Alþýðublaðið - 23.08.1966, Blaðsíða 10
I
A. Þýzkaland sigraði
ísland í tugþraut
Pradel sigraði hlaut 7043 stig-
flestir náðu sínum beztu afrekum
i ,|.
i Austur-Þjóðverjar sigruðu Is-
íendinga með nokkrum yfirburð
Úm í tugþrautarlandskeppninni
um helgina hlutu 14061 stig, en
íslendingar 13428. Yalbjörn Þor
láksson varð fyrir því öhappi í
stangarstökkinu, að meiðast lítil
lega, þannig að hann gat ekki beitt
áór í tveim síðustu greinunum. ís
land var með örlitlar sigurvonir,
ef Vajbjörn hefði ekki meiðst.
Áður en keppnin hófst á laug
ardag flutti Ingi Þorsteinsson, for
maður FRÍ stutta setningarræðu
Hann bauð hina erlendu gesti vel
komna og ræddi þá góðu sam
vinnu, sem ávallt hefði verið milli
FRÍ og austur-þýzka sambandsins.
Ernst Sehmidt fararstjóri Au-Þjóð
verja þakkaði boðið og góðar mót
tökur. Hann bauð íslendingum til
kejppni í Dresden 1967. Síðan voru
þjóðsöngvar landanna leiknir"og
keppnin hófst.
( í heild var viðureignin skemmti
leg og árangur góður, enda var
vej5rið gott, norðangola og bjart
Pradel tók forystu eftir 100 m.
hlaupið, en hann hjjóp á 11 sek.
rétjtum. Hinn ungi og efnilegi Kirst
sigraði í langstökkinu, stökk 7,23
m. og hafði flest stig að tveim
greinum loknum. Hann hélt síðan
forystu í tugþrautinni þar til í
síðustu grein, að Pradel fór fram
úr og sigraði með 7043 stigum.
Aftur á móti náði Kirst sínum
bezta 'árangri í tugþraut og fór í
fyrsta sinn yfir 7000 stig eða 7018.
Kjartan Guðjónsson varð þriðji
og náði sínum bezta árangri 6933
stigum. Hann átti bezt áður 6703
stig frá 1964. Kjartan er greini
lega í mikilli framför sérstaklega
í hlaupunum. Hann náði sínum
bezta tíma í 400 m. hlaupinu, 52,3
sek. Við höfum áður skýrt frá
meiðslum Valbjarnar, en miðað
við hans fyrri afrek er líkjegt að
hann hefði fengið ca. 7100 stig,
en til þess hefði hann þurft að
kasta spjóti rúma 58 metra og
hlaupa 1500 m. á 4:56.0, sem er
mjög líklegt. Ólafur Guðmunds
son náði sínum bezta árangri í tug
þraut og einnig Jón og Erlendur.
í heild fór keppnin hið bezta
fram og áhorfendur voru allmarg
ir. "
ÚRSLIT:
Sigfried Pradel, A-Þýzkalandi, 7-
043 stig. (11,0 — 6,68 — 14,15 —
1,65 — 50,2 — 14,8 — 44,24 —
3,90 - 49,36 — 5:06,9)
Joachim Kirst, A-Þýzkalandi 7018
stig, (11,1 — 7,23 — 14,49 - 1,97
- 53,1 - 16,7 — 41,26 — 3,80 -
54,00 — 5:27,4)
Kjartan Guðjónsson ísl. 6933
stig, (11,4 — 6,97 — 14,37 — 1,88
- 52,3 — 15,5 - 38,25 - 3,50
- 52,31 — 4:58,4)
Axel Richter A-Þýzkalandi 6600
stig, (11,7 — 6,52 — 13,07 - 1,79
- 55,1 — 16,3 - 40,65 — 3,80 -
52,83 — 4:51,5)
Ólafur Guðmundsson ísl. 6495
stig, (11,2 — 7,12 — 10,74 - 1,73
- 50,5 - 17,5 — 30,68 - 3,20 -
53,31 - 4:27,4)
Val'björn Þorláksson ísl. 6420
stig, (11,4 — 6,66 — 13,04 - 1,76
- 50,6 — 15,2 — 38,41 — 4,40
- 39,47 - 000 —
Auk keppninnar var tugþraut
in einnig keppni um íslandsmeist
aratitilinn. Kjartan varð íslands
meistari, Ólafur annar og Valbjörn
þriðji. Fjórði í greininni varð Jón
Þ. Ólafsson, ÍR, með 5938 stig
11,5 — 6,60 - 12,80 — 2,00 - 57,8
17.4 - 40,29 - 3,00 — 51.55 — 0)
Erlendur Valdimarsson ÍR, hlaut
5600 stig (12,2 — 6,18 — 13,84 -
1,79 — 59,6 — 20,4 — 43,64 —
3.20 — 36.84 - 5:06,9) —
4x800 m. boðhlaup.
íslandsmeistari Sveit KR, 7:53,8
mín. fsl. met, í sveitinni voru
steinn Þorsteinsson, Agnar Levý
Þórarinn Ragnarsson og Halldór
Guðbjörnsson. Gamla metið átti
Framhald á 11. síðu
Víðbragðið í 1500 m. hlaupinu. næst Ijósmyndaranuum er Ólafur Guðmundsson. sem sigraði í hlaupinu.
Verðlaunaafhending. sigurvegari er Pradel, annar varð Kirst og
þriðji Kjartan Guðjónsson. Lengst til vinstri er Ernst Schmidt, far-
arstjóri Austur-Þjóðverjanna og virðir fyrir sér bikarinn, sem sig-
urvegararnir hlutu til eignar.
SIGRÚN VARÐ MEISTARI í FIMMTAR-
ÞRAUT EN LILJA SETTIMET í 80 M. GR.
Fimmtarþraut kvennameistara-
mótsins var háð í sambandi við
tugþrautarkeppnina um helgina
Keppnin var skemmtileg, og lauk
með sigri Sigrúnar Sæmundsdótt
ur, HSÞ, sem náði sínum bezta
árangri, 3263 stigum. Met Sigríðar
Sigurðardóttur ÍR, er 3532 stig.
Sigrún setti m.a. þingeyskt met
í hástökki, stökk Í.50 m.
Lilja Sigurðardóttir HSÞ varð
önnur en setti íslenzkt met i 80
m, grindahlaupi, hljóp á 12,7 sek.
sem er 1/10. úr sek. betra en
gamla metið, sem Sigríður Sigurð
ardóttir átti. Lilja hljóp mjög fall
ega og getur þó bætt þetta afrek
allverulega.
Úrslit:
íslandsmeistari Sigrún Sæmunds
dóttir HSÞ, 3263 stiig, (80 m. gr.hi.
14,0 sek. — kúluvarp 7,35 -— há
stökk 1,50 — langstökk 4,64 —
200 m. hlaup 29,0 sek.)
Lilja Sigurðardóttir HSÞ 3196
stig, (12,7 - 7,21 - 1,25 - 4,73
— 27,9)
Ólöf Halldórsdóttir HSK 2918
stig, (15,1 — 8,43 — 1,35 - 4,27
— 29,8)
Guðrún Guðbjartsdóttir HSK
2884 stig, ( 15,3 - 1,30 - 6,84 -
— 4,61 - 28,6)
Kefhnkingar voru heppnir að
sigry. Þrótt í Njarðvíkum á sunnu-
daginn. Þeir skoruðu eina mark
leiksins rétt fyrir leikslok. Þar
með má segja að Þróttur hafi enga
möguleika á áframhaldandi veru
í I. deiid. Það var Karl Hermanns-
son, sem skoraði mark ÍBK. Nán-
ar á morgun.
Frjálsíþróttamót í
Laugardal í kvöld
í kvöld kl. 8 hefst á Laugardals
vellinum frjálsíþróttamót með þátt
töku þýzku tugþrautarmannanna
og Kanadamannsins Hylke van der
Wal ásamt flestum beztu frjáls
íþróttamanna okkar.
Keppt verður í eftirtöldum grein
um: 100, 200, 400 og 800 m, ihlaup
um, 11 m. grindahlaupi, 1500 m.
hindrunarhlaupi, 1000 m. boð-
hlaupi, 200 m. h-laupi sveina, 100
m. hlaupi kvenna, kringlukasti
kúiuvarpi, hástökki og langstökki.
Búast má við skemmtilegri
keppni í öllum greinum.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ