Alþýðublaðið - 10.11.1966, Blaðsíða 6
Heimskringla kynnt
í lceland Review
Komið er nýtt hefti tímarits
ins ICELAND REVIEW og er það
fjölbreytt og vandað sem fyrr. Að
nokkru er það hel'gað Halldóri
Laxness og leikritum hans, hefst
á hreinskilnislegu viðtali, sem
Matthías Johannessen hefur átt
við Laxness ,en síðan skrifar Sig
urður A. Magnússon um tvö síð
ustu leikrit skáldsins, sem sýnd
voru hér á árinu. Fjölmargar sviðs
myndir úr Prjónastofunni Sólinni
(og Dúfnaveizlu!] \ i birtast með
þeirri grein.
Halldór Laxness var sem kunn
ugt er kjörinn formaður samtaka
leikritahöfunda á þingi þeirra í
París nýverið og má segja að eftir
það sé eklci síður en fyrr ástæða
til að kynna leikritagerð hans og
viðhorf hans til lcikritunar með
al annarra þjóða.
. Prófessor Þórhallur Vilmundar
son hefur valið kafla úr Heims
kringlu Snorra Sturlusonar þar
sem seair frá orrustunum miklu
á Englandi árið 1066. Þess hefur
mjög ’ærið minnzt á Bretlandi á
þessu íri, að níu hundruð ár eru
liðin frá þessum miklu átökum
en færri vita þar í landi, að frá
sögn Snorra er með gleggstu Iheim
ildum um atburðina. Kaflinn úr
Heimskringlu er í enskri þýðingu
Samue's Laíng, myndskreyttur af
Wilhel-n Wotlesen. Prófessor Þór
Ihallur skrifar inngang að þessari
kynningú íslenzkra fornrita og
birtist ennfremur nákvæmt kort
sem HaUdór Pétursson hefur gert
yfir vettvanig átakanna.
ítarlegt viðtal er við dr. Jóhann
es Nordal, Seðlabankastjóra um
þjóðlega hagsmuni og erlent fjár
magn, viðhorf íslendinga og stefnu
í þeim málum. Jónas Kristjáns
son, ritstjóri, skrifaði þetta við
tal og er þar m.a. vikið að stór
framkvæmdum þeim, sem hefjast
með byggingu álverksmiðjunnar í
Straumsvík.
Þá birtir Iceland Review í fyrsta
sinn ítarlega ferðalýsingu útlend
ings, sem heimsótti landið í fyrra.
Mönnum kemur ekki alltaf saman
um það hve glöggt gestsaugað sé
en Bandaríkjamaðurinn Tom Bross
segir hér hispurslaust frá því
hvernig ísland nútímans kemur út
lendingum fvrir sjónir. Baltasar
hefur myndskreytt frásögnina.
Myndskrevtt grein er um þotu
kaup Flugfélagsins og lengingu
Loftleiðavélanna. Jónas Kristjáns
son, ritstjóri, skrifar langt viðtal
við dr. Jón Vestdal þar sem seg
ir frá starfsemi Sementsverksmiðj
unnar og framtíðarmálum. Mats
Wibe Lund jr. skrifar stutt viðtal
við skreiðarkaupmann frá Níger
íu, sem hér var 'á ferð fyrir
skömmu og af öðru efni mætti
tel.ia íslandsfréttir í samþjöppuðu
formi, fréttir af útvegnum, frí-
merkjabátt Jónasar Hallgrímsson
ar, fróðleik fyrir erlenda ferða
menn, stutt ,,Reykjavíkurbréf“ um
hið endalausa Surtseyjargos, les
endabréf o.fl.
Kápumtind er eft.ir Gísla B.
Björnsson og Barböru Stascíli og er
hún í tengslum við kynningu rits
ins á Heimskringlu.
lönnemar fagna nýju
iðnfræðslulögunum
Síldarveröið sunnan
ands og vestan
Á fundi yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins í dag var á-
kveðið, að lágmarksverð á síld
veiddr: sun.ian- og vestanlands í
bræðslj tín abilið 6. nóvember til
31. desember 1966 skuli vera hvert
kg............kr. 0,91.
Verðið er miðað við að selj-
ándi skili síldinni á flutningstæki
við hlið vdiðiskips.
' Seljandi skal skila síld til
bræðslu í verksmiðjuþró og greiði
fcaupandi kr. 0.05 pr. kg. í flutn-
íngágjald frá skipshlið.
Kaupura hreinar
tuskur,
Béisturiðjan
Freyjugötu 14.
Heimilt er að greiða kr. 0,22
lægra pr. kg. á síld í bræðslu,
sem tekin er úr veiðiskipi í flutn-
ingaskip.
Verðákvörðun þessi var gerð
með atkvæðum oddamanns og full
trúa sildarkaupenda gegn atkvæð-
um fulltrúa síldarseljenda í nefnd
inni.
í yfirnefndinni áttu sæti: Jón-
as H. Haralz, forstjóri Efnahags-
stofnunarinnar, sem var oddamað-
ur nefndarinnar. Guðmundur Kr.
Jónsson, framkv.stjóri, Reykjavík
og Ólafur Jónsson, framkv.stjóri
Sandgerði, fulltrúar síldarkaup-
enda og Guðmundur Jörundsson,
útgerðarm. Reykjavík og Tryggvi
Helgason, formaður sjómannafé-
lags Akureyrar, fulltrúar síldar-
seljenda.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Reykjavík, 8. nóvember 1966.
24. þing Iðnnemasambands !
tslands var haldið í Tjarnarbúð j
í Rvík dagana 28. - 30. október sl. I
Þingið sátu um 60 fulltrúar hvað
anæva af landinu og auk þess einn
erlendur gestur Kjeld Andersen, j
frá Faglig Ungdom í Danmörku. j
Helgi Guðmundsson, fráfarandi
varaformaður INSÍ, setti þingið
á föstudagskvöld, en síðan fluttu
gestir þingsins ávörp sín, þeir
Kjeld Andersen og Örlyigur Geirs
son, fulltrúi Æskulýðssambands
íslands. Eftir að þeir höfðu flutt
ávörp sín voru kjörbréf athuguð
og nefndir kjörnar, 'en þingfundi
var slitið um kl. 23 um kvöldið.
Á sunnudagsmorgun störfuðu
nefndir þingsins, en kl. 14 var
fundi framhaldið. Flutti
Ilelgi Guðmundsson, varafor-
maður, þá skýrslu um starf lið-
ins árs, og gat helztu mála, sem
sambandsstjórnin hefði glímt við
á tímabilinu. Vorú m.a. stofnuð
eða endurvakin fjögur ný iðn-
nemafélög. Félag iðnnema í raf-
magnsiðnaði, Iðnnemafélag Hafn
arfjarðar, Iðnnemafélag Húsavík-
ur og Félag flugvirkjanema, en
það síðasttalda kvað varaformaður
hafa verið ófáanlegt til að ganga
í sambandið. Síðan gat Helgi for
mannaráðstefnanna, sem haldnar
voru á Akureyri og í Reykjavík.
Þá gat hann þess, að skv. hinum
nýju iðnfræðslulögum ættu iðn-
nemar fulltrúa í iðnfræðsluráði
og hefði sambandsstjórn falið
sér að gegna störfum þar f.h. iðn-
nema.Þá drap Helgi á húsnæðis-
vandræði samtakanna, sem hann
kvað brýna nauðsyn að færa í
betra horf. Loks gat varaformað
urinn þess að ráða yrði fastan
starfsmann hjá samtökunum,
hefði starfsmaður verið ráðinn
'hluta úr degi einn vikudag frá
ágúst-mánuði og væri brýn nauð
'syn að svo gæti verið áfram.
Er Helgi hafði greint frá þessum
hluta starfsins greindi hann frá
iðnnemamótinu í Vaglaskógi, sem
hefði að vísu ekki farið fram sem
'skýldi, en af framkvæmd þess
mætti draga lærdóma til endur
bóta á iðnnemamótum framveg
is.
Er varaformaður 'hafði flutt
skvrslu flutti Haukur Már Har
aldsson skýrslu ritara, þar sem
greinir fná innra samstarfi sam
bandsstjórnar. Fjörugar umræður
urðu um skýrsluna, en síðan flutti
Örn Jóhannsson form. Iðnnemafé
lags Húsavíkur tillögu þess efnis
að stofnaður yrði sióður til að
bæta úr húsnæðisvandræðum sam
takanna. Skutu þingfulltrúar þeg
ar í stað saman í sjóð, sem alls
nam 25 þús. kr. er þinginu lauk.
— Þessu næst fluttu formenn að
ildarfélaganna skýrslur sínar.
Þá var rætt um nauðsvn þess
að Iðnnemasambandið fengi nýtt
merki og var sambykkt að velja
sem merki samtakanna merki, er
Halldór Guðmundsson, iðnnemi
hafði teiknað.
Nú fóru fram umræður um álit
nefnda, en síðan störfuðu nefnd
ir á sunnudassmorgun til hádegis
er þingfulltrúar snæddu hádegis
verð í Tiarnarbúð.
Eftir hádegisverðinn var rætt
um Iðnnemann, málgagn INSÍ,
I ennfremur um að hafa samband
við aðildarfélögin með dreifibréf
um en það kvað hafa gefizt mjög
vel hjá Faglig ungdom í Dan-
mörku. Er umræðum var lokið um
málgagn og útgáfustarfsemi var
kjörinn ritstjóri Iðnnemans fyrir
næsta starfsár Sigurður Magnús
son frá Félagi iðnnema í rafmagns
iðnaði.
Þessu næst flutti gjaldkeri Guð
ný Gunnlaugsdóttir hárgreiðslu-
nomi, skýrslu um fjárhaginn.
Nú var lögð fram 'ályktun um
iðnfræðslu og enx höfuðkaflar
hennar þessir:
„Þingið fagnar þeim stórmerka
sigri, sem náðst hefur með sam
þykkt hinna nýju iðnfræðslulaga
sem veita iðnmemum í fyrsta sinn
stærsta og e.t.v. eina raunveru
lega sigur i hagsmunabaráttunni
frá stofnun samtakannar
Þingið lýsir enn stuðningi sín
um við þá stefnu, sem tekin hefur
verið nð beina hinu verklega námi
iðnnema í æ ríkari mæli inn í
verknámsskóla. Lýsir þingið þeirri
skoðun sinni að stefna beri að
því marki að helmingi námstím-
| ans verði varið til kennslu í skól'
um.
j Þingið ítrekar fyrri kröfur sín
ar um að a.m.k. einn hinna full
komnu iðnskóla verði tilbúinn til
kennslu eigi síðar en haustið 1968
Bendir þin'gið á að árlega fara
milljónir í súginn vegna lélegrar
menntunar iðnaðarmanna.
Þingið bendir á að ástandið í
kennslumálum iBnskólanna er
með öllu óviðunandi og þjóðinni
til vansæmdar. Telur þingið að
vinda beri bráðan bug að bví að
allir iðnskólar verði dagskólar og
bendir á að 16 ár eru liðin síðan
Framliald á 10. síðu.
0 10. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ