Alþýðublaðið - 03.09.1966, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 03.09.1966, Blaðsíða 11
fcjRitsfiórS Örn Eidsson SOVEIRÍKIN HLUTU FYRSTA GULLIÐ I KARLAGREI Tveir stukku yfir 5 metra í stangarstökkinu i gær í DAG var keppt til úrslita í fimm greinum á EM í frjálsum í- þróttum.AusturÞýzkaland jlalía, Frakkland, Póllánd og Sovétríkin hlutu gullverðlaunin og Ítalía og Sovétríkin sín fyrstu í karlagrein- um. Nordwig, Austur-Þýzkalandi varð meistari í stangarstökki og setti meistaramóts met, 5,10 m. Hann er Evrópumethafi með 5,23 m. og sigur hans kom ekki á ó- vart. Aftur á móti reiknuðu marg ir með Grikkjanum Papanicolaou í öðru sæti. ' Eoberto Frinolli, Ítalíu varði meistaratitil landa síns Morale í 400 m. grindahlaupi og hljóp á 49,8 sek. Hann var eini keppand- inn, sem náði betri tíma en 50 sek. - og var öruggur sigurvegari. Ungur Vestur-Þjóðverji Loschdor fer varð annar. Hinn þeldökki Frakki Roger Bambuck, sem flestir reiknuðu með sigurvegara í 100 m. hlaupi en tapaði fyrir Pólverjanum Maniak, tókst að sigra annan Pól- verja Dudziak, í 200 m. hlaupi og hljóp á 20,9 sek. Janis Lusis, Sovétríkjunum var hinn öruggi sigurvegari í spjót- kasti og vann þar með fyrstu gull verðlaun Sovétríkjanna í karla- greinum. Rússum finnst þetta heldur mögur uppskera ÞRÍÞRAUT F.R.Í. OG ÆSKUNNAR AÐ HEFJAST í vor kynnti útbreiðslunefnd Frálsíþróttasambands íslands þrí- þraut fyrir skólabörn, sem hún f samvinnu við Barnablaðið Æsk- una og fleiri aðila gengst fyrir. Reglugerð um keppnina ásamt ýmsum upplýsingum hana varð- andi var send öllum skólastjór- um og íþróttakennurum landsins, svo og ungmenna- og íþróttafé- lögum. Voru íþróttakennarar beðn ir að kenna nemendum sínum und irstöðuatriði í keppnisgreinum þrautarinnar, 60 m. hlaupi há- stökki og knattkasti. Margir í- þróttakennarar brugðust vel við þessari málaleitan. Þá birti Barna blaöið Æskan kennsluþætti fyrir þá, sem ekki nutu íþróttakennslu. Ætlunin var að börnin hefðu síð- an sumarið til að undirbúa sig fyrir keppnina. Fréttir hafa bor- izt um að mörg hafa æft af kappi ýmist ein eða undir leiðsögn. Með- al annars hefur brautin verið æfð í sumarbúðum víða um land. Undankeppni stendur yfir 1. sept. — 31. október n.k. Enn hef- ur öllum íþróttakennurum verið skrifað og þeir beðnir að hvetja og aðstoða sína nemendur. Að- stöðu er víðast bvar hægt að finna fyrir keppnina. Markmið útbreiðslunefndar F.R.Í. með þessari keppni er að örva áhuga skólaæskunnar fyrir íþróttum og gefa íþróttakennurum kost á fjölbreytni í starfi sínu. Keppni þessi er mikið átak og ein fjölmennasta íþróttakeppni hér- lendis næst Samnorrænu sund- keppninni og Landsgöngunni á skíðum. Er það von útbreiðslu- nefndar, að vel takist með fram- kvæmdina og treystir þar mest á dugnað og áhuga íþróttakennar- anna. Þar sem ekki eru starfandi íþrótta kennarar, treystir nefndin skóla- stjórum og almennum kennurum til að aðstoða börnin. Að lokum þakkar útbreiðslunefnd öllum þeim aðilum, sem hingað til hafa stutt þetta framtak. Ber þar að nefna Barnablaðið Æskuna, stjórn Sambands íslenzkra barnakennara, stjórn íþróttakennarafélags fs- lands, dagblöðin öll, útvarpið og síðast en ekki sízt, íþróttafulltrúa ríkisins, Þorstein Einarsson. Þeir sem þurfa á frekari upplýsingum að halda, eru beðnir að snúa sér til formanns útbreiðslunefndar F.R í., Sigurðar Helgasonar, Laug argerðisskóla, Snæfellsnesi, eða íþróttafulltrúa. Frambald á 15. síðu. Pólsku dömurnar eru ósigrandi í spretthlaupum. Klobukowska sigraði í 100 m. hlaupi og Kirzen- stein varð önnur, en í 200 m. hlaup inu í gær snerist þetta við. Kirz- enstein hljóp á 23,1 sek., sem er meistaramótsmet. Janus Lusis, va verðlaun Rússa á EM. fyrstu gull- karlagreinum Roberto Frinolli, Italíu: 49,8 sek. í 400 m. meistarapeningur ítala. grindahlaupii fyrsti ALLGÓÐUR ÁRANGUR Á UNGLINGAMÖTI R.VÍKUR Unglingameistaramót Reykjavík- ur í frjálsum íþróttum hófst á Laugardalsvellinum í fyrrakvöld og lauk í gær. Þátttaka var sæmi- leg, en árangur misjafn. Ólafur Guðmundsson, KR sigraði í þrem greinum og varð annar í þeirri þriðju, auk þess var hann í sig- ursveit KR í 100 m. hlaupi. Ólaf- ur stökk 7,01 m. í langstökki. Erlendur Valdimarsson, ÍR sigr aði í tveim greinum og náði sín- um bezta árangri í kúluvarpi, 14,39 m. Halldór Guðbjörnsson, KR varð einnig sigurvegari í tveim greinum og náði sínum bezta ár- angri í 400 m. hlaupi, 52,6 sek. Ragnar Guðmundsson, Ármanni hefur náð sér eftir tognunina á Meistaramótinu og sigraði Ólaf Guðmundsson í 100 m. hlaupi. Tími hans var 11,0 sek. Ýmsir unglinga náðu sínum bezta árangri. Úrslit fyrri dag: 110 m. grindahlaup: Ólafur Guðmundsson, Guðmundur Ólafsson, KR, ÍR, Roger Bambuck, Frakklan^i meist ari I 200 m.: 20,9 sek. sek. 17.8 19.9 sek. 11,0 11.3 12.5 12,8 13,0 sek. 52.6 54.4 55,3 1500 m. hlaup: mín. Halldór Guðbjörnsson, KR, 4:10,1 Þórarinn Sigurðsson, KR, 4:54,5 Eyþór Haraldsson, ÍR, 4:57,3 100 m. lxlaup: Ragnar Guðmundsson, Á, Ólafur Guðmundsson, KR, Guðmundur Ólafsson, ÍR, Snorri Ásgeirsson, ÍR, Ragnar Haraldsson, KR, 400 m; hlaup: Halldór Guðbjörnsson, KR, Gestir: Þórður Guðmundsson, UBK, Sigurður Geirdal, UBK, 1000 m. boðhlaup: mfn. Sveit KR, 2:08,1 Sveit ÍR, 2:19,5 Sveit Ármanns. 2:26,5 Spjótkast: b.: Ólafur Guðmundsson, KR, 49,02 Arnar Guðmundsson, KR, 47,32: F.rlendur Valdimarsson, ÍR, 42,95 ' Snorri Ásgeirsson, ÍR, 41,41 Stefán Jóhannsson, Á, 41,07 Einar Thoroddsen, KR, 40,10 Gestur: Hafsteinn Eiríksson, FH, 46,14 Kúluvarp: m. Erlendur Valdimarsson, ÍR, 14,39 Arnar Guðmundsson. KR, 13,28 Einar Thoroddsen, KR, 9,71 Langstölck: m. Ólafur Guðmundsson, KR, 7,01 Einar Þorgrímsson, ÍR, 5,97 Hróðmar Helgason, Á, 5,51 Guðmundur Ólafsson, ÍR, 5,03 Gestur: Donald Jóhannsson, UBK, 6,51 Hástökk: m. Erlendur Valdimarsson, ÍR, 1,65 Einar Þorgrímsson, ÍR, 1,60 Hróðmar Helgason, Á, 1,55 Ágúst Þórhallsson, Á, 1,55 Gestur: Donald Jóhannsson, UBK, 1,70 Bifreiððeigendur sprautum og réttum t Fljót afgreiðsla BIFREIÐ AVERKSTÆÐIÐ VESTURÁS h.f. Súðavog 30. Sími 35740 3. sepember 1966 ~ ALÞÝÐUBLAÐIÐ %%

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.