Alþýðublaðið - 17.07.1966, Blaðsíða 4
Bttstjfirar: Gylfl Grðndal (íb.) og Benedikt GrÖndal. — RltstíSrnarfull.
trtSl: KiBur GuBnaaon. — Símar: 14900-14903 — Auglýstngaafmi: 1490«.
ASsetur AlþýBuhúsiB við Hverflagötu, Keykjavlk. - PrentsmlBJa AlþýSu
bUOain!!. — Aakrlftargjald kr. 93.00 — t lausasðlu kr. B.00 tíntakltt,
Utgefandl AiþýSuflokkuriniL
BARNAVINNAN
ÞAÐ MEGA HEITA árlegir atburðir, að 14—15
ára unglingar rneiðist alvarlega eða láti lífið í slys-
um á vinnustöðum, þar sem böm á þeim aldri ættu
alls ekki að vinna. Þrátt fyrir miklar umræður
virðist ástandið í vinnumálum barna lítið batna.
Sú staðreynd verður ekki véfengd, að á íslandi
eru börn látin vinna margvísleg störf, sem þeim eru
harðlega bönnuð í öðrum löndum. Þrátt fyrir mik-
inn félagslegan þroska, virðist íslendingum ómögu
lagt að skilja þau viðhorf, sem ríkjandi eru í öðrum
löndum. Þar er börnum aðeins leyfð sú vinna,
sem talin er samrýmast uppeldi þeirra, en algeng-
ast er að tryggja þeim vist í sumarbúðum. þegar
þau ekki eru í skólum. Hér á landi er litið á bömin
sem nauðsynlegan vinnukraft, sem þjóðarbúið verði
að hagnýta, hvað sem hollustu eða uppeldishugmynd
um líður.
Síðastliðið vbr afgreiddi Alþingi ný lög um barna
vernd. Voru þar á ferð margvíslegar breytingar til
foóta á því sviði, nema hvað einn þáttur löggjafarinn
iar var óbreytíur. Það var kaflinn um vinnuvernd
barna og unglinga.
Á sínum tíma afgreiddi menntamálanefnd neðii
deildar og síðan deildin öll þennan kafla í nýrri og
foetri mynd. En þá sögðu peningahagsmunirnir til
sín. Hófst andróður gegn frumvarpinu með þeim
árangri, að það náði ekki fram iað ganga fyrr en ári
síðar og þá án nokkurra breytinga á ákvæðum um
vinnu barna.
Þetta mál er íslenzku þjóðinni og sérstaklega al
þingi til háborinnar skammar. Þröng peningasjónar
mið eru látin ráða, en heilbrigðar hugmyndir um
uppeldi og velferð barna eru settar til hliðar.
í þessum efnum verður þjóðin að taka sig á.
Það verður að hefja nýja sókn og brjóta á bak aftur
sérhagsmunamennina, sem standa í vegi fyrir eðlilegri
og mannúðlegri löggjöf um vinnuvernd barna og
unglinga.
1 Um leið og þessi mál eru rædd er ástæða til að
geta þess, sem vel er gert fyrir bömin. Það kom
frapri í svörum við fyrirspum Björgvrns Guðmunds
sorjar í borgarstjóm í síðastliðinni viku, að Reykja
vík veitir 500 unglingum holla atvinnu í vinnuskól
anum og 650 bömum í skólagörðunum. Það er leitt,
að um 100 börn urðu að hverfa frá görðunum, en
samt sem áður er hér um mikið og gott átak að
ræka. Það er ólíkt betra að vita börn sín í vinnu-
skóla en í byggingavinnu eða við uppskipun við
höfnina.
4 .17. júlí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HÚSBYG6JENÐUR
Eftir sumarfríið, um miðjan ágúst,
getum við boðið — auk okkar þraut-
reyndu
HELLU- OO EIRAL-ofna
nýjasta miðstöðvarofninn í Evrópu, J A-Ofninn.
Hann er tengdur á miðju og með fyrirfram stilltum krana á rétta hita-
gjöf eftir stærð ofnsins og útreiknaðri hitaþörf stofunnar.
Látið verkfræðing reikna hitaeining arþörf íbúðarinnar og fáið verðtil-
boð hjá okkur áður en þér festið kaup á miðstöðvarofnum.
h/fOFNASMIÐJAN
Í.NHOIT. lO - BI»KJAV.'.r - ÍSlANO*
SKOLPRÖR
2M>’ 4” og 6” ásamt tilheyrandi fittings, væntan-
legt fyrir mánaðamót.
Pantanir óskast endurnýjaðar.
B YGGIN G AV ÖRUVERZLUN
fsleifur Jónsson hf.
Bolholti 4 símar 36920—26921,
Auglýsingasími Alþýðublaósins er 14906
AMtRítMMIMUMUMMHMMU
Skemmtiferð
Kvenfélagsins
KVENFÉLAG Alþýðu-
flokksins í Reykjavík fer
skemmtiferff á Snæfellsnes
dagana 19. og 20. júlí. Upp-
' lýsingar eru gefnar í símum:
14313, Katrín Kjartansd.,
10488, Aldís Kristjánsd.,
12497, Kristbjörg Eggerts
dóttir.
á krosssötum
★ GÖLLUÐ VARA DREGIN
TIL BAKA.
Kaffikerling hringdi til okkar í
gær, og lét svo ummælt, að betur væri, ef fleiri
fyrirtæki hegðuðu sér í líkingu við O. Johnson
& Kaaber, sem fengu gallaða hráefnissendingu og
draga nú tU baka gölluðu vöruna, sem óviljandi
fór á markað og hætta kaffiframleiðslu unz þeim
á ný hefur borizt fyrsta flokks hráefnl. — Þetta
finnst mér virðingarverð afstaða, sagði kraffikerl
ingin. Vafalaust hefði einhver samviskulaus kaupa
héðinn kosið þann kostinn að láta málið danka, —
biða og sjá hvort kæmu fram einhverjar kvartan-
ir og láta síðan skeika að sköpuðu.
Það er því miður ailt of mikið um
það hér ,að gölluð vara sé seld sem ógölluð og þess
vegna er það eftirtektarvert, þegar fyrirtæki bregð
ast svona við, og mættu vafalaust ýmsir taka þetta
sér til fyrirmyndar.
★ ALLT í ATHUGUN.
Kaffikerlingin hafði fleiri mál á
sinni könnu. Hún kvaðst fyrir rúmlega ári hafa
keypt gólfteppi af stóru fyrirtæki hér í bæ. Tepp-
ið kostaði um þrjátíu þúsund krónur, sem óneitan-
lega er talsverð fjárfesting. Nokkru síðar komu
í ljós miklir framleiðslugallar í teppinu, — það
var allt blettótt. Framleiðandinn, neitar að skipta
um teppi og hefur sagt síðastliðið hálft ár, að
málið væri í athugun úti í Englandi, og hann vissi
ekkert hvenær þeirri athugun lyki. Og fyrr mundi
hann ekkert hafast að. Nú veit ég, hélt kaffikerl-
ingin áfram, að þessi sami framleiðandi hefur
skipt um teppi hjá einhverjum þar sem þessir
sömu gallar höfðu komið fram. Og nú spyr ég
sagði kaffikerlingin að lokum, hvað get ég varnar-
laus neytandi gert til að fá hlut minn réttan í þessu
máli?
★ HYLDJÚPAR HOLUR
OG GJÓTUR.
Þá hefur okkur borizt bréf um
vegamál:
,,Svo er það ennþá um vegina
hérna, ef vegi skyldi kalla. Vegirnir hérna sunnan-
lands hafa verið afleitir í vor eins og öllum er
kunnugt, enda gerðir fyrir helming þeirrar um-
ferðar sem á þeim er, eða tæplega það. Ailt er
víst gert sem hægt er til þess að hægt sé að aka
þessa vegi.
En það er lítið þorp, austan við
Hellisheiði, sem Hveragerði heitir. Það, getur víst
enginn sagt að umferð þar sé svo óskapleg að veg-
irnir þar þurfi að vera í eins aumu ástandi eins
og raun ber vitni. Þar er að vísu ein steypt gata,
en allir aðrir vegir þar eru eins og maður gæti
hugsað sér vegi í gullgrafaraþorpi, sem verið hefir
í eyði í það minnsta 50 ár. Ekki er borið við
að hefla göturnar og holurnar eru hyldjúpar,
ruslahrúgur víða meðfram götunum og alls kyns
drasl. Ekki væri til mikils mælst þó farið væri
fram á að göturnar væru heflaðar í það minnsta
einu sinni í mánuði þannig aö hægt væri að aka
um þær á meira en 3—4km. hraða. <
Vegfarandi.”