum
Álftanes utanvert. Teldi harin lík-
legt að nefndin legði xil að.tekið
yrði frá lándrýnii á þeim stað und-
ir framtíðarflugvöll o'g að svó
heppilega vildi til að ríkið ætti
það land. Örn Johnson sagði í
ræðu sinni m. a. að þegar Fiug-
félagið hefði ráðist í að kaupa
fyrstu Friendship vélina hefðu
starfsmenn félagsins verið sann-
færðir um að verið væri að gera
rétt. Miklar vonir hefðu verið
bundnar við Blikfaxa og hún hefði
heldur ekki valdið vonbrigðum.
Því væri nú komin önnur, og ljóst
væri að nauðsynlegt yrði að kaupa
þá þriðju. Hefði félagið forkaups-
rétt að henni. Á þvi rúma ári sem
Blikfaxi hefði verið í förum, hefði
hann flutt um 55000 farþega og
rekstrartekjurnar næmu um 40
milljónum króna. Hefði reksturinn
borið sig vel, þrátt fyrir 8 millj-
ón króna afskriftir. Öm sagði og
að það væri samróma álit flug-
manna og flugvirkja félagsins að
Friendship vélarnar væru mjög
góðar og fullkomnar, enda jiefðu
þær farið sigurför um allan heim,
og verksmiðjurnar geta ekki full-
nægt eftirspurninni.
Snarfaxi er í öllum meginatrið-
um eins að frágangi og búnaði,
nema hvað í honum eru radar-
tæki og eru það þau fyrstu sem
sett eru í vél sem einkum er ætl-
uð til innanlandsflugs. Sams kon-
ar tæki munu og sett 1 Blikfaxa,
á hausti komanda. Að ipkum
Frainhald á 14. sfðú.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1. júní 1966 3