Alþýðublaðið - 24.11.1966, Síða 15
Hemingway
KrarnHí .■ <1 t. sfSa.
elsskáldsins Ernest Hemingways,
að hann hafði látið eftir sig hand
rit að endurminningum sínum frá
Parísarárunum, 1922-1926. Bókin
var gefin út í 'Bandaríkjunum árið
1964 og var metsölubók í meira
en heilt ár, enda er hún frábærlega
skemmtileg aflestrar. Það mun
ekki teljast til minni tíðinda hér
á iandi, að Nóbelsskáldið Halldór
Laxness hefur nú snúið bókinni á
íslenzku af sinní alkunnu snilld, og
er ósennilegt að annar merkari bók
menntaviðburður verði hér á landi
árið 1966 en útkoma bókarinnar
Veisla í farángrinum. Þessa óvið
jafnanlegu bók þurfa allir bókelsk
ir íslendingar að eignast og lesa
sér til óblandinnar ánægju. Bókin
er tilvalin vinargjöf".
Óhætt mun að fullyrða, að hér
sé um kærkomna jólagjöf að ræða
þar sem tveir Nóbelsverðlaunahaf
ar liafa lagt sinn skerf að, hvor
með sínu móti.
Framhald af t. síða.
■sumarbústaði suður með vatninu
þar sem gömul alfaralei'ð hefði ver
ið-, innan hins friðaða þjóðgarðs.
Emil Jónsson tók einnig tii máls
en hann er formaður Þingvalla-
nefndar. Sagði hann, að Alþingi
og Þingvallanefnd hefðu yfirstjórn
Þingvalla og væri ekki við forsæt
isráðherra að sakast í þeim efnum.
Hann kvað nefndina hafa úthlutað
alimörgum lóðum á stöðum, sem
varla sjást úr sjálfum þjóðgarð
inum og því væru engin spjöll að.
Nefndin hefði reynt að sinna þeim
umsóknum um sumarbústaðalönd
sem henni hefðu borizt, og hefði
nú öilum verið sinnt. Mest tjón
kvað Emil hafa verið igert á Þing
vöilum, er fyrstu bústaðirnir voru
‘leyfðir innan þjóðgarðsins, en nú
væri um að ræða lönd utan gárðs
ins.
Kína
Framhald af bls. 2
unargötunum í vesturhluta Pek-
ing. Þúsundir manna stóðu í bið-
röðum iá götunum til að lesa pés-
ann, sem er gefinn út af félagi
rauðra varðliða í háskólanum í
Peking.
A öðrum áróðursskiltum, sem
Jcomjð var fyrir í Peking, eru
Teng Hsiao-ping og 'kona hans sök
Aið um að hafa sveigt inn á ,,borg
-aralega braut“ og fylgt „slæmri,
spólitískri línu“.
í Peking er það hald kunnugra,
að ásakanirnar á hendur forsetan-
um og flokksritaranum séu þær
nákvæmustu og áreiðanlegustu, er
franí hafi komið síðan rauðu varð-
liðarnir hófu baráttu sína í ágúst
sl. í þeim tilgangi að fjarlægja
öll öfl í flokknum, er lagt hafi
út á ,,braut kapítalisma“. Bent er
á, að áróðursbæklingurinn hljóti
að vera saminn af eða undir um-
sjón manna, sem þekki náið til
þess sem igerzt hefur um langan
tíma í æðstu flokkforystunni. í á-
róðursbæklingum er m.a. vitnað í
ræður. er Liu og Teng héldu á
fiokksþ. 1945 og 1956 til að sýna
að þeir Ihafi unnið gegn línu Maos.
Flokksritarinn er einnig sakað-
ur um að hafa dreift „svörtu eitri“
Krústjovs með því að láta i Ijós
samþykki sitt vjð endurskoðun-
arsinnaðar ákvarðanir, er teknar
voru á þingi sovézka kommúnista
flokksins 1956 þegar Krústjov
gaisnrýndi Stalíntímann.
Unp á siðkast.ið hafa rauðu varð
liarnir ráðizt á Liu og Teng í
sömu andránni og Peng Chen fv
borgarstjóra í Peking. Peng Chen
er eini valdamaðurinn sem form-
lega 'hefur verið sviptur embætti.
\ ______i______
EVQTr>lin1d af hls. 1.
ef SF gæti fallizt á stjórnarstefn
una skinti eneu máli hvort. borg
araflokkarnir ættu aðild að stiórn
inni. Aksel T.arsen gekk jafnvel
svo lanvt að eefa í skvn, að afstaða
t.ii NATO mundi ekki aftra SF
frá bví að ganga í samstjórn undir
forsæt.i Krags. Hann benti á, að af
■daða Dana til NATO yr'ði ekki tek
in til endurskoðunar fyrr en 1969
en saeði að kjósendum mundi gef
ast kostur á að láta í ljós álit
sitt á NATO í bingkosningunum.
Sama hafa leiðtogar • jafnaðar-
manna saet í kosningabaráttunni,
þeirra.á meðal Per Hækkerup ut-
anríkisráðherra.
St.iórnmálaroenn í Kaupmanna-
höfn benda á að vegna frumkvæðis
Krags standi ýmsir möguleikar til
stjórnarmvndunar opnir. En þetta
sé aðeins á nanm’rnum. Ósennilegt
er talið. að Krag hætti á það að
mvnda stiórn með einum eða fleir
um borsaráflnkkum án SF, til þess
hafi sveiflan til vinstri í kosning
unum verið of mikil. Ekki er held
ur talið líkleet, að Krag liætti á
að mvnda stiórn með SF einum. og
samstevnustiórn á breiðum grund
velli eins og forsætisráðherrann
miðaði að í fvrstu, er talin útilok
uð með öllu þar eð borgaraflokk
arnir geti ekki hugsað sér að sitia
saman í stinrn með SF. Þá er að
eins ein lausn eftir, sú sem allir
aerðu fyrirfram ráð fyrir. minni
hlutastjórn .iafnaðarmanna, ef Lib
eralt. Centrum skiptir þá ekki um
skoðun og fellst á samvinnu.
Hvað sem gerist eru nokkrar
staðreyndir óhagganlegar. Jafnað
armenn verða stærsti flokkurinn á
nokkrum sinnum tekið þátt í
flugkeppni erlendis.
Núverandi stjórn Flugmála-
félagsins er þannig skipuð.
Baldvin Jónsson forseti, Úlfar
Þórðarson varaforseti, Haf-
steinn Guðmundsson, Leifur
Magnússon og Ásbjörn Magnús
son.
Mi'ðasala á flugmálahátíðina
er þegar hafin og eru miðar
seldir í afgreiðslum flugfélag-
anna og í Tómstundabúðinni.
IÞang ASS
Framhald af bls. 1.
hann, og er rétt að það komi
skýrt fram strax.
í nefndinni, sem um málið
fjallaði áttu eftirtaldir sæti: Eð-
varð Sigurðsson, Óskar Hallgríms
son. Jón Sn. Þorleifsson, Jóna
Guðjópsdóttir, Pétur Sigurðsson,
Björn Þórhallsson, Björgvin Sig-
hvatsson, Jón Ingimarsson, Sveinn
Gamalíelsson og Jón Bjarnason,
hinir þrír síðast töldu, undirrit-
uðu álitið með fyrirvara. Sig-
finnur Karlsson var fjarverandi
við'afgreiðslu málsins.
Eðvarð skýrði tillögur nefndar
innar, sem verða birtar bér í
blaðinu einhvern næstu daga.
Þar er m. a. gert ráð fyrir á-
kvæði til bráðabirgða um frest-
un þinghalds og framhaldsþing,
sem fyrr segir.
Er Eðvarð hafði lokið máli
sínu hófust almennar umræður
og tóku allmargir þátt í þeim, og
voru menn yfirleitt hlynntir til-
lögum laga og skipulagsnefndar.
Sumir bentu þó á galla sem lands
snmbanda skipulagið kynni að
bafa í för með sér.
Stóðu umræður um skioulags
málin enn um ellefu levtið í
í gærkveldi og verður nánar
skýrt frá lyktum málsins í blað
inu á morgun.
Á þingfundi ASÍ, sem liófst kl.
fjögur í gærdag, var fyrst rætt
álit meirihluta verkalýðs- og at-
vinnumálanefndar um kiaramál,
ng hafði Guðmundur J. Guðmunds
son þar framsögu. Þrír uefndar-
menn undir forystu Sverris Her-
mannssonar, allir Sjálfstæðismenft
skiluðu séráliti, sem Sverrijr
mælti fyrir og gerði hann ýmkl
ar athugasemdir við vinnubrögíj
nefndarinnar. Álit meirihlutan's
var samþykkt með 244 atkvæðum
gegn 64, og drógu þá minnihlutáj-
menn álit sitt til baka, þar seirj
menn voru sammála um að allji
sem í því stæðj kæmi einnijf
fram í áliti meirihlutans.
Ekki er rúm hér í blaðinu I
dag til að rekja efni ályktunari
innar, en þar er m. a. komið inrj
á verðlagseftirlit, sparnað I ríki^j-
rekstri, húsnæðismál, staðgreiðslii
kerfi skatta og fleira og verðá
henni síðar gerð betri skil hér
í blaðinu.
Þá voru einnig síðdegis sam-
þykkt álit Allsherjarnefndar þings
ins, sem allmörgum tillögum var
vísað til. Voru álit liennar tvö,
og f jallaði annað um tillögur, sem
nefndin lagði til að yrði vísað til
miðstjórnar, en hitt um tillögur,
sem hún lagði til að yrði vísað
t.il miðstjórnar, en hitt um tillög
ur, sem hún lagði til að yrðu
samþykktar. Var þar m. a. til-
laga um stofnun þróunarsióðs, til
stvrktar vanþróuðum bióðum.
Mæltu þeir Pétur Pétursson og
Snorri Jónsson fyrir nefndarálit-
unum sem bæði voru samþykkt
samhljóða.
SMURT BRÁÖÐ
SNITTUK
^RAUDSTOFAN
Yestnrsrfttn 3E
Sími 16012.
OpW fré kl. 9 — 2S.ÍÓ
MS. BALDUR
fer til Bolungavíkur á mánudag.
Vörumóttaka á fimmtudag, árdeg-
is á föstudag og árdegis á laug-
arda'g.
þingi og verða að mynda kjarna
næstu stjórnar og Krag verður á-
fram forsætisráðherra. Frumvarp
jafnaðarmanna um staðgreiðslu-
■skatt, sem leiddi til þingrofs og
kosninga, verður nú samþykkt í að
alatriðum. Róttækar breytingar
verða gerðar í húsnæðismálum, þar
sem samningur Krags við borgara
flokkanna í þeim málum er nú úr
gildi fallinn. Loks má búast við
meiri vinstri stefnu á grundvelli
kosningaúrslitanna.
Flugmálafiátíð
Framhald af 3. siðu
Örn Johnson, Alfreð Elíasson,
Björn Pálsson, Sigurður Jóns
son, Halldór Jónsson frá Eið
um. Alexander Jóhannesson og
Guðbrandur Magnússon. Hver
fær gullmerkið a'ð þessu sinni
verður ekki látið uppi fyrr en
afhending fer fram. Danssýn
ing verður undir stjórn Her-
manns Ragnars og sænska
þokkadísin Ulla-Bia skemmtir
á forvitnilegan hátt. Hljómsveit
Ólafs Gauks lejkur fyrir dansi
og milli skemmtiatriða. Á mið
nætti verður síðan skemmtiatr
iði sem koma á veizlugestum á
óvænt.
Veizlustjóri verður Þormóð
ur Hjörvar. Eins og á fyrri flug
málahátíðum er dagskrá og mat
seðill með nýstárlegu sniði, en
matseðillinn er í ljóðum og er
hátíðargestum ætlað að syngja
hann milli rétta. Matseðillinn er
saminn af yfirkokknum í Lidó
Lofti Guðmundssyni.
Öllum áhugamönnum um
flug og hátíðahöld er heimill að
gangur, svo framarlega sem
þeir ná sér í miða.
Flugmálafélagið var stofnað
árið 1936, og var markmið þess
í upphafi að endurvekja flug á
íslandi, en á þeim tíma lá allt
flug niðri. Síðan hefur félagið
starfað og eru félagsmenn á-
hugamenn um flug, hvort sem
þeir starfa beinlínis við flug
mál eða ekki, enda er tilgangur
þess að sameina alla þá sem á-
huga hafa á flugmálum og efla
almenna þekkingu á þeim. Fé
lagið er í alþjóðasambandi flug
málafélaga og hefur sem slíkt
Krossgötur
Framhald af 4. síðu.
ið vonum framar og skemmt mörgum áhorfandan
um, og áreiðanlega vel gert af litlum efnum og
fámennu starfsliði. En sú spurning kemur óneitan
lega fram í huga manns, þegar íslenzka sjónvarp
ið ætlar að fara að sjónvarpa sex daga vikunnar
hvort ekki sé um of mikla bjartsýni að ræða? Eða
myndi sjónvarpsefnið ekki þynnast út að gæð
um um lcið? Valda of snöggum breytingum á
högum okkar og fylla alla af áhuga á að ná sér í
sjónvarp, hversu gáfulegt eða skemmtilegt efnl
sem kynni að birtast á skerminum?
Væri ekki nær að sjónvarpa í mesta lagi þrjá
daga vikunnar fyrstu tvö til þrjú árin meðan end
ursjónvarnsstöðvar færast yfir landið.
Sjónvarpsgjaldið gæti þá verið minna að lík-
indum og sjónvarpskaup gætu færzt vfir á lengra
tímabil. Og ekki sízt fólk gæti gefið sér meiri tíma
til að sinna leikhúsum, félagsstarfsemi og ýmis
konar samkomum, meðan það væri að venjast
svo áhrifamiklu tæki sem sjónvarpið er.
HSÍ
ÞRÓTTUR
HKRR
]
HANDKNATTLEIKSHEIMSOKN V-Þ íZKUMEISTARANNA
OPPUM - ÚRVAL Jlandslið)
í laugardalshöllinni í kvöld kl. 20,15.
Forieikur ÞRÓTTUR - VÍKiPIGUR II. fl.
Forsala aðgöngumiða í Bókaverzlunum Lárusar Blöndal.
Knattspyrnufélagið Þróttur.
tf~r
24. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ