Alþýðublaðið - 25.10.1966, Side 2
2 25. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Kvenfélags. \
fundur í kvöld
KVENFÉLAG Alþýðuflokks
ins í Reykjavík heldur
fyrsta fund sinn á þessu
hausti, í kvöld kl. 8 30 í fé-
lagsheimili prentara Hverf-
isgötu 21. Fundarefni: Fé-
lagsmál, kosning fullltrúa
á flokksþing Alþýðuflokks-
ins og fleira. Eggert G.
Þorsteinsson ráðherra mæt-
ir á fundinum og svarar
fyrirspurnum um stjórn-
málaviðhorfið og þingmál.
Konur eru hvattar til að
mæta vel og stundvíslega.
ij Aðalfundur FUJ
í Keflavík
AÐALFUNDUR FUJ í
Keflavík verður haldinn í
Aðalveri í kvöld kl. 8.30.
Dagskrá: 1) Inntaka nýrra
félaga. 2) Helgi Sæmunds-
son, ritstjóri, talar um
jafnaðarstefnuna með til-
liti til þjóðnýtingar. 3)
Venjuleg aðalfundarstörf. 4)
Kosning fulltrúa á 21. þing
SUJ. Fjölmennið. Stjórnin.
Fulltrúaráðið
FULLTRÚARÁÐ Alþýðu-
flokksfélaganna í Keflavík
heldur fund fimmtudaginn
27. október í æskulýðs-
heimilinu kl. 8.30. Fund-
arefni: Bæjarmálin. Frum-
mælandi Sveinn Jónsson,
bæjarstjóri.
Vaxandi beiskju gætir í Aberfan:
Grafinn lifandi af kolaráði rikisins"
Aberfan, Wales 24. 10. (NTB-
Reuter), — Maður nokkur sem
missti son sinn þegar gjallskrið
an féll yfir námubæinn Aberfan
í Wales með þeim afleiðingum að
um 200 manns biðu bana, krafðist
tless í dag aö í d'ákiarvottorði
drengsins stæði — Grafinn lifandi
af kolaráði ríkisins.
Harðar ásakanir voru bornar
fram þegar formaður líkskoðunar
réttarins las upp dánarorsakir 30
skólab. Margir foreldrar liöfðu
eitt barn eða fleiri í slysinu og
létu tilfinningar sínar í ljós.
Verkamaður sá, sem vildi breyta
orðalaginu í dánarvottorðinu, John
Collins, sem er 40 ára að aldri,
missti konu sína og tvo syni í slys
inu. Gjallhaugurinn, sem skriðan
kom úr, tilheyrir námu, sem kola
ráð ríkisins rekur.
Þegar formaður líkskoðunarrétt
arins las upp dánarorsök drengs
ins — köfnun og nokkur líkamleg
Fyrirlestrar um
bókmenntir Dana
Elias Bredsdorff, prófessor í
norrænum fræðum og forstöðu-
maður deildar norrænna fræða
(Department of Scandinavian
Studies) við Cambridge-háskóla,
kemur hingað til lands 23. októ-
ber og mun dvelja hér nokkra
daga í boði Heimspekideildar Há-
skóla íslands. Prófessorinn hefur
frá upphafi (1962) verið aðalrit-
stjóri bókmenntatímaritsins
Scandinavica.
Prófessor Bredsdorff mun flytja
tvo bókmenntafyrirlestra á veg-
um Heimspekideildar. Verða þeir
báðir fluttir á dönsku, enda er
prófessorinn danskur að uppruna.
Fyrri fyrirlesturinn, sem flutt-
ur verður mánudaginn 24. okt.
kl. 5,30, nefnist Ord og billeder
hos Kjeld Abell. í sambandi við
fyrirlesturinn mun prófessorinn
skýra samband myndhverfrar tján-
Framh. á 13. síðu.
Spilakvö
á fimmtuda
ANNAÐ SPILAKVÖLD Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur
. „ verður haldið næstkomandi fimmtudagskvöld I veitingahús-
inu LIDO. Það hefst kl. 8.30 og fólk er hvatt til að mæta
/ stundvíslega. Þeir sem koma fyrir kl. 8.30 losna við að
greiða rúllugjaldið. — Dansað verður á eftir til kl. 1 og
það er hin vinsæla hljómsveit Ólafs Gauks, sem leikur
fyrir dansinum. Söngvarar með hljómsveitinni eru Svan-
hildur og Björn R. Einarsson.
t ' •
..........................................................
meiðsl — sagði Collins: — Nei
— grafinn lifandi af kolaráði rík
isins. Kona nokkur hrópaði með
grátstafinn í kverkunum: — Það
er rétt hjá honum. Þeir drápu
börn okkar. Maður sagöi: —
Þeir myrtu börnin.
Nú stóðu fleiri á fætur og töl
uðu hver í 3kapp við annan. Coll
ins sem staðið hafði á fætur end
urtók: — Ég vil að það verði bók
að — grafinn lifandi af kolaráði
ríkisins. Ég vil að þetta standi í
dánaivottorðinu. Þetta er það sem
fólki hér finnst.
Formaður líkskoðunarréttarins
hreyfði þeim mótbárum, að hann
yrði að halda sig við yfirlýsingar
lækna og bætti því við, að Coll
ins og aðrir fengju tækifæri til
að láta í ljós skoðanir sínar í sam
bandi við rannsókn yfirvaldanna
á slysinu.
i kvöld höfðu fundist 145 lík —
þar af eru rúmiega 100 börn. Tal
ið er að lík 49 barna séu enn graf
in undir gjallleðjunni.
Atburðurinn við skráningu dán
arorsakanna í dag sýnir hina vax
andi beiskju er ríkir í námubæn
um og hefur sorgin breytzt í reiði
Bretar vilja fá svar við því, hvers
vegna kolaráðið virti að vettugi
að því er virðist aðvaranir við
einmitt slíku slysi sem átti sér stað
á föstudaginn.
Skólahúsið, sem bing .rinn féll á.
Heimsókn forsætisráðherra i Svíþjóð:
Sat veizlu Erlanders
STOKKKILMI, 24. október
(NTB-TT) — Bjarni Benedikts-
son forsætisráðherra sem kom til
Svíþjóðar í gær í opinbera heim
sókn, ræddi í dag við Erlander
forsætisráðhei-ra. Þeir ræddu
norræn mál.
Bertil prins hélt forsætisráð-
' " jlú fL'
herra veiziu og síðar ræddi
hann við Gunnar Lange verzlun-
armálaráðherra. í kvöld hélt
sænska stjórnin forsætisráðhcrra
veizlu í utanríkisráðuneytinu.
Forsætisráðherrahjónin og
fylgdarlið hans komu í góðu
veðri á Arlandaflugvöll á sunnu-
dagskvöld kl. 19.20. Á móti þeim
tóku Erlander forsætisráðherra
og frú, Kling dómsmálaráðherra
og frú, ambassador' sænska ut-
anríkisráðuneytisins og einnig
sendiherra íslands í Stokkhólmi,
Árni Trvggvason og frú, og starfs
fólk sendiráðsins.
Er forsætisráðherrahjónin og
fylgdarlið höfðu stigið úr fhig-
vélinni og heilsað viðstöddum
lék herhljómsveit þjóðsöngva
íslands og Svíþjóðar. Síðan könn
uðu forsætisráðherrarnir heiðurs-
vörð sænskra hermanna og heils-
uðu fán.mum. Að því búnu var
ekið í lögreglufylgd til Grand
Hotel þar sem forsætisraðherra-
biónin Off