Alþýðublaðið - 23.08.1966, Blaðsíða 7
'A.V'V:
>:•• ':••• 'ý
N-
Heimsþing ungra
jafnaðarmanna
í Vínarborg
í byrjun júnímánaðar
sóttu tveir íslendingar 8.
heimsþing IUSY — Al-
þjóðasambands ungra jafn
aðarmanna. Voru það þeir
Karl Steinar Guðnason
ritari SUJ og Örlvgur
Geirsson, framkvæmdastj.
Alþýðuflokksins. Æsku-
lýðssíðan átti viðtal við
Karl Steinar og fer það
hér á eftir:
— Hvað fannst þér eftirtcktar
verðast á þinginu?
— Það að AJþjóðasambandið er
mjög litað ef svo mætti segja.
Gulir og svartir menn eru í meiri
hluta og fer sá meirihluti hraðvax
•andi. Á meðan Alþjóðasamband
ungra kommúnista verður veikara
og veikara hefur IUSY orðið öflug
ra og öflugra. Nú nær IUSY til
allra heimsálfa og er nú lögð
anest 'áherzla á að ná áhrifum hjá
hinum nýfrjálsu þjóðum og Suð
iur-Ameríku. Það kom fram á þing
inu að ekki er alltof auðvelt aff
vera ungur jafnaðarmaður sums
staðar í Suður-Ameríku því víða
eru þeir hundeltir af lögreglu og
öðrum útsendurum ráðandi afla.
—Var styrjöldin í Viet Nam
ekki mikið rædd?
— Jú, vissulega. Voru þingfull
trúar mjög áhyggjufullir um
gang stríðsins, Samþykkt var skel
egg ályktun varðandi Vietnam. í
henni er þess m.a. krafizt að hin
stríðandi öfl hætti vopnaviðskipt
um — setjist við samningaborð
ið og aff þar eigi Viet Cong sinn
fulltrúa.
— Situr forseti IUSY ennþá í
fangelsi?
— Já, og ekki eru líkindi til
að hann verði látinn laus fyrst
um sinn. Eins og kunnugt er þá
ríkir hernaðareinræði í heima-
landi hans, Burma. Fyrir nokkrj
Hér sjást nokkrir fullti;úar á
heimsþingi ungra jafnaffarmanna
í Vínarborg. Þarna voru mættir
um árum var gerð bylting þar.
Þá voru allir helztu forystumenn
jafnaðarmanna handteknir, —
teknir af lífi eða settir í fang
elsi.
Kyi Nyujat var e)rlendis um
þetta leyti en er hann kom heim
tveim árum síðar til að vera við
staddur útför föður síns, var hann
handtekinn. Engin ástæða var gef
in fyrir handtökunni, en af kunn
ugum er talið að herforingjaklík
an hafi álitið hann hættulegan and
stæðing. Fjöldi merkra manná
hefur beitt áhrifum sínum til að
reyna að fá hánn laúsan. Meðal
þeirra eru U Thant, Willy
Brandt. Einar Gerhardsen og fl.
Það er eftirtektarvert að komm
únistar styðja ráðandi öfl í Burma.
— Eru áhrif ungra jafnaðar-
manna frá Norðurlöndum ekki mik
il innan samtakanna?
— Þau er mun meiri en full
trúafjöldi þeirra segir til um. Þ'aff
hefur verið regla síðan IUSY var
stofnað að framkvæmdastjóri sam
takanna sé Norðurlandabúi. Fyrsti
framkvæmdastjóri samtakanna var
t.d. Per Hækkerup, núverandi utan
ríkisráðherra Danmerkur.
Á þinginu í Vínarborg var þó
nokkur slagur um það hvort fram
kvæmdastjórinn ætti að vera Norð
urlandabúi eða ekki. Austurríkis
menn voru manna ákafastir í að
breyta til og höfðu kandidat á reið
um höndum. í fyrstu studdu Norð
menn þann kandidat. Lyktaði þess
um deilum svo, að Daninn Jan
Hækkerup, frændi Per, var kjör
inn framkvæmdastjóri án nokk-
urra mótatkvæða. Stjórn Æskulýðs
sambands ungra jafnaðarmanna á
Norðurlöndum hélt fundi daglega
og ræddu þau mál sem voru á
dagskrá hverju sinni. Árangur
þeirra funda varð sá að Norður
löndin voru ætið sem ein heild
við atkvæðagreiðslur. Ég ræddi
við Jan Hækkerup um að hann
kæmi á þing SUJ sem haldið verð
ur í lok september. Tók hann því
mjög líklega.
—- Hvernig voru starfshættir á
þinginu?
— Þar sem um 300 fuiltrúar
frá 70 þjóðum sóttu þingið var
mjög áríðandi að skipulag þess
væri sem bezt. Það brást heldur
ekki og var þingið ungum jafn
aðarmönnum í Vínarborg til sóma
í þeim efnum.
Tveir fulltrúar frá Sambandi
ungra jafnaffarmanna sátu heiins
þingiff í Vínarborg, þeir Örlygur
Geirsson og Karl Steinar Guffna
son.
Fyrsta daginn ávarpaði borgfr
stjóri Vínar þingið. Þá flutti StiiÚe
Ericson framkvæmdastjóri skýrsjri
sína. Ræðu hans var mjög vel tfeí:
ið og voru miklar umræður uin
hana. Er þingfundi lauk sátu fiill
trúar veizlu forseta Austurríkis,
sem var 1 forystuliði jafnaðar-
manna áður en hann var kjöriin
forseti.
Annan daginn voru almennar
umræður. M.a. talaði einn Kúrdl
en þeir áttu tvo fulltrúa á þinginu.
Framhald á 15. síffu.
ÆSKAN OG LANDIÐ
23. ágúst 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ 'g