Alþýðublaðið - 26.06.1966, Blaðsíða 12
cwmQA/nwi^
Svaka varð kallinn spældur
i gær, mar. Hann var eítthvað
að væla út af skallaniun, sem
ei' aö koma á hann, og snakka
Utn hármeðul. Þá sagði ég: —
er ekki nema eitt meðal,
sœsn dugir, mar, liað er lím.
Það er vel til fundið, að þeir
menn, sem gæta eiga „harmón
»U“ í borgaralegum samskipt
um, skuli láta séi- svo annt um
raddir sínar í svona (lög)reglu
tcgum norrænum samhljómi.
Þorkell Sigurbjömsson í Vísi
Snjoliustu hugmyndimar,
se*n maður fær, hafa oft þann
galta að maður hefur ekki hug
mynd um til hvers á að nota
fcær,
t gamla daga var hægt að fá
fifót *f hverju fyrir penínga. Nú
«rta vislar komnir í staðinn,
•«
/
R
1
!
EIN er þjóðarskemmtun á land!
hér sem almennastrar hylli nýtur
og eru þá ekki undanskildar dægra
dvalir eins og brennivínsdrykkjur
og ólæti á almannafæri. Þessi
þjóðarskemmtun er rifrildi og
karp um einskis nýta hluti. Ungir
og aldnir, lærðir og ólærðir eru
ævinlega fúsir til þessarar skemmt-
unar, hvenær sem tækifæri gefast.
Og þar sem það er viljinn og fús-
leikinn, sem skapa tækifærin, þá
er aldrei neinn hörgull á þeim.
Hvar sem tvær manneskjur eða
fleii’i liittast, er grundvöllur til
rifrildis, og þótt tölfræðilegar
skýrslur séu ekki fyrir hendi um
það efni, þá er vitað, að drjúgur
hluti allra samfunda er notaður
til orðaskaks og deilna. Sem bet-
ur fer vita ekki aðrir af megin-
liluta þess karps, sem fram fer í
landinu, en aðiljar málsins, — og
þó verða stundum fleiri varir við
það en ætlað er. Öskutunnan hjá
mér er að vísu sjaldan losuð, en
þegar það kemur fyrir, þá er það
ævinlega gert snemma morguns,
löngu fyrir allan kristindóm, en
engu að síður vakna allir í hús-
inu,\úð það, því að öskukarlarnir
rífast ævinlega hástöfum og öskra
hver á annan í sífellu. Og auðvit-
að verður þetta til þess, að ég
fer út í glugga og skammast, og
þar með er fætt enn eitt rifrildi,
jafnvel þótt ég verði að viður-
kenna, að eiginlega er ekki hægt
að ásaka mennina fyrir þetta, því
að þeir eru ekki að gera annað
en stytta sér stundir við vinsæl-
ustu þjóðaríþróttina.
En þrátt fyrir þessu líka út-
færslu rifrildis, þá ná deilur á
vinnustöðum og í heimahúsum
yfirleitt ekki til mjög margra. Allt
Jú, að sjálfsögðu liöfum við liaft sjúklinga með vatn í báðum
hnjám, en aldrei fyrr með kalt vatn í öðru en heitt í hinu!
Þakka yður fyrir að ýta mér í gang!
öðru máli gegnir með það rifrildi,
sem fram fer í blöðunum. Með
því fylgist mikill hluti lands-
manna, og oft blanda furðu marg-
ir sér i leikinn. Af blaðarifrildinu
ber auðvitað mest á pólitíska karp
inu, en magn þess og styrkleiki
stendur í öfugu hlutfalli við tíma
lengdina til næstu kosninga. Nú
eru kosningar nýlega um garð
gengnar, og þess vegna er nokkur
lægð á því sviði, en þeim mun
meira ber á karpi um önnur efni.
í stærsta blaði landsins hefur t.
d. nú um nokkurt skeið verið deilt
hart og af miklum baráttuhita.
um það, hvort konur aki bílum
verr en karlar. Enn virðist langt
í land með að því karpi linni,
jafnvel þótt- það liggi í augum
uppi, að báðir aðilar þeirrar
deilu hafa á réttu að standa, því
að auðvitað aka konur illa, en það
gera karlmenn bara líka.
Það er eftirtektarvert einkenni
á þessu eftirlæti íslendinga, að
því heitari verða deilurnar og því
fleiri taka þátt í þeim, sem til-
efnið er ómerkara. Fyrir kemur,
að fitjað er upp á merkilegum
málum, þótt það sé raunar ekki
algengt, en þá er yfirleitt eins og
allir verði feimnir og forðist aS
leggja orð í belg. Hins vegar geta
menn karpað alveg endalaust um
einskisnýta hluti.
Stundum er talað um skort á
félagslegum rannsóknum hérlend-
is, en sjálfsagt kemur að því inn-
an ekki langs tíma, að slíkar rann
sóknir verði hafnar. Og meðal
fjöjmargra úrlausnarefna, er bíða
á því sviði, er vinsælasta þjóðar-
íþróttin, rifrildið. Það væri t. d.
fróðlegt, að fá úr því skorið, hvort
lögmál það sé óbrigðult, sem sett
var fram hér að framan, að hiti og
þátttaka í deilum standi í öfugu
hlutfalli við gildi þeirra. Eins
væri fróðlegt að fá úr því skorið,
hvort innri sannfæringarhiti sé
þá mestur, er deilurnar gerast
heitastar og háværastar. En því
miður er hætt við, að það fái eng
inn ráðið um aldur, nema sá einn,
er rannsakar lijörtun og nýrun.
MMWWWWWMVWWWMWWWVMWWWWWWWWV
HólamótiÖ
Hólamótið um miðjan júlí I sumar
er mjög um talað og viða.
Þangað mun fólk á þolnum og fallegmn hrossum
þúsundum saman ríða
og embættisskrúða klerkar og knapar skrýðast.
Kátt verður á þeim jólum:
Á sunnudagsmorgun mera og graðhestasýning
og messa í kirkjunni á Hólum.
iMMMMWWWWVMMMWtMWWVWMWWMWWWWWWMWWWV