Alþýðublaðið - 25.10.1966, Síða 8
Myndirnar, sem hér birtast eru
frá snyrtivörusýningunni er hald-
in var í Hótel Sögu á miSviku-
dagskvöld. Kynntar voru vörur frá
Dorothy Gray og kynnti vörurnar
sérfræðingur í snyrtivörum frá
fyrirtækinu í London, frú Stevens.
Sýningar á snyrtivörum eru ákaf-
lega vinsæiar meðal kvenþjóðar-
innar og þar gefst konum kostur
á að fræðast um notkun ýmissa
snyrtivara, en eins og frú Stevens
sagði er rétt notkun snyrtivara
nauðsynleg til að fá góðan árang-
ur. Það er ekki nóg að klessa
einhverju framan í sig, heldur
verður að velja snyrtivörurnar
með gaumgæfni og ekki á það
sama við allar húðgerðir, sérstök
krem eru fyrr þurra húð, sér
stök krem fyrir feita og svo enn
önnur fyrir húð,.sem er bæði þurr
og feit, en slíkt er líka til. Þá er
húðin þurr á kinnum og enni, en
feit á höku og í kringum nef og
þá eru til sérstök krem til lag-
færingar á því. Þessa fræðslu
veita snyrtivörusérfræðingarnir.
Á snyrtisýningunni í Sögu
snyrti frú Stevens tvær konur,
aðra unga og hina „líka unga”
eins og hún sagði, því að eink-
unnarorð . fyrirtækisins eru
„Snyrtivörur fyrir ungar konur á
öllum aldri.“ Eftir að frú Stevens
hafði snyrt frúrnar las Guðbjörg
Þorbjarnardóttir upp tvö Ijóð
eftir Davíð Stefánsson og síðan
kom fram Ómar Ragnarsson og
skemmti viðstöddum. Ékki má svo
gleyma að telja upp fröken Óm-
oru, sem skemmti með söng og
mjaðmasveiflum.
Að síðustu fengu svo konurnar
að skoða snyrtivörur fyrirtækis-
ins Dorothy Gray, en þær voru til
sýnis á stóru borði í salnum. Frú
Stevens og afgreiðslustúlkur
Ingólfs-Apóteks ráðlögðu hverri
konu um notkun snyrtivaranna.
Kynnir á sýningu þessari var
Brynja Benediktsdóttir leikkona.
Hún þýddi jafnóðum útskýr-
ingar frú Stevens við snyrtingr-
una, til þess að allir viðstaddir
hefðu gagn af því sem fram fór.
Og svo eru hérna þrjár regl-
ur úr leiðbeiningabók Dorothy
Gray:
1) Að hreinsa húðina er nauð-
synlegt, ekki er alltaf nóg að
nota vatn og sápu. Óhreinindi
og n'ake-up nást ekki nema með
góðu lireinsunarkremi.
2) Andlitsvatn er mikilvægt að
nota á eftir að lireinsunarkrem
hefur verið notað. ÞÍið lokar
svitaholunum, styrkir andlits-
vöðvana og heldur húðinni
ferskri.
3) Næringarkrem er nauðsyn-
iegt til að húðin haldi/t fersk
og ungleg.
Konurnar fylgdust ahugasamar
með snyrtingunni.
Fröken Omara a sviðinu. Ekki
var tekið fram, hvaða snyrti-
vörur hún notar.
g 25. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ