Alþýðublaðið - 30.09.1966, Qupperneq 11
Æfingar í Judo hefjast
í næsta mánuði
MÁNUDAGINN 3. óktóber hefjast
vetraræfingar í JUDO á vegum
hins nýja félags judomanna, JUDO
KWAl. Veröur vetrarstarfsemi fé
lagsins langtum fjölþættari nú en
að undanförnu, má nefna m.a. að
nú verða skipulagðir sérstakir æf
ingatímar fyrir kvenkólk. Einnig
verða skipulögð kappmót og e.t.
v. verður haldið meistaramót fé
lagsins í judo.
Reynt verður að haga æfingum
svo að sem flestir geti notið
þeirra, einnig verður reynt að haga
svo til, að starfsmannahópar eða
félög, sem óska eftir að æfa judo
í sértímaá öðrum tíma dags en
Akranes og;
; KR leika
i Á morgun kl. 3,30 heldur
r Bikarkeppni KSÍ áfram á
< J Melaveilinum en þá leika KR
i °S Akurnesingar. Akur^uesing
(iar hafa átt heldur slæma leiki
r síðustu vikurnar og því má
(vænta KR-sigurs á morgun.
>Þó er aldrei að vita, því að
► allt getur skeð í knattspyrnu,
[ eins og menn vita.
Keflavík og Valur
leika á sunnudag
Á sunnudag leika Valur og Kefl
víkingar annan aukaleik sinn um
íslandsmeistaratitilinn í knatt-
spymu 1966. Um síðustuhelgi
lauk viðureign þessara liða með
jafntefli 2-2 eftir framlengdan
leik.
Leikurinn sl. sunnudag var
mjög spennandi og skemmtileg-
ur. Flestir voru á þeirri skoð-
un, að Keflvíkingar hefðu átt
meira í leiknum eins og sagt er,
Koparpípur og
Rennilokar
Fittings
Ofnakranar
Tengikranar
Slöngukranar
Blön dun artæki
Burstafell
Byggingavöruverzlun,
Réttarholtsvegi 3.
Sími 3 88 40.
en það eitt er ekki nóg, til að
hljóta sigur í kappleik, verður
að skora fleiri mörk, en keppi-
nauturinn.
Ekki er vafi á því, að báðir aðil
ar munu leggja sig alla fram á
sunnudaginn og verði veður gott,
getur leikurinn orðið mikil og
góð skemmtan.
Íþróttasíðan átti stutt samtal
við Björn Carlsson formann knatt
spyrnudeildar Vals í gær. Björn
sagði, að Valsmenn myndu leggja
sig alla fram og leik væri ekki
lokið, fyrr en flautað væri af.
Hann hélt því fram, að meiðsli
hefði háð Valsliðinu mjög í sum
ar og nokkrir af leikmönnum
hefði ekki náð sér að fullu enn
þá. Það sama væri að vísu að
segja um Keflvíkinga, en óhöpp
gætu ávallt komið fyrir í leikjum
sem þessum.
Okkur tókst ekki að ná í for-
svarsmenn Keflvíkinga í gær til
að leita álits þeirra á leiknum,
en munu reyna það í dag.
Japan bezt í HM í
fimleikum í Dortmund
Nýlega fór fram heimsmeist
arakeppni í fimleikum í Dort
mund í Vestur-Þýzkalandi, sú
16. í röðinni. Japan hafði
nokkra yfirburði í keppninni
hlaut þrjá af sex gullpening
um og 10 af 18 verðlaunapening
um mótsins.
Shuji Tsurumi, bezti fimleika
maður Japans var óheppinn,
tognaði og varð að hætta, en
land hans, hinn 23 ára gamli
Akinora Nakayama varð bezti
maður keppninnar, (sjá mynd)
hann hlaut tvo gullpeninga.
Olympíumeistarinn Yokio
Ende olli hinum 11 þúsund á-
horfendum vonbrigðum, hann
vann enga grein, þótt hann
framkvæmdi æfingar sínar
næstum gallalausar og af frá
bæru öryggi.
Á EM unglinga í Odessa í Sov
étríkjunum hlaut aðeins einn Norð
urlandabúi gullverðlaun, það var
finnska stúlkan Kaisa Launela,,
hún kastaði spjóti 51,82 m. Syst-
ir hennar Kirseti varð fjórða með
46,40.
Á miðvikudag fóru fram nokkr
ir leikir í Evrópubikarkeppninni.
Malmö FF tapaði fyrir Atletico
Madrid 2-0 í Málmey. í Glasgow
sigraði Celtic Zurich 2-0. í Liver
pool vann Liverpool Ploesti, Rúm
eníu 2-0. í borgarbikarkeppninni
sigraði Dunfermline Frigg, Noregi-
með 3-1. Loks vann Dukla Prag
Esbjerg 2-0 í Evrópubikarkeppn•
’ Fyrstu íþróttaflokkarnir, serrú
þátt taka í „Reynslu-olympíuleik
unum“ í Mexico City í byrjun
næsta mánaðar eru komnir þang
að .Alls taka íþróttamenn frá 22
þjóðum þátt í keppninni.
Austur-Þýzkaland sigraði TékjS
\ Framliald á bls. 15
hin almenna dagskrá tekur til, geti
komist að.
Aðstaða til æfinga er nú góð
ágæt steypiböð og heitar kerlaug
ar til að hvílast í eftir erfiða æf
ingu.
Æfingaskráin verður fyrst um
sinn, sem hér segir:
Námskeið fyrir byrjendur 16
ára og eldri verður á þriðjudög
um og fimmtudögum kl. 8—9
síðdegis.
Námskeið fyrir kvenfólk verður
á mánudögum kl. 7,30—8.45 og
á fimmtudögum kl. 5,30—7 s.d.
Æfingar fyrir „old boys“ verða
á þriðjudögum og fostudögum
kl. 6,15 — 7,15.
Drengir 10—14 ára eiga að
æfa á þriðjudögum og föstudög
um kl. 5—6.
Almennar æfingar verða svo
á mánudögum kl. 8,45—10, og mið
vikudögum og föstudögum kl. 8
— 10.
í þessar almennu æfingar er ætl
azt til að mæti allir, sem ein-
hverja reynslu hafa í judo og svo
auðvitað nemendur í byrjendanám
skeiðinu jafnóðum og þjálfari
þeirra telur þá hæfa til þess.
Æfingar fara fram í húsi Jupit
er og Marz, á Kirkjusandi efstu
hæð og gengið inn í n.a.
hússins, frá Laugalæk.
30. september 1966 -- ALÞÝÐUBLAÐIÐ