Alþýðublaðið - 03.09.1966, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 03.09.1966, Qupperneq 4
Ritatjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — RltstjórnaríuU- trúi: EiBur GuBnason. - Símar: 14900-14903 — Auglýalngasimi: 1490«. ASaetur AlþýBuhúslð víS Hverflsgötu, Keykjavik. — Pr*otsmiSja AlþýOu blaCsins. — Askriftargjaid kr. 95.00 — X lausásölu kr. 7,00 elr.takKJ. Ctgefandl AlþýBunokkurinH. SAMGÖNGUR ÞAÐ ER mikið byggt um allt land. Hvarvetna má sjá hús í smíðum og hvers konar önnur mannvirki reist. Þessar gífurlegu framkvæmdir eru í senn glæsilegt einkenni okkar samtíðar og orsök verð- bólgunnar, sem á meginþátt í flestum erfiðleikum efnahagsmála í dag. Samgöngur eru einkenni bættra lífskjara. Fátækt- in fjötrar manninn við vinnustað og heimili. Jafn- skjótt og efni leyfa, brýst útþráin fram og fólk leit- ar til annara byggða til að sjá og heyra, hvernig þar er umhorfs. Þess vegna mæðir mjög á sam- göngutækjum í þjóðlífi, þar sem lífskjörin eru að taka stakkaskiptum, eins og gerzt hefur á íslandi undanfarin ár Samgöngumál á ísiandi taka stökk fram um veg á .hiverju ári. Framkvæmdir við hafnir, vegi og flug- velli nema 3-400 milljónum króna á ári, og er það mikið átak. En hvergi nærri nægilegt. k ' Islendingar eru að komast í sjálfheldu í þessum ,;málum. Þeir kaupa þúsundir bíla á ári hverju, svo ;að fáar þjóðir eiga meira af þeim ágætu tækjum, en /vegirnir eru engan veginn í samræmi við bílakost- inn. Þeir kaupa fiölda stórra báta á ári hverju, setja heimsmet í síldveiðum hvernig sem á er litið, en hafn ir eru engan veginn í samræmi við hin nýju skip. Þær eru flestar gerðar fyrir 30-100 tonna báta Og Islendingar kaupa þotur og skrúfuþotur til að kom- ast hratt og þægilega um himingeiminn, en verða að lenda á malarvöllum, þar sem steinkastið getur stórskemmt vélarnar. Þessi vandi, að tækin eru fullkomnari en sú að- staða, sem til er fyrir þau, er hættulegur. Hann leiðir tii þess, að bátar, bílar og flugvélar geta skemmzt og siitnað meir en ella og þjóðin tapar á þann hátt miklum verðmætum. Þess vegna er ó- hjákvæmilegt að stefna hratt að því, að hafnir séu í samræmi við flotann, að ivegir séu í samræmi við bílakostinn og flugvellir í samræmi við flugvélarn- ar. Þetta kostar mikið fé, og er án efa ekki um ó- notaðar fjármagnslindir að ræða í þessu landi hinna verðubólgumyndandi framkvæmda. Einhverjir munu því finna fyrir þessum málum, en þörfin er svo brýn, að óhugsandi er að gera ekki nýtt átak á þessu sviði. íslendingar eru í þeirri aðstöðu, að þá langar til öð gera margt og þeir telja knýjandi nauðsyn á margháttuðum framkvæmdum. Vandi stjórnmál- ,-anna er að velia og hafna eða fresta. í þeim efnum gera samgöngurnar miklar kröfur, því þær eru í .serpi, nauðsyn fyrir framleiðsluna og þáttur í þeim lífskiörum, sem stefnt er að. 4 3. sepember 1%6 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ INNIHEIDUR OLL HELZTU VÍIMIii HOll 00 ER lliA 600 f krossgötum ★ VANMAT Á HLUTUNUM. Okkur hefur borizt svoliljóðandi bréf: — „Ég las hina ágætu predikun dr. Jakobs Jónssonar í Alþýðublaöinu í dag, (28./8.) og vakti athygli mína frásögn hans um barnið, sem hélt á blóminu og sá fyrst og fremst verðgildi þess í peningum, en ekki fegurð þess og yndisleika. Frásögn prestsins minnti mig á atvik, sem mér var sagt frá fyrir nokkrum árum erlendis. Ég kom eitt sinn sem oftar til vinar míns erlendis i stórborg einni, sem verið hafði sendi- herra íslands erlendis. Átti hann lítið hús með sérlega fallegum slcrautgarði bak við húsið. Var það yndislegur reitur, sem hinn virðulegi embætt- ismaður hafði lagt mikla alúð við og ótti þar mörg handtök. Dáðist ég jafnan að þessum fagra reit. Hafði sendiherrann yndi af að gefa konum sér- staklega, því þær kunna oft betur að meta feg- urð blómanna en við karlmennirnir — blóm í far- arnesti. í umrætt skipti sagði sendiherr- ann mér að stórútgerðarmaður einn íslenzkur hefði þá nýlega heimsótt sig og bauð hann gesti sín- um út í skrautgarðinn, og það fyrsta, sem útgerð- armaðurinn sagði var, að þessi garður væri nokk- urra tugþúsunda króna virði, væri hann staðsett- ur á íslandi. Á fegurð garðsins minntist hann ekki. Sendilierranum sárnaði þetta mat á þessum fagra bletti, enda fór útgerðarmaðurinn þaðan án þess að fá blóm í hnappagatið. ★ ALLT METIÐ TIL FJÁR. \ En saga prestsins af litlu telp- unni og saga mín, eru mjög nú á dögum sígilt. dæmi hjá okkur íslendingum um það, að verðgildi flestra hluta er metið til peningaverðs, en síður litið á hina hliðina, sem gefur lífinu mest gildi. Það er að kunna fyrst og fremst að meta yndisleik hlutanna, en hugsa miklu síður um hitt: Hvað get ég haft upp úr því að selja hlutina? Á þessu þyrfti að verða höfuð- breyting, ef þjóðin vill lifa virkilegu menningar- lífi í landinu.” ðjorn Sveinbjörnsson hæstaréttarlögmaður Lögfræðiskrifstofa Sambandshúsinu 3. hæð. Símar: 12343 og 23338. Hnnsson b* I.ÖGFRÐISKRIFSTOFA Tilboð óskasf í nokkrar vörubifreiðir og vörubifreiða- grindur er verða sýndar á vélasvæði ís- lenzkra aðalverktaka á Keflaívíkurflugvelli naánudaginn 5. sept. kl. 1—3. Tilboðin verða opnuð á afgreiðslu vorri á Keflavíkurflugvelli kl. 5 sani'a dag. Sölunefnd varaarliðseigna. Sölvhólsgata 4. (Sambandshúsinu) Símar: 23338 og 12343. Auglýsingasími Alþýðublaðsins er 14906

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.