Alþýðublaðið - 01.06.1966, Qupperneq 16
ÆCESHMESЮ
Áfram með smjörið
Djöfull var þetta frat píp á
Laugavatni mar. Það voru all
ir blautari að utan en innan.
■ I niínu ungdæmi þótti mikil
dyggð að geta svarað spurning
um prestsins fyrir ferminguna.
'Nú þurfa krakkarnir ekki ann
-að en sannfæra foreldra sína
um, hvað þau voru ekki að
gera á Laugavatni.
‘Augun eru glettnisleg, oft
Hheekkjarleg, munnurinn er
fctór og geiflugjarn, og kjöt
*ikur hnúður er framan á nef
Hbroddinum, sem gerir andlit
ifjennar enn sérkennilegra.
Lesbók Mogga,
LTm hvítasunnuna var ekki uni
nunað að velja en Frakkana,
Laugarvatn og Borgarfiörð. Þá
.var bezt að sitja heima eins
og ég.
Baksíðan vann dálítinn sigur á
dögunum, en vegna kosninganna
og alls þessa hávaða hefur farizt
fyrir að minna á það þar til nú.
En þar sem það er ekki til siðs
hér á þessu landi að láta sigra
sína liggja í láginni — meira að
segja þeir sem tapa, stæra sig af
því að hafa unnið frækilega sigra,
þá vill Baksíðan auðvitað guma
svolítið af sínum sigri líka.
En hver er hann þá þessi sigur,
sem Baksíðan hefur unnið? Hann
er sá, að sjónarmið Baksíðunnar
varðandi merkilegasta fjall á ís-
landi hafa nú verið tekin til
greina af ráðandi aðilum. Þetta
fjall er auðvitað smjörf jallið fræga
en Baksíðan liefur iðulega lagt til
að það yrði etið. Og nú stendur
einmitt til að eta smjörfjallið, og
gerðar hafa verið ráðstafanir til
að gera mönnum það kleift.
Það kom mönnum áreiðanlega
almennt mjög á óvart, þegar til-
kynnt var viku fyrir kosningar, að
smjörið ætti að lækka í verði. —
Undrun manna hefur þó varla staf
að af því, að menn væru út af
fyrir sig svo óvanir verðlagsbreyt
ingum, en yfirleitt hafa breyting-
arnar verið í hina áttina. Það er
þess vegna skiljanlegt, að sumir
héldu, að lækkunin á smjörinu
væri bara kosningabrella, þótt
raunar sé dálítið erfitt að sjá,
hverjum það hefði átt að vera í
hag, því að ekki bauð Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins fram í
kosningunum, en svo heitir stofn-
unin, sem nú hefur lagzt á sömu
sveif og Baksiðan og ákveðið að
láta eta smjörfjallið.
i
lagsins og ákvað að hreyfa sig
meira, og þetta framkvæmdi liann
með því að leggja bílnum sínum
og fara gangandi í vinnuna. En
þá vildi ekki betur til en svo, að
liann sneri sig á ökkla á göngunni
og varð frá vinnu í nokkra daga.
Og þá fannst honum ekki nema
réttmætt, að HÆ-félagið borgaði
vinnutapið.
Baksíðan hefur kjörorð, sem er
svolítið frábrugðið kjörorði HÆ-
manna. Það er: Ájram með smjör-
ið. Baksíðan telur, að með verð-
lækkuninni á smjörinu sé farið inn
á braut, sem sjálfsagt sé að verði
sem fjölförnust. Fyrst unnt er að
lækka smjörið, mundi þá ekki vera
unnt að lækka fleira? Eða þarf
kannski fyrst að hlaðast upp fjall
af vörunni, áður en hún getur
lækkað? Sé svo, vill Baksíðan liér
með gera það að tillögu sinni, að
menn láti nú hlaðast upp mörg
fjöll, hvert öðru myndarlegra: —■
kjötfjöll, liúsafjöll, tólgarfjöll,
jafnvel mjólkurfjöll, og síðan mun
Baksíðan gera það að tillögu sinni,
að þessi fjöll verði etin eða þeim
komið fyrir kattarnef á annan
hátt. Og vonandi verður þá tekið
eins vel undir þær tillögur eins
og tillögurnar um smjörfjallið nú.
Sjálfsagt þykir sumum þessi
ráðabreytni þó vera tvíeggjuð, þótt
hún komi eflaust að þeim notum,
sem til er ætlazt. Það gefur auga
leið, að fóllc kaupir smjör fremur,
þegar það er komið á smjörlíkis-
verð, en hins vegar er engin von
til þess, að menn fáist til að kaupa
smjörlíki á smjörprísum. Ekki er
víst, að HÆ-félaginu svonefnda
líki þessi þróun, því að það hefur
lagt á það kapp, að smjörfjallið
verði sem allra mest. Að því er
HÆ-menn segja, á helzt enginn að
Ieggja sér smjör til munns, — og
samkvæmt kenningum þeirra ætti
smjör því að vera sem allra dýrast
eða jafnvel bannað. Þess vegna er
verðlækkunin á smjörinu geysi-
mikil ,spæling” á HÆ-félagið, eins
og unglingarnir mundu segja. Og
þó er þessi ráðstöfun að nokkru
leyti í anda HÆ-félagsins. Eða hef-
ur ekki kjörorð þess félagsskapar
frá öndverðu verið: Niður með
smjörið?
Baksíðan er út af fyrir sig ekk-
ert á móti HÆ-félaginu, þótt hún
raunar skilji mætavel sjónax-mið
mannsins, sem ætlaði í mál við
félagið. Það stafaði af því, að
hann tók mark á ráðleggingum fé-
—• Það er frú Jónína, Olgeir. Hún þakkar fyrir
lánið á regnhlífinni. Vilt þú fylgja henni
lieim?
— Ég get malað 26 rúður á mínútu!