Alþýðublaðið - 17.08.1966, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 17.08.1966, Qupperneq 2
lieimsfréttir ....siáastlidna nótt CANBERRA: —• Ástralíustjórn hefur ákveðið að hækka fjár- veitingu til landvarna um 34%. Fjármálaráðherrann sagði í dag f sambandi við þessa hækkun, að nauðsynlegt væri að styrkja varnir landsins og aðstoða þau lönd sem Ástralía er í hernaðar bandalagi við. 4.500 Ástralíumenn taka þátt í stríðinu í Suður- Vietnam. MOSKVU: — Rússneskur Gyðingur, Robinovitsj að nafni Og margfaldur milijónamaeringur, hefur verið dæmdur af dóm- stóii í Moskvu fyrir þátttöku í einhverju mesta svindlbraski sem Um getur í rússneskri réttarsögu. Er hann ákærður fyrlr að hafa étolið og selt vefnaðarvöru fyrir nær 20 milljónir ísl. kr. Réttar fiöldin hafa staðið yfir í marga mánuði ,en ekki er upplýst hve áiargir aðilar eru blandaðir í málið. j Rabinovitsj var þekktur í Moskvu sem milljónamæringurinn í Árbatgötu. Hann notfærði sér aðstöðu sína sem tæknilegur for Stjóri fyrir nokkrum vefnaðarverksmiðjum til að koma sér upp kerfi, þannig, að hann gat stolið efnum og klæðnaði og komið þýfinu undan. Hann hafði samstarfsménn víða um laníið sem sáu um að koma þýfinu á markað. HAAF: — 19 þúsund tonna norskt flutningaskip strandaði í gær við Hollandsströnd. Nokkrum klukkustundum síðar var því náð á flot og dregið til Rotterdam. MOSKVA: — Sovétmenn munu fyrir árið 1970 taka í notkun farþegaþotu sem flýgur hraðar en hljóðið og tekur 120 farþega jþotan munfljúga með 2.500 kílómetra hraða á klukkustund. Fram leiðsla á henni er þegar liafin. Heyflarnir verða staðsettir aftar lega á bol flugvélarinnar. STOKKHÓLMUR: — Aftonbladet, málgagn sósíaldemókrata í Stokkhólmi, sagði í gær að íhaldsblaðið Expressen reyndi að villa um fyrir lesendum sínum með þeim ummælum að hin borg •aralcga stjórn Noregs hefði stöðvað verðbólguna í landinu. Aft onbladet segir að samkvæmt hagskýrslum Hagstofu Noregs hefði verð hækkað, jafnmikið á fyrra helmingi þessa árs og allt síðasta ár. AGADIR: — Að minnsta kosti 13 manns drukknuðu og 20 er saknað eftir að fiskibát hvolfdi í AkadirflÖanum við Marokkó í •gær. Báturinn hafði farið í skemmtiferð með 50 manns innanborðs og var á heimleið þegar slysið vildi til. Áttl báturinn þá aðeins tiokkur hundruð metra ófarna að bryggju. Flestlr farþeganna voru Itonur og börn. Orsök þess að bátnum hvolfdi var að nær allir farþegarnir hlupu út í sama borðið um leið og báturinn tók beygju. 18 manns var bjargað frá landi. IÐNSÝNINGIN: Undirbúningur í fullum gangi ALLUR undirbúningur fyrir íðnsýninguna 1966 gengur sam- kvæmt áætluri. Er nú lokið upp setningu sýningarstúka fyrir um 140 sýnendur, sem munu nú taka við stúkum sínum og hefjast handa um skreytingu þeirra og koma sýningarmununum fyrir. Þeir fyrstu eru þegar byrjaðir á því verki. Stærstu sýningarstúkuna heíur Sláturfélag Suðurlands. við Jón Ragnarsson, veitingamann um að annast allar veitingar á sýn ingunni Verða á boðstólum heitir og kaldir réttir, smurt brauð, kaffi og kökur,.öl, gosdrykkir, tób ak o. sv. frv. Athugasemd frá borgarstjóra MINNING: Ottó N. Þorláksson í dag verður gerð frá Fossvogs kapellu útför Ottós N. Þorláksson ar, fyrsta forseta Alþýðusam- Ijands íslands, en liann lézt síð astliðinn þriðjudag, 9. ágúst, 94 ára að aldri. Ottó N. Þorláksson var fæddur 4. cóvember 1871 að Holtakoti í IBiskupstungum. Hann lagði Ottó N. Þorláksson. t snemma fyrir sig sjómennsku og lauk prófi frá Stýrimannaskól anum árið 1895. Frá fyrstu tíð lét liann verkalýðsmál til sín taka og gerðist eindreginn talsmaður ráttinda verkafólks bæði til sjós og lands. Hann var einn aðalhvata maðurinn að stofnun Sjómanna félgasins Bárunnar árð 1894 í Reykjavík, og var hann formaður Sambands Bárufélaganna meðan það var við lýði. . Þegar Alþýðusamband íslands var stofnað árið 1916 varð Ottó N. Þorláksson fyrsti formaður þess og gegndi því starfi í eitt ár, en sæti átti hann í stjórn ASÍ fram til ársins 1926. Verkalýðshreyfingin átti erfitt uppdráttar fyrstu árin og reið því á miklu að þar veldust liæfir menn til forystu; kjörin voru kröpp og baróttan hörð. Ottó N. Þorláksson var einn af forvígis mdnnum íslenzkrar > verkalýðs-t hreyfingar meðan hún var að slíta barnsskónum og að komast yfir erfiðasta hjallann. Hann var því einn af brautryðjendum, sem Framhald á 10. síð.t Hraðað hefu verlð ýmsum fram kvæmdum við Sýningar- og íþrótta höllina i Laugardal vegna Iðnsýn ingarinnar, m.a. hefur verið unn ið að frágangi í anddyri og aðal sal. Ýmislegt verður gert utanhúss til skreytinga og til að vekja at hygli á sýningunni Fyrirhugað er að reisa stóra grind úr stálpípum í grennd við JuwJ og á hún að vera táknræn íyrir iðnaðinn. Hópferðir á sýninguna. Til að auðvelda fólki úti á lands b.vggðinni að komast á sýning- una verða sérstakar hópferðir skipulagðar í því skyni. Mun ferðaskrifstofan Lönd og leiðir ann ast' hópferðir frá flestum hinum stærri kaupstöðum og kauptún um. Þá mun sérstakur strætisvagn fara úr miðborginni á hálftíma fresti með sýningargesti. Auglýsingaspjöld á sýningar- svæðinu. Fyrirtæki, stofnanir og aðrir að ilar, sem ekki taka þátt í sýning unni eiga þess koSt að auglýsa á soiöldum, sehi sett verða upp á sýningarsvæðinu Sp.iöldin munu verða af tveim stærðum, Wz og 3 fermetrar. Iðnsýningarnefnd hefur samið Alþýðublaðinu hefur borizt svo- ’hljóðandi frá borgarstjóranum í Reykjavík: í Alþýðublaðinu sl. sunnudag var varpað fram þeirri spurningu, livort „bæjarstjórnarsamþyk>t væri til fyrir því, að ekki mætti bræða síld í Örfirsey í norðanátt". Engin samþykkt bannar rekstur verksmiðjunnar skilyrðislaust í á- kveðinni vindátt. í tilefni þessarar fyrirspurnar skal það tekið fram, að starfræksla verksmiðjunnar er ekki komin í fullnægjandi horf að mati borgar yfirvalda. Heilbrigðisyfirvöldin telja það skyldu verksmiðjunnar sjálfrar að koma rekstri í slíkt horf að ekki stafi óþæg’ndi af honum, eins og vart hefur orðið öðru hverju í sumar, en jafnhliða hef- ur heilbrigðisnefnd ásamt sér- fræðingum unnið að tillögum tij úrbóta og mun áfram vinna að þeim í samráði við verksmiðju- stjórnina. Ekki get ég látið hiá líða að víkia sérstaklega að öðrum þætti greinarinnar, þar sem því er hald- ið fram, áð blaðinu' hafi ekki tek- \7.i að ná til min ..nokkrar vikur“.: Með því að ég hef enn ekki brugðið mér frá starfi nú í sumar, nema örfáa daga, hef ég ástæðu til að ætla, að tilraunir blaðsins hafi ekki verið mjög alvarlegar. Símarvarzla borgarskrifstofanna tjáir mér í tilefni þessarar grein- ar, að Alþýðublaðið hafi einu sinnl fyrir 1—2 vikum, eftir því sem bezt er vitað, spurt um mig, en ég þá verið bundinn við önnur störf. Hvorki þá né síðar hafi ver ið beðið fyrir nein skilaboð til mín frá blaðinu. Aðrir samstarfs- menn mínir, svo sem staðgenglar, fulltrúi, ritarar eða dyravörður hafa ekki heldur verið beðnir fyrir skilaboð, en daglega fæ ég ýmis konar skilaboð fyrir milligöngu þessara starfsmanna, að svo miklu leyti sem þeir leysa ekki sjálfir úr málunum, sem til úrlausnar koma. Geir Hallgrímsson. ATHS: Alþvðublaðið vill aðeins bæta því hér við, að í rúmlega heila viku hringdi einn af blaða mönnum blaðsins á borgarskrifstof urnar og kynnt.i sig, og bað um að fá að tala við borgarstjóra. Hon- um voru ævinlega gefin þau svör, að borgarstióri „væri ekki við“. Eftir að hafa revnt í heila viku, var enn haldið áfram með nokk- urra daga millibili alllengi, en loks hætt, bar sem árangur varð ekki sem erfiði. Ritstjóri. 2 17. ágúst 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.