Alþýðublaðið - 25.10.1966, Side 5
VEL KVEÐIÐ
En upp frá brjósti barns, er laut og þagði,
steig bæn um ljós.
Og bak við myrkrið mælti guð og sagði:
Ver'ði ljós.
Og það varð ljós.
Gestur Guðfinnsson.
Utvarp
7,00 Morgunútvairp. ■
12,00 Hádegisútvarp.
13,15 Við vinnuna
14.40 Við sem heima sitjum
15,00 Miðdegisútvarp.
16,00 Síðdegisútvarp
16.40 Útvarpssaga barnanna:
„Ingi og Edda leysa vand-
ann“ eftir Þóri Guðbergs
son, liöfundur les (1).
17,00 Fréttir
Framburðarkennsla í
dönsku og ensku_
17.20 Þingfréttir
18,00 Tilkynningar. Tónleikar
18.20 Veðurfregnir.
18,55 Dagskrá kvöldsins og veð
urfregnir.
19,00 Fréttir
19,20 Tilkynningar
19.30 Skóld 19. aldar: Guðmund
ur Friðjónsson Jóhaimes úr
Kötlum les úr kvæðum
skáldsins. Óskar Halldórs-
son flytur forspjali.
19,50 Lög unga fólksins.
20.30 Útvaa-pssalgan: „Fiskimer.Ji
irnir“ eftir Hans Kirk. Ás
laug Ámadóttir þýddi, Þor
steinn Hannesson les sögu
lokin.
21,00 Fréttir og veðurfregnir
21.30 Víðsjá: Þáttur um menn og
menntir_
21,45 Einleikssvíta nr. 1 í G-dúr
fyrir selló eftir Bach.
22,00 Staðhæfingar og staðreynd
ir. Árni Gunnarsson frétta
maður talar um morðið á
Kennedy forseta Bandaríkj
anna.
22,20 Ballettmúsik eftir Minkus,
Drigo og Auber.
22,50 Fréttir í stuttu máli.
Á hljóðbergi Björn Th.
Björnsson listfræðingur vel
ur efnið og kýnnir.
23,45 Dagskrárlok.
Flugvélar
LOFTLEIÐIR:
Vilhjálmur Stefánsson er væntan
tegur frá New York kl. 11.00
Heldur áfram til Luxemburgar kl.
12.00 Er væntanlegur til baka frá
Luxemburg ki. 02.45. Heldur áfram
t.il New York kl. 03.45.
Snorri Þorfinnsson fer til Oslóar
og Helsingfors kl. 10:15.
SkÍD
SKIPADEILD S.Í.S.
Arnai-fell er í Hamborg. Jökulfell
er í Reykjavík. Dísarfell fer í dag
frá Shoreham til Stettin. Litlafell
er í olíuflutningum á Fáxaflóa.
Helgafell fer á morgun frá Vasa til
Englands. TTfmrnfell er í Const
nza. Stapafell er A Austfjörð
Mælifell fór 20 þ.m. frá Növa
Scotia til Hollands.
Aztek væntanlegt til Austfjarða
26. þ.m.
Baker tvíburarnir skemmta í Glaumbæ
Tvíburasysturnar Susan og
Jennifer sem þekktar eru und
ir nafnina „The Baker Twins“
skemmta I veitingahúsinu
Glauinbæ næsta hálfa inánuð-
inn eða svo. Þær hafa komið
fram í mörgum kvikmvndum
og sjónvarpsþáttum, þóit þær
séu aðeins tvítugar að aldri,
því að- þær hófu feril sinn
fjögurra 'ára gamlar, þá sem
ljósmyndafyrirsætur. Fimmtán
ára gamlar léku þær dætur
Anthonys Newley í söngleikn-
um „Stöðvið Iieiminn".
Þær voru með lionum í
London í átján mánuði, en
fóru þá með honum til New
York þar sem þau voru á
Broadway í fimmtán mánuði.
Síðan voru þær , á London
Paliadium í hálft ár. Að því
loknu léku þær í kvikmynd-
iijni „Every Day is a Holi-
day“ sem sýnd var í Tóna-
bíói í fyrra og tóku síðan að
sér fasta þætti í Brezka sjón-
varpinu um nokkurra mánaða
skeið. Fyrir ári síðan léku
þær í kvikmyndinni „On The
Way To The Forum“ sem bráð
lega verður frumsýnd í Lon-
don, og strax á .eftir í James
Bond myndinni Casino Royale
þar sem þær voru með Peter
Sellers, David Niven og fleiri
heimsfrægum leikurum. Þeg-
ar þeirri kvikmyndatpku var
lokið komu þær fram í ýms-
um skemmtiþáttum þar til þær
komu til íslands. Héðan fara
þær svo til Las Vegas þar
sem þær taka að sér skemmti
þátt næstu fjóra mánuðina.
Sögur af frægu fólki
Franz Joseph Austurríkiskanzlari var dag nokkurn á villi-
svínaveiðum. Veiðiferðin hafði verið vel umlirbúin og á réttum
tíma kom í ijós, að göltur var á skotsvæðinu. Keisarinn skaut
strax, en honum tókst aðeins að særa liann. Svínið stóð kyrrt
augnablik, en þaut svo ofsalega reitt i átt að keisaranum. —
Ástandið var alvarlegt, konungurinn var i lífshættu. Veiðistjór-
inn tók snögga ákvörðun, lyjti byssunni, skaut á göltinn, og
hann féll til jarhar. — Það varð anaartaks þögn. Veiðistjórinn
andaði léttar og beið eftir þakklætisvotti frá konunginum.
En Franz Joseph, sem hafði staðið Við hlið hans tilbúinn
til að skjóta, lét nú byssuna síga aftur. Svo snéri hann sér
að veiðistjóranum og sagði — og lagði þunga áherzlu á hvert
orð: — Hver er hér að skemmta sér, þér eða ég ?
RIKISSKIP:
Hekla fer frá Reykjavík kl. 13,00
í dag austur um land í hringferð.
Herjólfur fer frá Vestmannaeyj
um kl. 21.00 í kvöld til Reykjavík
ur. Blikur er á Norðurlandshöfn
um á vesturleið. Baldur fer til
Snæfellsness og Breiðafjarðar-
hafna á fimmtudag.
Kvenfélag Háteigssóknar. Hinn ár
legi bazar Kvenfélags Háteigssókn
ar verður haldinn mánudaginn 7.
nóv. n.k. í „Guttó" eins og venju
'ega og hefst kl. 2 e.h. Félagskon
ur og aðrir velunnarar félagsins
eru beðnir að koma gjöfum til
Láru Böðvarsdóttur Barmahlíð 54
Vilhelmínu Vilhelmsdóttur Stiga
hlíð 4, Sólveigar Jónsdóttur Stór
holti 17, Maríu Hálfdánardóttur
Barmahlíð 36, Línu Gröndal Flóka
götu 58, Laufeyjar Guðjónsdóttur
Safamýri 34. — Nefndin.
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík heldur bazar þriðjudag
inn 1. nóv. kl. 2 eh. í Góðtempl
arahúsinu uppi. Félagskonur og
aðrir vel^nnarpi' FrQtLrkjunnar
eru beðnir að koma gjöfum til
Bryndísar Þórarinsdóttur Melhaga
3, Kiústjönu Ámadóttur Lauga
vegi 39, Lóu Kristjánsdóttur Hjarð
arhaga 19. Elínar Þorkeisfdóttur
Freyjugötu 46.
Konur í kvenfélagi Kópavogs
munið skemmtifundinn í tilefni
af afmæli félagsins fimmtudaginn
27 október kl. 20,30 i Félagsheim
ili Kópavogs uppi. Skemmtiþáttur
verður undir stjórn Ágústu Björns
dóttur. Fjölmennið og takið með
ykkur nýja félaga. —Stjórnin.
ÍÞRÓTTAKENNARAR.
Munið fræðslufundinn föstudag
28. okt. og laugardag 29. okt.,
sem hefst í Hótel Sögu kl. 9.
ÍKÍ
BÆJARBÍÓ í Hafnarfirði sýnir um þessar mundir kvikmyndina
í fótspor Zorros. Myndin er gerð á Ítalíu en er með ensku tali
og dönskum texta. Aðallilutverk leikur Sean Flynn en hann er
sonur hins kunna kvikmyndaleikara Errols Flynn, sem lézt fyrir
nokkrum árum. Þetta er ævintýramynd í cinemascope og litum.
Myndin er úr kvikmyndinni og eru á henni ítalski leikarinn
Folco Lulli og Sean Flynn.
> 25. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5