Alþýðublaðið - 02.11.1966, Qupperneq 6
Cecil Haraldsson kjörinn
forrn. FUJ á Snæfellsnesi
Þessir knálegu piltar skemmtu sér vel við að liorfa á undirbúning: undir malbikun á Gnoðarvogri í gær.
Verið var að þurrka og hita undirlagið og lagði gufustrókana undan vélinni.
Athugasemd frá Félagi framreiðslumanna
Rvík, ÓTJ
Félag ingra jafnaðarmanna
var stofnað á Snæfellsnesi sl.
sunnudag og Cecil Haraldsson,
kjörirm formaður. Stofnfundur-
var haldinn í Ólafsvík og settur
af Guðmundi Vésteinssyni sem
lýsti tildrögum félagsstofnunarinn
ar. Voru siðan samþykkt lög fyr
3 slys
Tíu ára rengur lærbrotnaði og
hlaut einhx er meiðsli er hann varð
fyrir bifreið á móts við Hvassa
IKjy'lá 108 í gærdagi Hann var)
fluttur á lysavarðstofuna og á-
fram á sjú’írahus. Annar drengur
skarst á I nn er hann varð fyr
ir bifreið á móts við Langholts
veg 96. O um tólf leytið varð
svo maður fyrir bifreið á Suður
íandsbraut ekki er vitað um)
meiðsli hans.
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags
Eyrarbakka var haldinn í Fjölni
á Eyrarbakka á sunnudaginn kl.
4. Kosin var ný stjórn fyrir fé-
lagið og. skipa hana Jón Valgeir
Ólafsson, verkstjóri, formaður
Snæbjörn Árnason, skrifstofu-
stjóri, ritari og Karl Þórðarson,
verkamaður, Borg, gjaldkeri. í
varastjórn voru kosnir Gísli Gísía
son, kaupfélagsstjóri, varafor-
maður, Þórir Kristjánsson, verka
maður og Sigurður Guðmunds-
son, skipstjóri.
Kosin var á fundinum sjö
manna skemmtinefnd og skipa
hana ásamt félagsformanni: Gróa
Jakobsdóttir formaður, Stefanía
Magnúsdóttír, Sigríður Ólafsdótt
ir, Guðmundur Einarsson, Ásí
Markús Þórðarson, og Einar Þór
arinsson.
(Þá voru kosnir tveir fulltrúar
á flokksbing Alþýðuflokksins,
Vigfús Jónsson, oddviti og Gísli
Gíslason, kaupfélagsstjóri og til
vara Jón Valgeir Ólafsson, verk-
ir það og gengið til stjórnarkjörs
Með Cecil í stjórn eru Lúðvík
Haraldsson (Stykikishólmi) ritari
og Sveinbjörn Sveinsson, (Stykkis
hólmi) 'gjaldkeri. Mynda þeir fram
kvæmdaráð stjórnarinnar. Með-
stjórnendur voru kjörnir Ingi Ein
arsson og Kristján Alfonsson frá
Hellissandi og Þórður Þórðarson
og Trausti Magnússon frá Ólafsvík
. í varastjórn voru kjörnir Rögn
valdur Lárusson, (Stykkishólmi),
Guðmundur Gíslason (Hellissandi),
og Sigurður Elínbergsson (Ólafs-1
vík). Endurskoðendur urðu Örn
Ottósson og Gylfi Magnússon frá
Ólafsvík.
Að loknum kosningum tóku til
máls þeir Gylfi Magnússon, Lúð-
víg Halldórsson og Guðmundur Vé
steinsson og létu í ljós ánægju yf
ir stofnun félagsins. Að lokum
tók til máls hinn nýkjörni formað
ur Cecil Haraldsson og flutti
hvatningarorð til félagsmanna.
Mikill einhugur ríkti á fundinum
um að efla félagið sem mest og
gera hlut Alþýðuflokksins í Vestur
landskjördæmi sem mestan í næstu
alþingiskosningum.
stjóri og Þórir Kristjánsson,
verkamaður.
Aðalfundinn sóttu rúmlega
þrjátíu manns, tóku margir til
máls og var elndreginn áhugi á
því að hefja öfluga vetrarstarf-
semi.
Jón Valgeir Ólafsson.
í Morgunblaðinu 26. þ. m. er
skýrt frá umræðum er urðu á Al-
þingi um frumvarp til staðfest-
ingar á bráðabirgðalögum nr. 79,
1966, um lausn deilu framreiðslu-
manna og veitingamanna. í frá-
sögninni er framsöguræða sam-
göngumálaráðherra rakin og síðar
önnur ræða hans síðar í umræð-
unum. Ráðherrann er m. a. sagður
hafa sagt í fyrri ræðu sinni, að
ferðamannastraumur hingað
til lands hefði stöðvast að mestu
ef verkfall framreiðslumanna
hefði staðið lengur en raun varð
á og jafnframt er hann sagður
hafa upplýst, að hann hefði kynnt
sér málið og í ljós hefði komið að
undanþágur þær, er Félag fram-
reiðslumanna veitti þegar við
upphaf verkfallsins, hefðu ekki
nægt til, að hægt væri að taka
sómasamlega ó móti gestum. Ekki
virtist ráðherrann hafa gert mik-
ið til að rökstyðja þessar full-
yrðingar sínar, enda ekki svo
hægt um vik. Af gefnu tilefni
teljum við þó rétt að birta enn
á ný þær almennu undanþágur
er við veittum í þessu sambandi,
en í bréfi okkar til Sambands
veitinga- og gistihúsaeigenda seg-
ir m. a. svo:
„Stjórnin samþykkti að gefa
Hótel Sögu, Hótel Holt, Hótel
Borg og Hótel Loftleiðir, und-
anþágu til almennra veitinga
fyrir hótelgesti og þá ferða-
menn, sem hingað kunna að
koma með erlendum skemmti-
ferðaskipum.
Jafnframt var Nausti hf. gef-
in undanþága til þess að. hótel-
gestir frá City Hotel fái al-
mennar Veitingar framreiddar
í Nausti h.f.”
Okkur er ekki fyllilega Ijóst
hvað ráðherrann á við með því
að ekki hafi verið hægt að taka
sómasamlega á móti ferðamönn-
um og dettur i því sambandi helzt
í hug, hvort hann haldi að er-
lendir ferðamenn komi hingað til
þess að ganga á milli veitinga-
húsanna. Við fullvissum róðherr-
ann um að veitingahús okkar eru
ekki svo annáluð erlendis, að
ferðamenn leggi hingað leið sína
til að kynnast þeim.
Þegar áfram er lesið kemur í
ljós, hvert ráðherrann hefur leit-
að, er hann fór að kynna sér
málið, en það var til Ferðamála-
ráðs, en fyrirsvarsmaður þeirrar
stofnunar er Lúðvig Hjálmtýsson
formaður SVG, og auk þess til
nokkurra atvinnurekenda.
Ráðherrann virtist síðan hafa
lýst þeim hagsmunum, sem í húfi
voru og nefnt þar nokkrar tölur.
Virðist koma þar fram sú skoðun
ráðherrans, að hvenær sem ein-
hverjir fjárhagslegir hagsmunir
einhvers aðila, einstaklings eða
opinbers aðíla séu í hættu, só
rétt að banna verkföll með lögum.
Við teljum rétt að íslenzkir laun-
þegar taki til alvarlegrar athug-
unar þessa skoðun ráðherrans og
hugsi sig vel urn áður en þeir
ljá þeim þingmönnum, er styðja
þessa skoðun hans, atkvæði sitt
við næstu kosningar, sem fram
eiga að fara á næsta ári.
í síðari ræðu sinni virðist ráð-
herrann svo hafa færzt í aukana
og gengið svo langt, að halda því
fram, að samúðarverkföllum, sem
boðuð höíðu verið liefði verið
aflýst vegna þess, að félagar í
félögum þeim er að þeim stóðu,
hefðu gkki talið kröfur fram-
reiðslumanna " réttmætar. Þessi
staðhæfing ráðherrans er ræki-
lega hrakin í yfirlýsingu FÍII,
sem birtist í Þjóðviljanum 27. þ.
m. og eru þar tekin af öll tví-
mæli um ósannindi ráðherrans.
Við teljum ekki ástæðu til að
fjalla frekar um ræður ráðherr-
ans að þessu sinni, þær eiga það
sammerkt, að vera samansafn ó-
rökstuddra og rangra fullyrðinga
og- tilvitnana í skoðanir atvinnu-
rekenda, og þá einkum gagnaðila
okkar í deilunni. og eins og til að
styðja við bakið á ráðherranum
eru svo tveir veitingamenn fengn
Framhald á bls. 10
Aðalíundur Alþýðuflokks-
félags Eyrarbakka
iS
MEÐ BEINAR FERÐIR PRA ÚTLÖNDUM TIL HAFNA ÚTI A LANDI ALLTMEÐ
ORUGG ÞJONUSTA
HAGKVÆM KJÖR
£ 2. nóvember 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ