Alþýðublaðið - 03.09.1966, Síða 6

Alþýðublaðið - 03.09.1966, Síða 6
IÐNAÐUR OG VIÐSKIPTI Námskeið fyrir kennara Námskynning og starfsfræðsla Á UNDANFÖRNUM árum hafa ýmsir aðilar lálið svo sem hags- munír iðnaðar og verzlunar væru að mörgu leyti ólíkir og reynt í því sambandi að ala á tortryggni miiii þessara atvinnugreina og þeirra, sem þær stunda. Þvi hef- ur verið haldið fram, að stefna ríkisstjórnarinnar í viðskiptamál- um væri í þágu þeirra, sem stunda viðskipti, en andstæð hags- munum iðnaðarins. Hefur hér verið átt við hvort tveggja, annars vegar þá stefnu ríkisstjórnarinn- ar að gera innflutning til lands- ins sem frjálsastan og vöruúrval á íslenzkum markaði sem fjöl- breyttast og hins vegar þá stefnu hennar að lækka smám saman tolla. Það er þó mesti misskilningur, að slík stefna í viðskipta- og tolla- málum sé einvörðungu hagsmuna- mál verzlunarstéttarinnar. Iðn- rekendur og iðnverkamenn muna eflaust þá tíð, þegar innflutnings leyfi þurfti fyrir flestum erlend- um hráefnum og stöðugir erfið- leikar voru á því að fá þau vegna gjaldeyrisskorts. Nú er innflutn- ingur hráefnaiðnaðarins yfirleitt frjáls. Það hefur haft mikla þýð- ingu'fyrir þróun og eflingu iðnað- arins. Og ekki má gleyma því, að jafnframt því, sem tollar á full- unnum vörum hafa lækkað, hafa tollar á hráefnum og vélum einn- ig íækkað. Ráðstafanirnar til aukins inn- flutningsfrelsis hafa auðvitað fyrst og fremst verið gerðar í þágn r.evtandans, til þess að hann eigk kost á sem fjölbreyttustum Gylfi Þ. Gíslason. og beztum vörum og til þess að auka samkeppni á markaðnum og stuðla þannig að sem lægstu vöruverði. Þetta hefur einnig leitt til eflingar hvers konar viðskipta, þar eð aukinn innflutningur og aukin fjölbreytni á því sviði eyk- ur veltu verzlunarinnar og þeirra greina, semj tengdar eru henni. En innflútningsfrelsið hefur einnig auðveldað mjög starfsemi iðnaðarins og stuðlað að því, að hann hafi getað aflað sér ódýr- ari hráefna en áður. Það er þess vegna skiljanlegt, að ekki aðeins forustumenn við- skiptastéttanna, heldur einnig forustumenn iðnstéttanna hafi eindregið stutt þá stefnu ríkis- stjórnarinnar, að hafa innflutning til landsins sem frjálsastan. Milli þessara aðila hefur í raun og veru ekki verið neinn hagsmuna- árekstur í þessu tilliti. Það hafa verið sameiginlegir hagsmunir ís- lenzkra neytenda og þeirra, sem starfa að viðskiptum og iðnaði, að framfylgja stefnu innflutnings- frelsisins. Ekki fá orð hafa fallið um það á undanförnum árum, að vegna stefnu rikisstjórnarinnar í viðskiptamálum eigi íslenzkur iðnaður í vök að verjast. Sem flestir ættu að heimsækja iðn- sýninguna, sem nú stendúr yfir í Reykjavík, til þess að ganga úr skugga um, hvað hæft sé í þessu. Iðnsýningin er að öllu leyti stór- glæsileg og íslenzkum iðnaði, ís- lenzkum iðnrekendum og íslenzk- um iðnverkamönnum, til hins mesta sóma. íslenzkur iðnaður er sannarlega ekki á fallanda fæti. Iðnsýninein er ljós vottur þess, að íslenzkur iðnaður er í sókn, hann er styrkari stoð í íslenzku efnahagslífi en nokkru sinni fyrr og þjónar íslenzkum neytendum betur en hann hefur nokkurn tíma gert áður. GARÐAR VERÐLAUNAÐIRI KOPAVOGI EINS og undanfarin ár, hefur bæjarstjórn Kópavogs og Lions- og Rotaryklúbbar Kópavogs veitt viðurkenningu fyrir fegurstu garða í Kópavogi á þessu ári. í dómnefnd áttu sæti af hálfu bæjarins. þeir: Hermann Lund- holm, garðvrkjuráðunautur, Pétur Guðmundsson, heilbrigðisfulltrúi og Sigurbjartur Jóhannesson byggingafulltrúi. Af hálfu Lions klúbbs Kópavogs og Rótaryklúbbs- ins í Kópavogi: Ingibergur Sæ- mundsson yfirlögregluþjónn og Johan Shröder garðyrkjumaður. Hinn 26. ágúst sl. bauð bæjar- stjórþ þeim sem viðurkenningu hlutú að þessu sinni til kaffi- drykkju í Félagsheimili Kópavogs. Hjálpiar Ólafsson bæjarstjóri lýsti j niðurstöðum dómnefndar og afhe|iti verðlaun og viðurkenning- arskjöl bæjarins. Heiðursverðlaun bæjarstjórnar hlutu hjónin Jak- obíná og Johan Schröder að Birki hlíð Ivið Nýbýlaveg fyrir langt og árangursríkt brautryðjendastarf og garðrækt ög skógrækt í Kópa vogi; Þau hjónin hafa búið í Kópdvogi um þrjá áratugi. Fyrjr fegursta garð í Austurbæ afhenti sr. 'Gunnar Árnason form. Rotary-klúbbsins sérstaka viður- kenningu hjónunum frú Guðrúni Guðmundsdóttur og Kolbeini Kol- beinssyni, Reynihvammi 40, og form. Lions-klúbbsins Ingibergur Sæmundsson færði þeim systrum Sigríði og Kristrúnu Bjarnadætr- um sérstaka viðurkenningu fyrir garðinn að Þinghólsbraut 59, sem fegursta garð í Vesturbæ. Þá hlutu hjónin frú Óþ'na G. Sigurðardóttir og Dagur Daniels- son og frú Alda Sófusdóttir og Þorsteinn Jónsson, Álfhólsvegi 82 heiðursskjöl fyrir sérstaka snyrti- mennsku, svo og hjónin frú Hrefna Maríasdóttir og Björn Gíslason, Melgerði 34. Bæjarstjóri gat þess, að bær- inn hefði tekið miklum stakka- skiptum á undanförnum árum, gróðurblettum fari ört fjölgandi. Þótti honum sjálfsagt að halda á- fram að örva íbúana til átaka í þessum efnum með því að vekja athygli á þeim görðum, sem skör- uðu fram úr og þakka eigendum þeirra sérstaklega. Að lokum sýndi Kristinn Guð- steinsson garðyrkjufræðingur fagr ar litskuggamyndir af erlendum og innlendum jurtum, sem hér eru ræktaðar í görðum. Var gerð- ur góður rómur að myndum hans og fróðleik. Vinnuvélar tll leigu. I.eigjurn út. pússninga-steypu- hrærivélar og hjólbörur. Rafknúnir grjót- og múrhamrar með borum og fleygum. Steinborvélar — Víbratorar. Vatnsdælur o.m.fl. LE^GAN StF. Sími 23480. Pu ngasandm Vjk niötur Ein trrunarpiast Seljum allar gerðir af pússningasandi heim- fluttum og blásnum inn Þurri'aðar vikurplötur og einangrunarplast. SANDSALAN við ELLIÐAVOG S.F. Elliðavogi 115, sími 10120 Rvík, - GbG Fræðslumálaskrifstofan gengst fyrir nokkrum námskeiðum fyrir kennara í þessum mánuði. Nám- skeið fyrir dönskukennara ög söng- og tónlistarkennara hófust 1. sept ember en á mánudag hefjast nám skeið fyrir kennara í íslenzku, stærðfræði, eðlrsfræði, félagsfræði og starfsfræðslu. Námskeiðin fara 1 fram í Kennaraskóla íslands. Nám skeið fyrir íslenzkukennara stend- ur tii 16. september og fer ein göngu fram á morgnana. Er fjall að um fjesta þætti móðurmáls kennslu og bókmenntir, fornar og nvjar, skýrðar af kunnáttumönn um. Námskeið fyrir stærðfræði- og eðlisfræðikennara tekur m.a. til meðferðar það, sem almennt er nú kallað ,,ný stærðfræði", en þar mun átt við ný viðhorf til reikn ingskennslu, nýjar aðferðir og að bví er talið er, fljótvirkari við kennslu þessarar greinar. Grund ''aliarhugmyndin um þessi nýju vinnubrögð eru þó ævafornar, en ^afa nú verið endurvaktar og þær færðar í nýtízkulegt form. Erlend !s telja skólamenn engin tvímæli ~ að aðferðin sé afbraeðs góð — "n höfuðvandinn virðist vera í hví fólginn, að kenna foreldrum com lært hafa gömlu aðferðina, •'ossa nýju, svo að bau aeti leið v,o!nt börnum sínum með heima ”!nnu, Af þeim sökum Hettur blaða "’onni í hug, að foreldrar hefðu ""man af að glugga ' bessi nviu ‘■’-mfii 0g bendir á bók eftir Guð mund Arnlaugsson, rektor: Tö]ur ~a mengi. Námskeið í starfsfræðslu og fé Uiesfræði er hið þriðja sinnar teg undar. Þar verður fjallað um at "'nnuvegi landsmanna, atvinnu- sögu og þróun verkmenningar og menntunarleiðir. Á námskeiðinu "«rður kynnt ný kennslubók, Star rcfraeði, eftir ICristin Biörnsson ó'fræðing og Stefán Ólaf Jóns ~on, námsstjóra. Á fyrri námskeiðum hafa kennt ‘veir Danir og einn Norðmaður en í þetta sinn verður aðalkenn ari sænsk kona, frú Margareta Vestin, skrifstofustjóri sænsku '"æðslumálaskrifstofunnar. Hún w sérmenntuð á þessu sviði og hef ”r kennt starfsfræðslu í Noregi Danmörku auk síns heima. Fréttamaður náði snögvast tali " Stefáni Ólafi og innti hann nán eftir tilhögun ög tilgangi nám -veiðsins. Stefán kvað námskeið ’ ”=si byggð þannig upp, að þeir -°m sæktu þrjú námske’ð hefðu Kar með hlotið 120 kennslustund ' • í starfsfræðslu og félagsfræð m. Gerði hann sér vonir um, að ‘mskeiðin yrðu viðurkennd sem " a.mhaldsnám er veitti réttindi til '--'nnslu í þessum gre'num, skv. ' -avtingu á námskrá fvrir nem -”dur á fræðsluskvidualdri er ’-'mður á um upotöku þessarar 'msgreinar á skv!d”«rHfli. Stetán •’iðst vilja undirs't-iVn nauðsvn S"s.s að flétta þessar -Hr»r greinar ~man, þjóðfélagKfVvpí oe leið ' "íni'ngar um náms- oz stöðuval en þetta væru í raun tvær grein ar á sama stofni. „Starfsfræðslan er tvíþætt sagði Stefán, „Þjóðfélagsfræði, sem byggist á almennum upplýsingum um samfélagið, menntunar- og starfsleiðir, og svo einstaklings bundnar ráðleggingar, sem ýmist eru almenns eðlis eða að um þær fjalla sálfræðingar eða aðrir sér fróðir menn.“ Stefán lýsti ánægju sinni með fundi sína með skólafólki, þar sem hann hefur kynnt náms- og starfs möguleika. Kvað hann tvímæla laust þörf fyrir slíkt starf á öll um skólastigum, en það hafi kynn ingarferðir hans í Menntaskóla sannfært sig um. Taldi liann, að í náinni framtíð yrði brýn þörf á sérstakri stofnun, sem tæki að sér leiðbeiningar fyrir fólk almennt sem af ýmsum ástæðum þyrftu á slíkri hjálp að halda. Varðandi undirbúning námskeið anna sagði Stefán, að hann hefði leitað til fjölmargra fyrirtækja og stofnana í sambandi við væntan iegar heimsóknir þátttakenda þang að. Hefði málaleitan sinni hvar vetna verið tekið með afbrigðum vel, en það bæri vott um skiln ing og fómfýsi í þágu þess mál efnis. sem námskeiðin þjóna. ipnTsýningin wm Skoðið sýningar stúku okkar nr. 204 Úrval af: Prjónakjólum Dömupeysum Herrapeysum Barnapeysmn. ALLT NÝ MODEL Anna Þórðardóítir Mm Ármúla 5 Sími 38172 £ 3. sepember 1966 - ALÞÝÐUBLAOIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.