Alþýðublaðið - 10.11.1966, Qupperneq 4
Bltotjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndai. — RlUtjómarfull-
trúl: Elöur Guönason. — Símar: 14900-14903 — AuglýGlngasími: 14906.
ABsetur Alþý6uhú3i0 viB Hverfisgötu, Keykjavik. — Pr*D.ismiöja AíþýSu
blaCsins. — Askriítargjald kr. 95.00 — I lausásölu kr. 7,00 elntaktð.
titgefandi Alj>ýöuflokkurinri.
NÝ SKIP
FRÁ því hefur nú verið skýrt, að ríkisstjórnin hafi
íheimilað stjórnarnefnd Skipaútgerðar ríkisins að
kaupa eða láta byggja tvö myndarleg skip til strand-
ferða hér við land. Jafnframt hafa verið seld tvö göm
ul og óhagkvæm strandferðaskip, sem ekki eru leng-
ur heppileg til að halda uppi strandferðaþjónustu.
Mikið fjaðrafok varð í málgagni Framsóknarflokks-
ins, þegar byrjað var að leita hófanna um sölu á hin-
um óhagkvæma skipakosti Skipaútgerðar ríkisins.
Ætlaði þar þá allt af göflum að ganga, og var bað
talið sérstakt tilræði við dreifbýlið, þegar freista átti
iþess að létta óhæfilega miklum rekstrarhalla Skipa-
utgerðarinnar af ríkissjóði og gera ráðstafanir til þess
að fyrirtækið yrði léttara á fóðrum, án þess þó að
dregið væri úr þeirri nauðsynlegu þjónustu, sem það
innir af hendi.
Nú þegar ákvörðun hefur verið tekin um smíði eða
kaup tveggj'a nýrra strandferðaskipa lætur Fram-
sóknarmálgagnið sér næsta fátt um finnast.
Furða sig vafalaust margir á þessari afstöðu Tím-
ans, sem til þessa hefur talið sig helztan málsvara
dreifbýlisins. Vafalaust hefði verið annað hljóð í
strokknum, ef tillaga um þetta hefði.komið frá Fram
sóknarmönnum, sem ekki hafa séð minnstu ástæðu
til að gera breytingar á rekstri Skipaútgerðarinnar
eða reyna að minnka þann gífurlega hallarekstur,
sem verið hefur á fyrirtækinu undanfarin ár.
Talsvert er síðan því var lýst yfir af hálfu ríkis-
stjórnarinnar, að í engu yrði skert þjónusta sú, sem
strandferðirnar eru. Við það verður staðið, og tals-
verð von er til þess, að þjónustan batni verulega,
þegar ný og hagkvæmari skip verða tekin í notkun.
OLÍA
1 Olíumálin hafa verið talsvert á dagskrá undanfarið,
enda standa nú yfir í Reykjavík viðræður um víðtæka
samtakamyndun til að freista þess að hnekkja sam-
stöðu olíufélaganna þriggja.
r r
f I grein sem forstjóri eins af olíufélögunum hefur
sent blöðunum og Alþýðublaðið hefur m. a. birt segir
ijhann, að sennilega megi fullyrða, að á engu sviði við-
skiptalífsins hér sé um jafn fullkomna þjónustu að
ræða og hjá olíufélögunum, né um harðari samkeppni
hð ræða í þjónustu við viðskiptamenn. Varla munu
/iðskiptamenn félaganna þessu sammála. Ef svo væri,
syrfti ekki að stofna til sérstakra samtaka til að
/eyna að knýja fram betri þjónustu. Þá telur forstjór
inn félögin inna af hendi mikla innheimtu fyrir hið
ppinbera. Það er þá hreint ekki meira, en
ílest, ef ekki öll fyrirtæki á íslandi gera í dag. Er
petta ekki sérstakt fyrirbrigði, hvorki að því er varð-
pr olíufélögin, eða ísland.
d 10. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Rólegir dagar
á Alþingi
Reykjavík, EG. Enginn fundur var í efri deild
Alþingi, en í neðri deild
Lítið var um að vera á Alþingi voru tvö mál á dagskrá og stóð
í fyrradag, aðeins fundur í annarri fundurinn þar í tæplega tíu mín-
þingdeildinni, og engin ný þing- útur. Eggert G. Þorsteinsson sjáv-
skjöl lögð fram, sem heyrir þó | arútvegsmálaráðherra (A) mælti
til algjörra undanteknuiga. fyrir frumvarpi til laga um breyt-
»
Kaupmenn - Kaupfélög
- Saumastofur -
FYRIRLIGGJANDI mjög fallegt úrval af kjóla- og
blússuefnum. — Einnig samkvæmiskjólaefni.
Kr. Þorvaldsson & Co.
Heildverzlun — Grettisgötu 6.
Símar 24730 og 24478.
ingu á siglingalögunum frá 1963
til samræmis við Briisselarsáttmál-
ann frá 1957 um takmarkaða á-
byrgð útgerðarmanna, en Emil
Jónsson utanríkisráðherra mælti í
fyrradag fyrir frumvarpi um stað-
festingu þess sáttmála.
Þá var tekið til annarar um-
ræðu frumvarp um gjaldaviðauka
og hafði Davíð Ólafsson (S) fram
sögu fyrir fjárhagsnefnd í mál-
inu. Mælti nefndin einróma með
samþykkt frumvarpsins, en frum-
vörp samhljóða þessu hafa verið
tTamhaid á 15. síðu.
5*
VANTAH BLAöBURÐAR
FÓLK í
EFTIRTALIN HVERFI:
MIÐBÆ, I. OG H.
HVERFISGÖTU,
EFRI OG NEÐRI
LAUGARNESHVERFI
LAUFÁSVEG
LAUGARÁS
LAUGARTEIG
KLEPPSHOLT
SÖRLASKJÓL
LAUGAVEG, NEÐRI
SKJÓLIN
HRINGBRAUT
LAUGAVEG, EFRI
SELTJARNARNES, I.
SÍNII 141900.
á krossgötum
★ OLÍUFÉLÖGIN
Svohljóðandi bréf hefur okkur borizt frá
bíleiganda: „Það er sannarlega gott til þess að
vita, að íiú skuli unnið að því, að koma á ein-
hverskonar samstöðu gegn einokun olíufélaganna
þriggja. Ég sé það í einu dagblaði, að boðuð er
slofnun nýs olíufélags. Það held ég, að mundi þó
ekki leysa neinn vanda, nema ef menn vilja bæta
fjórða dreifingarkerfinu við og hafa fjórfalt kerfi
í stað þess þrefalda, sem nú er.
Það er sannarlega mál til komið að reynt
sé að skapa samstöðu þeirra aðila, sem við
þessi fyrirtæki verzla, en það er nú víst meiri-
hluti landsmanna, þegar öllu er á botninn hvolft.
Þjónusta olíufélaganna mætti að skaðlausu
vera talsvert betri og hinar síðustu ráðstafanir
þeirra í sambandi við innheimtugjöld eru furðu
legar, að ekki sé sterkar að orði kveðið. Almenn-
ingur á heimtingu á að þessum málum sé kippt
í lag og bágt á ég með að trúa, að þessar ráðstaf-
anir séu gerðar samkvæmt skipunum eða beiðni
bankanna, eins og félögin hafa þó látið skína í
óðrum þræði.
Ég leyfi mér að láta þá von í ljós, að ár-
angurinn af þessum aðgerðum verði sá, að raun-
veruleg samkeppni komist aftur á á milli olíufé-
laganna, en um slíkt hefur alls ekkf verið að
ræða í mörg lierrans ár.
Bílelgandi.
★ BENZÍN MEÐ HÆRRI OKTANTÖLU
Við á krossgötunum viljum gjarna bæta
því hér við að þau ánægjulegu tíðindi hafa nú
borizt, að von sé til þess að Rússar fáist til a3
selja okkur btmzín með hærri oktan-tölu. Alkunna
er að það benzín, sem hér hefur verið selt, hent-
ar alls ekki miklum hluta þeirra bíla, sem hér
eru í notkun, en hefur verið notað samt.
Talsverð gagnrýni hefur komið fram á
rússneska benzínið, sem hér fæst m.a. mátt lesa
I blöðum fyrir nokkru ummæli rússnesks verk-
fræðings um að benzínið, sem þar væri framleitt
væri langt frá því að vera gott og gæti meira að
segja verið skaðlegt.
Nú væri fróðlegt að vita, livort gerður hafi
verið samanburður á þessu rússneska benzíni og
benzíni, sem fáanlegt er á Vesturlöndum. Sérfræð-
ingar hljóta að hafa gert slíkar rannsóknir. Væri
fróðlegt ef einhver af lesendum blaðsins kynni
að vita nánar um þetta.