Alþýðublaðið - 30.09.1966, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 30.09.1966, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR Framhald af 11. síðu. óslóvakíu 143 - 91 í landskeppni lcarla í Dresden og 75-43 í kvenna keppninni. Þrátt fyrir óhagstætt veður náðist góður árangur í keppninni. Nordwig, AÞ sigraði í stangarstökki meö 5,15 m. og Ruckborn AÞ í þrístökki með 16.29 m. Danek Tékkóslóvakíu sigraði í kringlukasti með 61,42. FALKLANDSEYJAR Framhald af 3. síðu Jose Maria Guzman aðmíráll, sem er landsstjóri í fylki því, sem nær yfir Eldlandið og eyjar þær á Atlantshafi og Suður-íshafi, er til heyra Argentínu. Annar saklaus farþegi er hnefaleikarinn Ovidio America, sem var á leið til keppni í suðurhluta landsins þegar flug- vélinni var rænt. Innrásarherinn tók fimm eyjarskeggja í gíslingu, en þeim hefur nú verið sleppt. Lögreglan á Falklandseyjum hef Ur enga tilraun gert til að afvopna hina öfgasinnuðu ævintýramenn frá Argentínu og getur það naum ast þar sem aðeins sjö menn eru í lögreglunni. En framtíðarhorf- ur innrásarhersins eru ekki glæsi legar, þar sem Juan Carlos Ong- ania Argentínuforseti lýsti því yf ir í dag, að innrásarmennirnir yrðu dregnir fyrir rétt og dæmd- ir þyngstu refsingu fyrir tilraun þeirra til að leggja Falklandseyj- ar uhdir Argentínu. Stjórnmálafréttaritarar í Buen- os Aires telja, að innrásin geti orð ið stjórn Ongania að falíi, en hún hefur verið við völd í þrjá mánuði. Ýmsir stjórnmálamenn og herforngjar hafa greinilega samúð með innrásarliðinu og blöð, stjórn málasamtök og verkalýðshrevfing- in hafa yfirleitt lvst yfir stuðn ingi við innrásarliðið. Sagt er, að innrásarmönnum verði fagn- að sem þ.ióðhetjum þegar þeir snúa aftur og ef Ongania tekur hart á þeim getur hann bakað sér óvild mnrgra, sem hann hefur stuðzt við til þessa. ÞOTA F.f. Framhald af 3. síðu þjálfaðir í því að stjóma raf- eindaheilanum. Svo skemmtilega vill til, að Borge Boeskov er hálfíslenzk- ur aö ætt. Móðir hans er ís- lenzk, en faðir danskur. Borge er fæddur hér á landi og ólst upp hér í Mosfellssveitinni til 10 ára aldurs, en þá flutti hann til Danmerkur og síðan til Bandaríkjanna. Hann er flug- vélaverkfræðingur að mennt. Síðan hann lauk námi hefur hann starfað hjá Boeing flug vélaverksmiðjunum. Borge tal- ar íslenzku reiprennandi og kvaðst alltaf hafa haldið henni við meðan hann dvaldist erlend is. Hann sagðist hafa verið mjög hissa, þegar hann frétti, að F. í. ætlaði að nota Kefla- víkurflugvöll fyrir þotuna, og sagðist hann vita til þess, að flugfélag nokkur> í Bandaríkj- unum, Beatman félagið, yrði að notast við mun minni völl en Reykjavíkurflugvöll. Borge tjáði fréttamanni að hann hefði átt hér á landi mjög ánægjulega dvöl og langaði hann að koma hingað brátt aftur. o UTBOÐ Fjármálaráðherra hefur á- kveðið að nota heimild í lögum frá 6. maí 1966 til þess að bjóða út 50 milljón króna innlent lán ríkis- sjóðs með eftirfarandi skil- málum: töldum voxtum og- vaxta- vöxtum: SKILMALAR fyrir verðtryggðum spari- skírteinum ríkissjóðs, sem gefin eru út samkvæmt lögum nr. '27 frá 6. maí 1966 um heimild fyrir rík- isstjórnina til lántöku vegna framkvæmdaáætl- unar fyrir árið 1966. 1. gr. Hlutdeildarbréf láns- ins eru nefnd spariskír- teini, og eru þau öll gefin út til handhafa. Þau eru í tveimur stærðuin, 1.000 og 10.000 krónum, og eru gefin út í töluröð eins og segir í aðalskuldabréfi. 2. gr. Skírteinin eru lengst til 12 ára, en frá 15. jan- úar 1970 er handhafa í sjálfsvald sett, hvenær hann fær skírteini inn- leyst. Vextir greiðast eftir á og í einu lagi við inn- lausn. Fyrstu 4 árin nema þeir 5% á ári, en meðal- talsvextir fyrir allan láns- tímann eru 6% á ári. Inn- lausnarverð skírteinis tvö- faldast á 12 árum og verð- ur sem hér segir að með- Skírteini 1.000 10.000 kr. kr. Eftir 3 ár 1158 11580 — 4 ár 1216 12160 —- 5 ár 1284 12840 — 6 ár 1359 13590 — 7 ár 1443 14430 ~ 8 ár 1535 15350 — 9 ár 1636 16360 — 10 ár 1749 17490 — 11 ár 1874 18740 — 12 ár 2000 20000 Við þetta bætast verðbæt- ur samkvæmt 3. gr. 3. gr. Við innlausn skír- teinis greiðir ríkissjóður verðbætur á höfuðstól, vexti og vaxtavexti í hlut- falli við þá hækkun, sem kann að hafa orðið á vísi- tölu byggingarkostnaðar frá útgáfudegi skírteinis til gjalddaga þess (sbr. 4. gr.). Hagstofa Islands reiknar vísitölu bygging- arkostnaðar, og eru nú- gildandi lög um hana nr. 25 frá 24. apríl 1957. Spafi- skírteinin ákulu innleyst á nafnverði aulc vaxta, þótt vísitala byggingarkostnað- ar lækki á tímabilinu frá útgáfudegi til gjalddaga. Skírteini verða ekki inn- leyst að hluta. 4. gr. Fastir gjalddagar skírteina eru 15. janúar ár hvert, í fyrsta sinn 15. janúar 1970. Inn- lausnarfjárhæð skírteinis, sem er höfuðstóií, vextir og vaxtavextir auk verð- bóta, skal auglýst í nóvem- ber ár hvert í Lögbirtinga- blaði, útvarpi og dagblöð- um, í fyrsta sinn fyrir nóv- emberlok 1969. Gildir hin auglýsta innlausnarfjár- hæð óbreytt frá og með 15. janúar þar á eftir í 12 mán- uði fram að næsta gjald- daga fyrir öll skírteini, sem innleyst eru á tímabilinu. 5. gr. Nú rís ágreiningur um framkvæmd ákvæða 3. gr. um greiðslu verðbóta á höfuðstól og vexti, og skal þá málinu vísað til nefnd- ar þriggja manna, er skal þannig skipuð: Seðíabanki Islands tilnefnir einn nefndarmanna, Hæstirétt- ur annan, en hagstofu- stjóri skal vera formaður nefndarinnar. Nefndin fell- ir fullnaðarúrskurð í á- greiningsmálum, sem hún fær til meðferðar. Ef breyting verður gerð á grundvelli vísitölu bygg- ingarkostnaðar, skal nefnd þessi koma. saman og ákveða, hvernig vísitölur samkvæmt nýjum eða breyttum grundvelli skuli tengdar eldri vísitölum. Skulu slíkar ákvarðanir nefndarinnar vera fullnað- arúrskurðir. 6. gr. Skírteini þetta er undanþegið framtalsskyldu og er skattfrjálst á sama liátt og sparifé, samkvæmt heimild í nefndum lögum um lántöku þessa. 7. gr. Handhafar geta fehgið spariskírteini sín nafnskráð í Seðlabanka Is- lands gegn framvísun þeirra og öðrum skilríkj- um um eignarrétt, sem bankinn kann að áskilja. 8. gr. Innlausn sþariskír- teina fer fram í Seðlá- banka Islands. Eftir loka- gjalddaga greiðast ekki vextir af skírteinum, og engar verðbætur eru greiddar vegna hækkunar vísitölu byggingarkostn- aðar eftir 15. janúar 1979. 9. gr. Allar kröfur sam- kvæmt skírteini þessu fyrnast, sé þeim ekki lýst hjá Seðlabanka Islands innan 10 ára, talið frá 15. janúar 1979. 10. gr. Aðalskuldabréf lánsins er geymt hjá Seðla- banka Islands. Spariskírteinin verða til sölu í viðskiptabönkum, bankaútibúum, stærri sparisjóðum og hjá nokkr- um verðbréfasölum í Reykjavík. Vakin er at- hygli á því, að spariskír- teini eru einnig seld í afgreiðslu Seðlabankans, Ingólfshvoli, Hafnarstræti 14. Salan hefst 3. okt. n.k. INNLENT LÁN RlKISSJÓÐS ISLANDS1966,2.F1 30. september 1966 - ALÞÝÐUBLAÐID |_5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.