Alþýðublaðið - 29.11.1966, Blaðsíða 6
Farþegaflutningar auk-
ast, þegar þotan kertiur
Eeykjavík OO.
Undanfarna daga hefur staðið
yfir fundur umboðsmanna Flug-
félags íslanis, erlendis og hér á
fandi, með forstjóra félagsins og
fulltrúum s iludeildar og umferð
ardeildar. Fundir þessir er hald-
nir árlega r m þetta leyti. Rædd
eru vandamál yfirstandandi árs
og áaetlanir gerðar um starfið á
konandi ári.
4)inn þeir a umboðsmanna, sem
situr fund nn er Sk'arphéðinn
Árnason, fr imkvæmdastjóri Flug
félagsins í Moregi, og ihafði Al-
þýðublaðið tal af honum í gær.
Skarphéðinr hefur um 12 ára
skeið unnið á skrifstofum FÍ í
ýmsum löndum og s.l. ár í
Noregi. Sa:-5i hann að flugsam-
göngur mil i Noregs og íslands
hefðu aukizi mjög iá undanförnum
árum og s.l. sumar hefði enn ver
ið bætt við ferðum þangað í sam
toandi við Færeyjaflugið. í vetur
erU flognar tvær ferðir til Nor-
egs frá íslandi. í annarri ferðinni
er flogið til Oslo en í binni til
Bergen og þá með viðkomu í
Færeyjum. Sótt- befur verið um
leyfi til að fjölga ferðum til Nor
egs með viðkomu í Færeyjum og
verður það væntanlega veitt fyrir
næsta sumar og þá flognar þrjár
ferðir milli landanna. >Þar var
fyrst s.l. sumar að fastar flug-
samgöngur komust á milli Fær-
eyja og annara landa. Jafnframt
eru ferðir Flugfélagsins milli Fær
eyja og Noregs fyrstu áætlunarferð
ir milli þeirra landa. Hefur góð
sætanýting á þessari leið sýnt að
þörf var fyrir þessa flugleið ,og er
nýting svipuð og á leiðinni milli
íslands og Færeyja.
Á skrifstofu Flugfélags íslands
í Oslo eru tveir fastráðnir starfs-
menn og einn bætist við á sumr
um. Þá hefur félagið skrifstofu
í Bergen og sér Gylfi Adolfsson
um rekstur hennar.
Skarphéðinn sagði að aukning
ferðalaga milli íslands og Noregs
stafaði fyrst og fremst af aukn-
um viðskiptum landanna og eins
er ferðamannastraumurinn frá
Noregi alltaf að aukast, en hægt
og bítandi.
Norsku skemmtiflerðamennir
nir sem hingað koma eru einkum
í þeir sem hafa sögulegan áhuga á
landinu og koma til að skoða sögu
staði íslendingasagna og kynnast
frændþjóðinni í vestri. Annars
er svo margt líkt með landslagi
og loftslagi í Noregi og á íslandi
að norskir skemmtiferðamenn
sem fara til útlanda leita fremur
suður í álfu en lá norðurslóðir.
— Auðvitað vinnum við á skrif-
stofum FÍ í Noregi að því að aug-
lýsa landið eins og við gotum.
eins og reyndar starfsfólk á öllum
skrifstofum félagsins í útlöndum.
En eins og áður er komið fram
eru einkum Norðmenn með sér
áhuga á íslandi, sem hingað koma.
Tvö undanfarin sumur hefur ver-
ið efnt til svokallaðra bændaferða
frá Noregi til íslands. Það eru
fleiri en bændur sem tekið hafa
þátt í þessum ferðum en þó hafa
þeir verið í meirihluta og því höf-
um við gefið ferðunum þetta nafn
og höldum því sjálfsagt framveg-
is.
Ferðir þessar hafa gefizt mjög
vel og um 30 manns tekið þátt i
hvorri, sem farin hefur verið. Hér
hafa hópamir ferðazt um landið
og skoðað sögustaði og sérstök á-
herzla lögð á að kynna þeim land-
búnaðarm'ál. Skoðaðir eru búnað-
arskólar og bændur heimsóttir.
Blaðið Ny Tid, sem er málgagn
nýnorskumanna hefur kynnt þessi
ferðalög rækilega, en ritstjóri
þess er Ivar Eskeland, sem kunn-
ur er fyrir áhuga sinn á íslenzkum
málum og dugmikill þýðandi ís-
lenzkra bókmennta á norsku. Þess
um bændaferðum verður að sjálf-
sögðu haldið áfram, enda áhugi á
þeim mikill. Annars leggja út-
lendingar leið sína til íslands af
furðulegustu ástæðum. Dæmi eru
um ferðamenn sem lagt hafa í
mikinn kostnað og tímafrekt ferða
lag til íslands í þeim tilgangi ein-
um að skoða einhvern einstakan
fugl, sem ekki er til annars stað-
ar í heiminum.
Mikil bjartsýni ríkir hjá flug-
félagsmönnum í sambandi við
væntanlegain þoturekstur. Þegar
Skarphéðinn Árnason, umboðsmaður F.í. í Noregi.
þotan kemur í júlímánuði n.k.
fjölgar flugferðum ekki frá því
sem var sl. sumar, nema að leyfi
fáist til að fljúga til Frankfurt
eins og sótt hefur verið um. En
þar er mikil flugmiðstöð og það-
an geta farþegar fengið flugferð-
ir til allra heimshorna.
Skoðun okkar er, sagði Skarp-
héðinn, að munur á gæðaflokki
miðað við þotuflug sé mikill.
Þetta er nýtt fyrirbrigði fyrir ís-
lendinga og útlendingum, sem
þykja farþegaþotur sjálfsagðar í
iag finnst varla annað hæfa en
ið fljúga með þotum á lengri fluig
leiðum. Auk þess að stytta flug-
ímann fer miklu betur um far-
bega í þotu en í eldri gerðum flug
véla. Geta má þess að þotan stytt-
ir flugtímann milli Osló og Reykja
víkur úr 4.30 klst. í 2.10. Ekki leik
ur vafi á að tilkoma þotunnar
eykur mjög sölumöguleika okkar
á flugferðum erlendis.
Annað er það sem eykur bjart-
sýni okkar á að ferðamannastraum
urinn til landsins eigi enn eftir
a* aukast er að hóteleigendur á-
Nýjasta flugvél FÍ. Fokker Friendshipgerff. í júlí-má nuffi verffur þotan tekin í notkun.
kváðu að hækka ekki verð á þjón
ustu næsta sumar. Það ei ekki
hægt að hækka verð til ferða-
manna endalaust og. búast svo við
að ferðamannastraumurinn haldi
áfram að aukast. Það er svo margt
annað sem ferðamönnum er boð-
ið upp á og ódýrai-a en að eyða
sumarleyfi sínu á íslandi og við
verðum að vera samkeppnisfær-
ir við aðrar.þjóðir í þessu tilliti.
Ég vona að þetta verðlag sé nú
komið í fastar skorður svo að við
sem störfum að ferðamálum er-
lendis þurfum ekki ávallt að segja
væntanlegum ferðalöngum að hót-
elkostnaður hér hafi hækkað síð-
an í fyrra en því miður vitum við
ekki hvað mikið fyrr en komið er
að aðalferðamannatímanum. Ekki
er vafi íá að þetta háa verðlag hef-
ur á undanförnum árum dregið
mjög úr ferðamannastraumi til ís-
lands og er ekki nema eðlilegt að
fólk fari fremur til þeirra landa
sem bjóða upp á mun ódýrari
þjónustu og við megum ekki
gleyma að það er fleira að sjá í
heiminum en ísland, þótt náttúran
hér sé bæði fögur og sérkennileg.
Eitt er það sem veldur flugfé-
lagsmönnum nokkrum áhyggjum,
en það er síaukið leiguflug er-
lendra aðila til landsins. Koma þá
Teiguflugvélar fullhlaðnar faf-
þegum til landsins og taka innlent
■ t'ólk út og til báka aftur þegar náð
er í erlenda hópinn. Að vísu er
ekkert sem bannar slikt leiguflug
og enn ihefur þetta ekki veruleg
! áhrif, en ef farið verður að stunda
| þetta í stórum stíl gerir það flug-
i félögum sem stunda reglubundið
i áætlunarflug erfiðara fyrir og rýr-
i ir óhjákvæmilega þjónustumögu-
j leika slíkra flugfélaga. Flugfélag
j íslands hefur stundað leiguflug
að nokkru leyti en ekki á þann
hátt sem að framan er lýst, enda
til dæmis Grænlanddflugið allt
annars eðlis, og að fljúga með ein
staka hópa, ekki gert að ferða-
mannamarkaði.
Að lokum spyrjum við Skarp-
héðin hvernig honum líki starf
sitt og langdvalir í útlöndum.
í þessu starfi er maður í svo
miklum tengslum við landið að
ég finn varla fyrir að ég sé í út-
löndum og að hinu leytinu hefur
mér reynzt afskaplega vel að vera
íslendingur í öllum þeim löndum
sem ég hef starfað og ekki sízt
í Noregi.
£ 29. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ