Alþýðublaðið - 02.11.1966, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 02.11.1966, Qupperneq 7
Gunníaugur Ó. Guömundsson: Alþýðuflokksfélagið á ísafirði 40 ára Þrið.iudaginn 2. nóvember 1926 mættu þrettán manns, karlar og konur, í Bæjarþinghúsinu, til að ræða um stofnun jafnaðarmanna- félags á ísafirði. Ingólfur Jóns- son var fundarstjóri og skýrði frá tilgangi fundarboðsins. Aðrir sem til máls tóku á þessum fyrsta fundi, voru: Finnur Jónsson, Stefán Stefánsson og Jón M. Pétursson. Gengið var frá lögum fyrir félagið og því gefið nafn- ið Jafnaðarmannafélag ísafjarð- ar. Fyrstu stjórn skipuðu: Ingólf- ur Jónsson, formaður, Eyjólfur Arnason, ritari, Finnur Jónsson, gjaldkeri, Jón M. Pétursson, vara- formaður, Sigurður Guðjónsson, varaí-ltári, Magnús Jónsson, vara- gjaldkeri. Endurskoðendur voru kjörnir Stcfán Stefánsson og Halldór Ólafsson frá Gjögri, og Halldór var fundarritari á þess- um fyrsta fundi. Á fyrstu árunum kom út skrif- að blað innan félagsins, er hét „Lenin”, en hvar það blað er nú niðurkomið er ókunnugt. Aðalumræðuefni á fundum fé- lagsins hafa verið verkalýðsmál, og mál, sem eru tengd verkalýðs- hreyfingunni, eins og húsnæðis- mál, öflun atvinnutækja til bæj- arins, stofnun sjúkrasamlags, skólamál og alþýðufræðsla svo eitthvað sé nefnt. Auk þess voru rædd skipulagsmál félagsins og flokksins svo og að sjálfsögðu bæjar- og þjóð-mál. í byrjun árs 1930 eru félagar 30 talsins, 26 karlar og 4 konur, en á fundum voru auk félags- manna alltaf gestir. Um haustið ganga í félagið 37 félagar og í ársbyrjun 1931 ganga 26 í félagið og félagatalan þá komin yfir 100 manns. Á aðalfundi 1931 ber Vilmund- ur Jónsson fram tillögu, sem er samþykkt með 42 atkvæðum gegn 20 undir dagskrárliðnum: „Af- staða félagsins til Alþýðuflokks- ins”. Finnur Jónsson hafði liaft ' framsögu um málið, tillagan fel- ur í sér að þeir félagar, sem hafa gengið í anrian stjórnmálaflokk hérlendis eða erlendis, þar á með- al í Kommúnistaflokk íslands, geta ekki talizt félagar í Jafnað- armannafélagi ísafjarðar, og er öllum félögum gert skylt að und- irrita með drengskaparheiti, iög og stefnuskrá Alþýðuflokksins, ef þeir ætli að vera áfram félag- ar. Á fundinum undirrita 46 fé- lagar hina nýju skuldbindingu. Eftir þessa samþykkt er þeirra manna ekki frekar getið, sem á- netjuðust kommúnistaflokknum. Árið 1934 er nafni félagsins breytt í Félag Alþýðuflokksins á ísafirði, og aftur 1948 í Alþýðu- flokksfélag ísafjarðar. Formenn í féiaginu hafa verið: Ingólfur Jónsson 1926 — 1930 Halldór Ólafsson 1930—1931 Sig. Guðm. 1931—1933 Guðm. G. Hagalín 1933—1934 Grímur Kristg. 1934—1935 Guðm. Kristj. 1935-1937 og aftur 1937 — 1938 Finnur Jónsson 1938 — 1940 Hannibal Vald. 1940 — 1944 Sverrir Guðm. 1944—1947 Jón Guðjónsson 1947 — 1949 og aftur 1949—1950 Birgir Finnsson 1950 — 1952 Björgvin Sighv. 1952 — 1960 Finnur Finnsson 1960 — 1961 ^Gunnl. Ó. Guðm. síðan 1961 Stjórn félagsins skipa nú : Gunnl. Ó. Guðmundsson, form. Páll Sigurðsson, varaform. Óli J. Sigm. ritari, Þórður Einarsson, gjaldkeri, Níels Guðmundss. meðstj. í varastjórn eru : Guðm. Guðmundsson, Kristm. Bjarnason — og Jens Markússon. Núverandi stjórn Alþyðuflokksfélagsins á ísafiröi. Sitjandi frá v_: Óli J. Sigmundsson ritari, Gunnlaugur Ó. Guðmundsson, formaður, Þórð ur Einarsson, gjaldkeri. Standandi frá vinstri: Niels Guðmundsson, meðstjórnandi, Páll Sigurðsson, varaformaður, og Guðmundur Guð- mundsson, í varastjórn. Endurskoðendur : . i ísafirði Kvenfélag Alþýðuflokks- Björgvin Sighvatsson — og \ ins, og fluttust þá þær konur er Jón Guðjónsson —og til vara: ' voru i Alþýðuflokksfélaginu í þaS Snorri Hermannsson. I félag, átti Kvenfélagið 20 ára af- 24. febrúar 1946 var stofnað á i Framhald á bls. 10. ■■ Næsti dráttur í Happdrætti Alþýðubiaðsins verður 23. des- emher. Þá eru hvorki meira né minna en þjár bifreiðir í boði, hver annarri giæsiiegri: Hslmann Imp. Vauxhall Viva og volks wagen. Miðinn kostar aðeins £00 kr. og er hér því um ein- stætt tækifæri atS ræða. Skrifstofan er að Hverfisgötu 4 og síminn er 22710. Látið ekki HAB úr hendi sleppa ■ 2. nóvember 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ T F

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.