Alþýðublaðið - 26.06.1966, Blaðsíða 5
Benedikt Gröndal
UM HELGINA
Vandamál okkar -
og margra annarra
ÞaÐ ER skammsýni að kenna ríkisstjórninni einni um vandræði
landbúnaðarins, sem nú valda óróleika í sveitum. Að vissu marki
heíur verið samhengi í landbúnaðarstefnu um langt árabil. Er erfitt
að sjá, að ekki hefði leitt til sömu vandræða,
þótt einhver framsóknarmaður hefði verið ráð-
herra. Hins má einnig minnast, að miklir erf-
iðleikar steðja að landbúnaði svo til allra
landa, og er það mál of stórt til að kenna ein-
stökum ríkisstjórnum um.
Vandinn er í stórum dráttum þessi: Allar
þjóðir hafa heitið að veita bændum sambæri-
leg lífskjör við aðrar stéttir. Til að svo megi
verða, þarf að greiða þeim meira fyrir afurð-
irnar. Þegar búskapurinn verður á þennan
hátt sæmilega arðbær, eykst framleiðslan, og
getur komið til stórfelldrar offramleiðslu. —
Verður þá ýmist að flytja hana úr landi með
útflutningsuppbóíum, lækka afurðaverð innanlands til neytenda til
að auka sölu eða greiða mismuninn úr ríkissjóði.
Ýmsar leiðir eru farnar til að leysa þennan vanda. í Bretlandi
er flutt inn ódýr landbúnaðarvara til að lialda verði hennar til
neytenda niðri. Rikið greiðir uppbætur með innlendu framleiðslunni,
svo að hún seljist á sama verði og hin innflutta. En þær uppbætur
eru miðaðar við takmarkað magn afurða. Ef bændur auka fram-
leiðsluna fram yfir þetta mark, verða þeir sjálfir að bera ábyrgðina
og selja uppbótalaust á frjálsum markaði. í reynd er þetta ekki ó-
svipað því, sem hér hefur gerzt, að útflutningsuppbætur eru tak-
markaðar, en eftir að þeim lýkur, verða bændur sjálfir að taka við
ábyrgðinni. Á þcíta hefur ekki reynt fyrr, og er von að þeir beri
sig illa.
Kjarni málsins er sá, sem Alþýðuflokksmenn hafa bent á, að
einhver stjórn verður að vera á því, hve stefnt er að mikilli fram-
leiðslu. Nú ósk i bændur eftir slíkum ráðstöfunum, en þær hefði
þurft að gera fyrir nokkrum árum. Um það má deila, hver hefði
átt að hafa frumkvæði að slíkri stjórn, bændur sjálfir, framleiðslu-
ráð laudbúnaðarins eða ríkisstjórn.
Svisslendingai eru líklega komnir allra manna lengst í áætlunar-
gerð fyrir landbúnað. Þeir vilja geta framleitt nóg fyrir þjóð sína,
ef þeir einangrast i ófriði eins og 1940—45. Til að tryggja það, reikna
sérfræðingar 8tjó;narinnar út, hve mikinn kaloríufjölda þurfi að
tr.vggja fyrir hvert mannsbarn í landinu, og live mikið þurfi af
hverri tegund landbúnaðarafurða til að ná því marki. Síðan er haft
tilbúið — en ónotað — nægilegt ræktað land til að auka framleiðsl-
una frá því, sem nú er, ef landið einangrast. Allt er þetta reiknað
á óhemju flókinn hátt í nútíma reikningslieilum og endurskoðað
á liverju ári.
Þelta kerfi, sem hefur vakið mikla athygli, sýnir hvað hægt
er að gera til að skapa samræmi milli framleiðslu og markaða,
jafnvel fram í tímann.
í fyrrasumar liittu nokkrir alþingismenn landbúnaðarráðherra
SvissJendinga í Born. Hann flutti yfir þeim forláta ræðu. um ágæti
íslenzkra fornbókmennta, sem hann kunni á góð skil. En hann fórn-
aði höndum, þegar hann var spurður um landbúnaðinn í Sviss, og
sagði, að bændurnir ætluðu sig lifandi áð drepa. Það eiga fleiri
erfitt en Ingólfur Jónsson.
SUMARSKÓR
karla, kvenna og barna
STRIGASKÓR lágir og uppreimaðir
SANDALAR úr leðri og plasti
KASTLJÓS
Framhald af 3. síðu
„Hvernig á að myrða þjóðhöfð
ingja" og „Hvernig á að vinna
ást konu án þess að kvænast'
henni“ og Hvernig er vopnum
og sprengiefni smyglað yfir
landamæri?"
Á aðeins einu ári var varið
um 15 millj. kr. til að þjálfa
um 300 flugumenn frá Kongó
Brazzaville, Swazilandi, Mala-
\vi, Mozambique og Kanaríeyj
um. Nkrumah var því á góðri
leið með að gera Ghana að
„Kúbu Afríku.“
Aðalstöðvar njósíiaþjónúst-
unnar voru í nýtizkulegri
tveggja hæða byggingu, sem að
nafninu til var bækistöð „Hinn
ar þjóðlegu vísindarannsóknar
stofu."
Yfirmaður leyniþjónustunn-
ar var austur-þýzkur sérfræð
ingur, „Jurgen Kruger“ sem
réttu nafni heitir Rogalla. Hann
er 33 ára að aldri og majór í
öryggisþjónustu Ulbrichts.
Hægri hönd hans var Rolf Stoll
mayer, kapteinn úr austur-
þýzku öryggi‘þjónu.stunni, sem
er sérfræðingur í hlerunar- og
míkróljósmyndatækni. Margar
þær upplýsingar sem þeir öfl
uðu sér, fóru áleiðis til Aust
ur-Þýzkalands og þaðan til Sóv
étríkjanna.
Stojlmayer hafði fieppnina
með sér þegar byltingin var
gerð gegn Nkrumah og tókst
að forða sér um borð í þýzkt
flutningaskip. Kruger öðru
nafni Rogalla, var handtekinn
og afleiðingiu var sú að Austur
Þjóðverjar settu alla verzlunar
fulltrúa Ghana í stofufangelsi
svo og 300 Ghanastúdenta, sem
þá voru staddir i Austur-Þýzka
landi. Síðar var Rogalla vís-
að úr landi.
Uppljóstranir nýju stjórnar
innar í Ghana um einræðis
stjórn Nkrumah — eyðslusemi
ein^æðisherrans og splllingu
lians og ekki hvað sízt hinar
nákvæmu áætlanir um að gera
sig að voldugasta manni Afriku
með neðaniarðar- og skemmd
arverkastarf'emi, hafd haft mik
il áhrif í hinum nýfrjálsu ríkj
um blökkumanna.
Þeir hafa komizt að raun um
að „iieimsve1di'hættan“ getur
stafað frá öðrum en hinum
gömlu heimsveldum hvítra.
manna.
„Hin svarta heimsveld;s-
stefna" kann að vera hættu-
legri — ckki sízt þar sem hún
Pússningasandur
Vikurplötur
Einangrunarplast
Seljum allar gerðir af
Pússningasandi heim-
fiuttum og blásnum inn
Þurrkaðar vikurplóoir
og einangrunarplast
Sandsalan við
Elliðavog s.f.
Eiliðavogi 115 sími SOlZð,
Tilboð óskasf
í að byggja vélahús við fyrirhugað póst- og
símahús á Brúarlandi. Útboðsgagna má vitja *
á skrifstofu aðalgjaldkera pósts og síma,
gegn eitt þúsund króna skilatryggingu
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu síma-
tæknideildar, Landssímahúsinu 4. hæð kl.
10 f.h mánudaginn 11. júlí n.k.
Skipatæknifræðingur
óskar eftir atvinnu. — Tilboð sendist í póst-
hólf 577 Reykjavík fyrir 1. júlí.
SÖLTUNARST ÚLK UR
Söltunarstöðin Síldin h.f. Raufarhöfn ósk-
ar eftir söltunarstúlkum.
Fríar ferðir og kauptrygging.
Upplýsingar hjá Síldinni h.f. á Raufarhöfn
eða í síma 50865 Hafnarfirði.
FLOGIÐ STRAX
FARGJALD
|BI GREITT SÍÐAR
Y////S.
í
Verð: 11.500,00 kr. fyrir 19 daga. ////A
Fararstj.: Steinunn Stefánsdóttir '/////
listfræðingur. ££
Hin árlega Eystrasaltsvika verður haldin dagana 9,-18,
júlí í Rostockhéraði, — Við skipulcggjum ferð þang
að sem hér segir:
7. júlí: Flogið til Kaupmannahafnar.
8. júlí: Farið verður til Warnemiinde.
9. —18.júlí: Dvalizt á Eystrasaltsvikunni.
18. —24. júlí: Ferð með langferðabílum um Austur-Þýzka
tand. Komið í Berlín, Dresden og Leipzig.
24. júlí: Farið frá Berlín til Kaupmannahafnar.
25. iúlí: Flogið til íslands.
í Rostockhéraði hittast árlega á Eystrasaltsviku hóp-
ar frá. öllum löndum er liggja að Eystrasalti, auk Nor-
egs ug íslands.
Þar fer fram allskonar skemmti- og fræðslustarfsemi.
Baðstrendur ágætar, loftslagið milt og þægilegt. Þátt-
taka er takmörkuð við ákveðinn hóp.
Hafið samband við okkur fyrir 25. júní n.k.
LAN
I
/////////////////^^^^
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 26. júní...l?66 <$
FERÐASKRIFSTOFA
Laugavegi 54. — Sími 22875 og
SÍMI 22890 BOX 465 REYKJAVÍK