Alþýðublaðið - 25.10.1966, Qupperneq 7
Minningarorð:
Stefán Ólafur
♦
Björnsson
í dag verður kvaddur í Dómkirkj
unni í Eeykjavík, Stefán Ó. Björns
son tollvörður. Hann andaðist að
heimili dóttur sinnar í New York
laugardaginn 15. þ.m.
Stefán var fæddur í Laufási við
Eyjafjörð 12. maí 1904. Var fað
ir hans Björn Björnsson prestur
þar, frá 1897 — 1923, móðir Stef
áns var' Ingibjörg Magnúsdóttir
prests að Laufási í 18 ár, áður
að Skoirastað og víðar, Jónsson
ar að Víðimýri, Jónssonar. Afi
Stefáns Bjöm Björnsson á Breiða
bólsstöðum á Álftanesi var kvænt
ur Oddnýju Hjörleifsdóttur prests
að Völlum, Gultormssonar prests
að Hofi í Vopnafirði, Þorsteins
sonar prests að Krossi í Land
eyjum Stefánssonar spítalahald
ara á Hörgslandi Björnssonar Af
fþessu sést að Stefán var af presta
ættum og mætti marga fleiri telja
af forfeðrum hans, er gegndu þvi
starfi
Stefán Biörnsson fór ungur að
heiman, árið 1918 fór hann til sjós
og var sjómaður frá þeim tíma
nema að vetrum er hann var í
skóla. Hann tók gagnfræðapróf á
Akureyri 1923, farmannapróf frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
1927, var stýrimaður á varðskip
um ríkisins til síðla ársins 1946,
er hann igerðist tollvörður í Reykja
vík, var þá að honum komið að
verða skipherra á minni varðskip
unum en hann var orðinn þrevtt
ur á sjónum, enda erfitt að vera
við strandgæzlu og björgun úr sjáv
arháska á litlum skipum.
Stefán kvæntist 2. júni 1933,
Kristínu Mariu (Kristinsdóttur skó
smiðs í Reykjavík, Þorkelssonar
og konu hans Maríu GuðríÞar
Jónsdóttur frá Brennistöðum í
Borgarhreppi) fósturdóttur Jóns
Baldvinssonar bankastjóra. Þau
eignuðust 3 börn.
Stefán var drengur góður. Vildi
öllum vel og hvers manns vanda
leýsa. Við stai’fsfélagar hans við
Tollgæzluna. þökkum honum sam
starfið og samvinnuna um leið og
við sendum konu hans, dóttur,
sonum og- öðrum- aðstandendum
innilegustu sámúðarkveðjur.
Aðalsteinn Halldórsson
Frímerki
wamsmmæmmmsmtiisasmmm
Minningarfrívierki um George
'Washington, fyrsta forseta Banda-
ríkjanna, var gefið út í höfuðborg
USA hinn 22. febrúar síðastliðinn.
Er það blágrænt að lit og verðgildi
þess 5 cent. Þetta merki er úr
frímerkjaflokknum „Merkir Ame-
ríkumenn,” en sá ílokkur hefur
verið að koma út annað slagið síð-
astliðin ár.
19. október 1781 var byltingin
gegn Englandi til lykta leidd með
sigri nýlendumanna og þar með
fengu Ameríkumenn fullveldi og
■mmm
::
■
I
■
■. •
■ -
Þekking er tvenns konar:
Við höfum sjálf yfir fróðleik aö búa,
eöa vitum hvar hann er oð finna
Þekking er sú krafa, sem helzt er gerð til nútímamannsins. Og maður með þekkingu er sá maður, sem
nútímaþjóðfélagið þarfnast. Ilann er sá maður, sem sótzt er eftir, og honum eru boðin betri lífsskilyrði.
Þekking er tvenns konar: Við höfum sjálf yfir fróðleik að búa, eða við vitum, hvar hann er að finna.
Sú þekking, sem við höfum sjálf yfir að ráða er einstakiingsbundin og hlýtur að takmarkast við persónu-
lega reynslu hvers og eins, nám hans og umhvérfi. Hún getur komið að miklu gagni í daglegu starfi —
en umhverfið krefst stöðugt vaxandi menntunár og þekkingar.
TIIE AMERICAN PEOPLES ENCYCLOPEDIA er nútíma alfræðisafn, sniðið eftir kröfum 20. aldarinnar
— atómaldarinnar — um almenna menntun og þekkingu á viðfangsefnum mannsins. Ilið vandaða bóka-
safn þekkingarinnar, sem er liður í gjörnákvæmu þekkingar- «g upplýsingakerfi: nýtt eins og dagurinn
í dag og með svör við vandamálum morgundagsins.
Ómetanlegt er verk hinna 23 Nóbelsverðlaunahafa, sem lagt hafa fram sinn skerf ásamt 2500 öðrum sér-
fræðingum við. uppbyggingu þessa kerfis, eftir að 100.900 kennarar og nemendur víðsvegar um heim höfðu
lagt grundvöllinn með þátttöku í skoðanakönnun.
Áratuga þrotlaust starf og rannsóknir vísindamanna, þekking og reynsla, sem aldrei verður metin til fjár,
háfsjór upplýsinga og fróðleiks um öll helztu við ángsefni mannkynsins — það er TIIE AMERICAN
PEOPLES ENCYCLOPEDIA.
UMBOÐ FYRIR THE RICHARDS COMPANY INC.
TJARNARGÖTU 14 — SÍMI 19-400 — REYKJAVÍK
sjálfstæði og þar með stöðu meðal
hinna annarra þjóða heimsins.
Þessi viðburður olli gerbyltingu á
þjóðfélagsskipan þeirra. Erfðir og
sérréttindi voru þar lítils virði, en
jafnréttið í þeim mun meiri há-
vegum haft. Sigurinn var þeim
umfram allt áskorun og hvatning
til þess að sanna, að þeir væru
þess umkomnir að njóta hinnar
nýju stöðu Sínnar og koma á fót
eigin stjórn.
— Nafn eins manns var á ailra
vörum sem hins nýja þjóðhöfð-
ingjaefnis. Það var nafn George
Washington og var hann einróma
kosinn forseti. Ilann haíði verið
yfirstjórnandi hersveita Banda-
ríkjamanna í Erelsisstríðinu. Ó-
bilandi kjarkur hans og stilling
gerðu hann sjáifkjörinn tii þessa
ábyrgðarmikla starfs. í skaphöfn
hans sameinaðist ákafi og þolin-
mæði, og siðferðilegt þrek hans,
líkamleg hreysti og áræði var öll-
um til fyrirmyndar. Stjórnsemi
lians var viðurkennd og hin heil-
Framhald á 14, síðu.
25. október 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ