Alþýðublaðið - 29.11.1966, Síða 13
Hver liggt&r í
gröf minni?
Mjög spennandi amerísk stór-
mynd. Framhaldssaga Morgun-
blaðsins.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 9. Bönnuð börnum.
Leðurbiakan
Ný söngva- og gamanmynd í Iit
uin
Marika Rökk
Peter Alexander.
Sýnd kl. 7 og 9.
Síðasta sinn.
Pússningasandur
Vikurplötur
Einangrunarplast
Seljum allar gerðir af
pússningasandi heim
fluttum og blásnum inn.
Þurrkaðar vikurplötur
og einangrunarplast.
Sandsalan við
Elliðavog s.f-
Elliðavofri 115. — Sími 30120.
Brauðhúsið
Laugavegi l?i
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUÐTERTUB
SÍMI 24631.
GJAFABRÉF
FRÁ SUNDLfiUCAKSJÓDl
skAlatúnsheimilisins
FETTA BRÉF ER KVITTUN, EN ÞÓ MIKLU
FREMUR VIDURKENNING FYRIR STUDN-
ING VIÐ GOTT MÁIEFNI.
kiykiavIk. ». i»
»•»- Si/ndlangoní'Ol SV óta.cn.
K»t._
gognum.
— Ég vona, að þér kunnið vel
við yður hérna, sagði Gabriella.
— Ég veit, að ég kem til með
að gera það, sagði Candy hlý-
lega.
- Það held ég líka - í fá-
einar vikur, en þér eruð úr stór-
borg og eftir smátíma fer yður
að leiðast. Það er annað með
mig — þetta er heimili mitt og
mitt líf. Ég gaeti hvergi búið
nema hér.
— Eruð þér fæddar í Mexíkó?
Gabriella kinkaði kolli. —
Faðir minn var spænskur og
móðir mín amerísk. Ég var í
bernsku hér, en gekk í skóla í
Bandaríkjunum.
Nú gengu þær upp stóran,
breiðan stiga og eftir kremlit-
um gangi.
Gabriella nam staðar og opn-
aði dvr og Candy andaði djúpt
að sér rósarilm. Gabriella fór
inn og tók hlerana frá gluggun
um og Candy sá stórt ferhymt
herbergi með rúmi sem flugna
net hékk umhverfis. Húsgögn-
in voru yfirdekkt með bláhvítu
iáklæði og á fallegu rósarviðar-
borði stóð skál með rósum.
Candy gekk að glugganum og
leit yfir garðinn sem virtist
hverfa yfir í óræktað landið án
sýnilegra marka.
í garðinum sjálfum var tjörn
sem á flutu vatnaliljur og stór
gosbrunnur urhkringdur fögrum
höggmyndum.
í fjarlægð voru fjöll eins
langt og augað eygði.
— Ég ætla að kalla yður Can-
dý éins og Max, sagði Gabrilla.
— Hvort viljið þér heldur
kalla m'g Gaby eða Gabriellu?
— Gabriellu. Mér finnst það
of fallegt nafn til að stytta það.
— Það gerir þér samt þegar
þér eruð að flýta yður. Gabri
ella er heljarlangt nafn. Hún
leit umhverfis sig. — Ég ætla
að sýna yður afganginn af hús
inu þegar þér hafið lagað yður
til. Dvrnar þarna eru að bað-
herbergi yðar, því þér hafið það
ein til umráða þangað til við
fáum gesti um 'helgina.
Það var barið að dyrum og
Gabriella bætti við — Þarna
kemur .Tosephina — hún er ynd
isleg stúika — hún aðstoðar yð-
ur við að taka upp úr töskun-
um.
Lagleg mexíkönsk stúlka með
eyrnalokka, sem næstum náðu
niður á axlir kom brosandi inn.
— Velkomin senora, sagði
hún við Candy á ensku með
sterkum hreim.
Skömmu síðar sat Candy i
svölum garðinum þar sem vatn
ið skvettist á marmarann um-
hverfis gosbrunninn. Hún
dreypti á ísköldum drykkjum
og Charles sagði henni frá bók
sinni.
Hann hafði skrifað heilmikið
niður en áleit að það erfiðasta
væri eftir — að taka úr það sem
ekki átti að vera með.
AUGLÝSING
um umsóknir um sérleyfi til fólksflutninga
með bifreiðum-
Samkvæmt lögum nr. 83/1966 um skipulag á
fólksflutninígum með bifreiðum falla úr gildi
hinn 1. marz 1967, öll sérleyfi til fólksflutn-
inga með bifreiðum, sem veitt hafa verið fyr-
ir yfirstandandi sérleyfistímabil, sem lýkur
hinn 1. marz 1967.
Ný sérleyfi til fólksflutninga með bifreiðum
verða veitt frá 1. marz 1967 og skulu umsókn
ir um sérleyfi sendar til Umferðadeildar pósts
og síma í Reykjavík eigi síður en 15. janúar
1967.
í sérleyfisumsókn skal tilgreina:
1. Þá leið eða leiðir, sem umsækjandi sækir
um sérleyfi á.
2. Srásetningarmerki, árgerð og sætatölu
þeirra bifreiða, sem umsækjandi hyggst
nota til sérleyfisferða-
Upplýsingar um einstakar sérleyfisleiðir, nú-
gildandi fargjöld, vegalengd og ferðafjöld gef
ur Umferðarmáladeild pósts og síma, Umferðar
miðstöðinni í Reykjavík, sími 19220.
Póst- og símamálastjómin,
28. nóvember 1966.
AÐVÖRUN
til Söluskattgreiðenda í Hafnarfirði og
Gullbringu- og Kjósasýslu.
Athygli söluskattsgreiðenda í Hafnarfirði og
Gullbringu- og Kjósarsýslu sem enn skulda
söluskatt fyrir 3. ársfjórðung 1966 og eldri
tíma er hér með vakin á því, að verði skatt
urinn ekki greiddur þegar, ásamt áföllnum
dráttarvöxtum, mun verða beitt lokunarheim
ild samkv. 18. grein reglugerðar nr. 15, 1960
og atvinnurekstur þeirra stöðvaður án frek-
ari 'aðvörunar.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu, 28. nóvember 1966.
— Ég hef búið hér svo lengl
að ég kann heil ósköp af sögn-
um og frlásögum.
— Okkur finnst skemmtilégt
að hafa gesti og bókin hans Char
les var aðeins afsökun til að fá
nýtt andlit í hópinn, sagði Gab
riella við Candy. — Stórt hús
með herbergjum sem enginn býr
í er eins og verzlun hálffull af
vörum — niðurdrepandi sjón.
— Ég ætla að fara út að gaöga
með Candy fyrir kvöldverð,
sagði Max, — og sýna hénni
þorpið. Ég hafði líka hugsað
mér að fara með hana í reiðtúr
í fyrramálið.
— Það lízt mér ekki á, sagði
Candy. — Hestum og mér kem
ur heldur illa saman.
— Ég skal setja þig á róleg-
an hest — litla svarta hryssu
sem heitir Mitla. Svo kem ég
með — þú getur ekki verið hér
án þess að fara á hestbak.
Hún leit skelfingu lostin á
Gabriellu.
— Verð ég?
— Auðvitað! hló Gabriella.
— En það er ekkert að óttast.
— Nú skulum við ganga niður
í þorpið, saigði Max og reis á
fætur.
— Mig langar að skoða hvítu
byggingarnar þarna, sagði hún
áköf, því hún hafði komið auga
á tvo turna sem gnæfðu upp úr
húsaröðinni.
— Þetta er kirkjan en hún er
fyrir utan þorpið og ég er hrædd
ur um að það sé of langt til að
ganga þangað. Fjarlægðin leynir
á sér — en við igetum gengið I
áttina til hennar.
. Hún leit á hann, Gabriellii og
Charles, þetta fólk, sem hún
ætlaði að umgangast næstu vik-
ur og ísú tilhugsun gladdi hana.
London var svo óendanléga
Iangt í burtu og hún var hrffin
og glöð með umhverfi sitt nú
jafnvel þó hluti af henni hugs-
aði sífellt um London.
Dún- og
fiðurhreinsun
Vatnsstíg 3. Sími 18740.
(Örfá skref frá Laugavegi).
Endurnýjum gömlu sænguraar,
Eigum dún- og fiðurlield yer
gæsadúns- og dralon-sængur og
kodda af ýmsum stærðum.
29. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 43