Alþýðublaðið - 25.10.1966, Síða 16
Áfengismál eru enn á dagskrá
og hljóta að verða það, meðan
áfengi er á dagskrá meðal al-
mennings. Ábyrgum aðilum kem-
ur saman um að grípa verði til
einhverra aðgerða til að draga
úr drykkjuskap, þótt þeim komi
hins vegar ekki alltaf saman um,
íiverjar þær aðgerðir eigi að
vera. í gær var lagt fram á
Alþingi frumvarp til laga um
I reytingar á áfengislögum og eru
|>ar tekin upp ýmis nýmæli. Bak
eiðan telur þó að frumvarn þetta
pangi alltof skammt, og verða nú
t ilin upp nokkur ákvæði, sem
Itún telur rétt að séu tekin upp
í ný áfengislög.
1. Vínveitingahúsum skal ó-
heimilt að selja áfengi mönnum
á aldrinum 40—45 ára, sem eru
komnir með vísi að skalla og/
eða ístru nema á fimmtudögum
milli klukkan 19 og 23,30 síð-
degis. Þó skal undantekning gerð
með menn ó þessum aldri, sem
fæddir eru á ■ Austurlandi, enda
sanni þeir uppruna sinii með
nafnskírteini eða á annan sann-
anlegan hátt. Þessi undantekning
skal þó einungis ná til vínveit-
ingahúsa ó Akureyri.
2. Fólki eldra en 65 ára skal
ekki heimill aðgangur að vín-
veitingahúsum eftir klukkan 21
að kvöldi, nema í fylgd með
ÞINGMANNAVlSUR
Einar Olgeirsson
Austr fórk of mar,
svá’s mitt of far.
Tókst ek glaðr á loft.
Þat geri ek opt.
Því varð fljót mín för,
at ek flaug sem ör,
unz rak ek tá
í Rússíá.
Vask fylltr móð.
Einn morgin ek stóð
við it Rauða torg
í Rússlands borg.
Sá ek vítt of þat
ok ei þagat gat.
Kvað ek hilmi lof.
Þat vas hvergi um of.
börnum sínum og / eða ibarnabörn
um.
3. Heimilt skal lögreglustjór-
um að banna afgreiðslu á áfeng-
issendingum í pósti, enda hafi
þær komið til ákvörðunarstaðar
: með skipspósti. Áfengissending-
I ar í flugpósti skulu hins vegar
| skilyrðislaust afhentar þegar í
) stað.
4. Á fimmtudögum skal vín-
veitingahúsum óheimilt að selja
aðrar áfengistegundir en viskí og
koníak, á föstudögum brennivín
og sénever og á sunnudögum
messuvín. Ráðuneytið getur þó
heimilað undanþágur frá þess-
um ákvæðum, enda komi gjald
fyrir, en þó skulu slíkar undan-
þágur ekki leyfðar varðandi
messuvín á sunnudögum, nema
vínveitingar hafi ekki farið fram
í því veitingahúsi, sem um slíkt
leyfi sækir, kvöldið fyi’ir þann
sunnudag, sem leyfið á að gilda.
5. Vínveitingahúsum skal ó-
heimilt að blanda ófengi í aðra
gosdrykki en þá, sem löggiltir
verða til áfengisblöndunar. Ráðu
neytið mun að undangenginni
rannsókn gefa út reglugerð um
blöndunarhæfni einstakra gos-
drykkja tegunda og varða brot
ó þeirri reglugerð sektum, sem
nánar verður kveðið á um í reglu
gerðinni sjálfri.
6. Leigubílstjórum skal óheim-
ilt að aka miðaldra mönnum
drukknum lieim til sín. Hins
vegar er þeim heimilt að aka
þeim í hús annarra manna,
nema um sé að ræða menn
fædda seint í mánuði eða fyrri-
hluta dags, og skal mönnum
skylt að sanna fæðingarstund
sína, ef bílstjórar fara fram á
það.
Hér hafa aðeins verið nefnd
fáein atriði sem sjálfsagt er að
lögfesta til að hamla gegn
drykkjuskap. Öll þessi ákvæði
er liægt að rökstyðja á marg-
víslegan hátt, en vegna rúmleys-
is verður nánari greinargerð þó
að bíða að þessu sinni.
Þér hafið á réttu að standa, þetta er fyrsta flokks linsa. Ég sé
greinilega, verzlun neðar í götunni þar sem þeir selja alveg eins
linsu 250 krónum ódýrari.
Samkoma kl. 8 um kvöldið.
Jóhann Pálsson talar í síðasta
sinn í þetta skipti.
Morgunblaðið.
I
Nú á að selja Hamrafellið úr
landi. Væri ekki nær að ein-
hver ferðaskrifstofan keypti
skipið og gerði það út sem
skemmtiferðaskip fyrir íslend-
inga. Þar ætti að vera nóg
geymslupláss fyrir vökvann.
Við erum að koma upp sveit
rauðra varðliða í skólannm, os
þá mega kennarablækurnar
fara að vara sig.
Off enn eykst áfcnglssalan.
Ekki er að spyrja að rudda-
skapnum í þessum karlmönn-
um.