Alþýðublaðið - 17.07.1966, Qupperneq 5
Ánægjuleg utanför Alþýöu-
flokksfélaganna í Reykjavík
Dagana 22. júní til 1. júlí efndu
Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík
til skemmtiferðar um Danmörku,
Svíþjóð og Skotland. Þátttaka í
ferðinni var mjög míkil og tókst
hún með ágætum. Njörður P.
Njarðvík fararstjóri, og Þórður
Þorsteinsson á Sæbóli, einn ferða-
langanna, litu inn til okkar fyrir
skömmu, og við inntum þá frétta
af ferð þessari. Urðu þeir vel við
þeirri beiðni.
Hinn 22. júní var flogið frá
Reykjavík til Kaupmannahafnar.
Hópurinn bjó á hótel Absalon í
Helgolandsgade, og komu menn
sér fyrir þar, en um kvöldið fóru
allir í Tívolí og höfðu af mikla
skemmtun.
Morguninn eftir var labbað um
miðborgina m. a. niður Strikið,
hina kunnu verzlunargötu, og fólki
gefinn kostur á að létta örlítið
á pyngjunni. Jónsmessunótt, eða
St. Hans aften eins og Danir kalla
hana, var framundan, og í því til
efni ókum við norður með strönd
Eystrasalts, allt til Helsingjaeyrar,
til að horfa á Jónsmessubál og
fylgjast með hátíðahöldum dags-
ins. Þetta kvöld verða menn róm
antískir, og skemmta sér undir
berum himni. Einn þáttur hátíða
haldanna er sá að galdranornir
eru brenndar á báli, ekki þó alvöru
forynjur heldur tuskubrúður í
nornalíki. Til Kaupmannahafnar
komum við aftur um lágnættið.
Daginn eftir, föstudaginn 24.
júní, var farin heílsdagsferð til
Svíþjóðar. Tókum við okkur far
með ferju til Málmeyjar um
morguninn, en þaðan var ekið rak-
leitt til Lundar. Skoðuðum við
dómkirkjuna og umhverfi hennar,
en ókum síðan aftur til Málmeyj-
ar, og dvöldumst þar hluta úr deg
inum í skemmtigarði einum í góðu
veðri. Búðarferðir féllu alveg nið
ur af þeim sökum, að verzlanir
voru lokaðar vegna Jónsmessuhá-
tíðarinnar. Til Kaupmannahafnar
var komið aftur um 8 leytið, og
var kvöldið óbundið.
Fyrir hádegi á laugardeginum
var frjáls aðferð, en eftir hádegi
skoðuðum við Kaupmannahöfn og
var haldið á sló'ðir íslendinga m.
a. skoðað hús Jóns Sigurðssonar
og stiginn, sem varð Jónasi Hall-
grímssyni að fjörtjóni.
Eftir hádegi á sunnudeginum
var lagt upp í ferð um Norður-
Sjáland. Ókum við fyrst til Helle
röd og skoðuðum Louisianasafnið,
þar eru sýnd málverk eftir danska
20. aldar málara. Að lokinni dvöl
okkar þar héldum við til Helsingja
eyrar og skoðuðum Krónborgar-
kastala. Kvöldverður var snæddur
í Marienlyst, sem er sumardvalar
staður fyrir ferðamenn, einn sá
glæsilegasti í Danmörku.
Á mánudeginum fór hluti hóps
ins að skoða Carlsbergsverksmiðj-
urnar í fylgd með starfsmanni,
sem er kvæntur íslenzkri konu,
Nokkrir af yngstu þátttakendunum.
Njörður Njarðvík, fararstjórj, ræðir við þátt iakendur um borð í Svíþjóðarferjunni,
enda kunni hann noikkurt hrafl
í íslenzku. Um kvöldið fór svo
allur hópurinn á Lorry og borð-
aði kvöldverð.
Þetta kvöld á Lorry varð hið
skemmtilegasta og öllum ógleyman
legt, enda má segja að hópurinn
hafi slegið eign sinni á staðinn.
í matsalnum var öllu snúið við,
komið upp háborði, og skipan öll
eins, eins og verið væri að halda
árshátíð lieima á fróni. Guðni
Þórðarson, forstjóri Sunnu, var
fararstjóri ásamt Nirði, og ákvað
hópurinn að skenkja frú hans, sem
einnig var með í ferðinni, mikla
og fagra blómakörfu sem sjálfur
Þórður blómakóngur á Sæbóli
hafði skreytt. Einnig tók Þórður
að sér að raða fólkinu niður við
matborðið og í þvf sambandi kom
upp skemmtilegur misskilningur
sem þó varð aðeins til að auka
kátinu samkomugesta og gera
kvöldið eftirminnilegra. Þannig
var mál með vexti, að dóttir Guðna
fararstjóra kom til Kaupmanna-
hafnar frá Bretlandi þennan dag,
og var henni að sjálfsögðu boðið
til kvöldverðarins. Þegar svo Þórð
ur ásamt fararstjórum og skyidu-
liði höfðu tekið sér sæti við há-
borðið, komu þjónarnir til Þórðar,
klöppuðu á axlir honum og spurðu
hvort hann væri afinn! Höfðu
þeir fengið þá hugmynd í kollinn,
að eitthvað stórkostlegt væri á
ferðinni, fyrst svo virðuleg borð-
skipan var viðhöfð, og sannfærðust
alveg, þegar fagurlega skreytt
blómakarfan var borin á háborðið.
Og hvílík hitgmynd! Þeir héldu
sumsó, að haldin væri heilög
þrenningarhátíð: dóttir Guðna,
sem reyndar var hvítklædd, var
brúður að þeirra áliti, og í beinu
framhaldi af því voru Guðni og
frú að halda hátíðlegt silfurbrúð-
kaup ög Þórður gamli, afinn, að
halda upp á gullbrúðkaupsdaginn!
Skemmti fólkið sér koriuhglega á
Lorry frám eftir nóttuýog komú
sumir ekki heim á hótelið fyrr en
í dögun.
Næstu tveir dagar voru frjálsir,
og notaði hver þá að eigin vild.
Kvenþjóðin hafði vitanlega mest
gaman af að skoða í búðarglugga,
og Þórður kvaðst óska þeim karl-
mönnum til hamingju, sem ekki
fóru með konum sínum, því hann
og fleiri eiginmenn væru gegnir
upp að hnjám við að elta þær um
borgina þvera og endilanga, og
svo keyptu allar hatta, það var nú
allt og sumt.
Síðla dags hinn 30. júní var flog
ið til Edinborgar, og þar beið flug
vélin eftir hópnum. Um kvöldið
var kíkt í verzlunargluggana til
að undirbúa áhlaupið morguninn
eftir, enda var mikill handagangur
í öskjunni um morguninn, og enn
voru það hattarnir, sem helzt heill
uðu konurnar. Flestir eiginmenn
létu konurnar sigla sinn sjó, enda
reynslunni ríkarj. Einn þeirra, af
inn, lét þó ekki undan síga og
fylgdi í humátt á eftir, en konunnl
líkaði það svona rétt í meðallagi
vei og stuggaði honum út úr verzl-
uninni. Kom þá verzlunarstýran
til skjalanna og tók hann í sína
vörzlu á meðan konan höndlaði
í ró og næði. Fór vel á með afa
gamla og húsráðenda, enda fór aíi
að sýna henni hvernig hann hag
aði sér í útlandinu, m.a. sýndi hann
henni myndir, á hverjum hann
dansaði við nektarmey í Las Veg-
as. Lauk þannig þessari búð.ar-
ferð betur en á horfðist og undu
allir glaðir við sitt.
Þetta kvöld var síðan flogið
heim á leið, og ríkti mikil ánægja
Framhald á 10. síðu.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 17. júlí 1966 ^
i