Alþýðublaðið - 24.11.1966, Blaðsíða 8
Hvernig húfur viltu nota?
Það er sérstaklega gott fyrir okk
ur hérna á íslandi, að hlýjar húfur
hafa verið í tízku undanfarið og
ekki lítur út fyrir annað, en svo
muni verða áfram. Að sjálfsög'ðu
tekur alltaf nokkurn tíma að kon
ur hér taki almennt upp ný tízku
fyrirbrigði, og kannski sérstaklega
seint í höttum og húfum. Þó virðist
það alveg sjálfsagt hér, að sem
flestar noti sér, hvað höfuðfata
tízkan lientar okkur sérlega vel
Flestar húfurnar eru bundnar und
ir kverk og falla þétt að höfðinu.
Það er einhver munur að hafa
slíka húfu en slæðurnar, sem
næstum hver einasta manneskja
notaði fyrir nokkrum árum, ef eitt
hvað var að veðri. Slæðurnar eru
bæði kaldar og óklæðilegar og hald
ast illa á höfðinu, það ætti þvi
ekki að þurfa að hvetja íslenzkar
konur til að fá sér húfur, sem
haldast vel á höfðinu, hvernig sem
veðrið er og eru auk þess sérlega
kiæðilegar. Nú fást hér skinnhett
urnar, sem eru svo góðar fyrir
kalda veðráttu. Vinsældir þeirra
hér virðast vera að aukast, eink-
anlega meðal ungra stúlkna,
enda klæðileg höfuðföt fyrir
flesta. Það er mikil fjölbreytni
í höfuðfatatízkunni nú, þar má
sjá túrbanhatta ýmiss konar,
húfur, sem minna á rússnesk hóf
uðföt og koma þar fram áhrif
frá kvikmyndinni Dr. Zhivago.
Sú kvikmynd virðist hafa haft
geysimikil áhrif á tízkuírömuðina
og hefur mátt sjá áhrif frá henni
bæði í kápum, stígvélum og höfuð
búnaði.
-x
a
24. nóvember 1966
ALÞÝÐUBLAÐIÐ