Alþýðublaðið - 06.12.1966, Qupperneq 1
Þrföjudagur 6. desember - 47. árg. 274. tbl. -• VERÐ 7 KR.
A myndinni eru þcir menn sem unnið haía að rann okn í dans-íslenzka fjársvikamálinu. Til vistri eru
dönsku rannsóknarlögreglumennirnir Lavald og Kjer ri, endurskoðandinn Jensen og lengst til hægri er
Magnús Eggertsson rannsóknarlögreglumaður.
Dansk-íslenzka svikamálið
verður sífellt umfangsmeira
Reykjavík — OÓ.
Dönsku lögregluménnirnir sem
unnið hafa að rannsókn á við
skiptum dansks fjársvikara og ís
lenzkra innflytjenda luku störfum
sínuin hér í gær. Alls yfirheyrðu
þeii’ forráðamenn 17 íslenzkra fyr
irtækja og athuguðu bókhald hjá
sumum þeirra, en öll þessi fyrir
tæki hafa skipt við danska fyrir
tækið sem fjársvikarinn veitti for
stöðu. Rannsóknarlögreglan í
Re.vkjavík hefur unnið ao rannsókn
inni með dönsku iögrcglumönnun
um og komið hafa i ljós stórfelldar
faktúrufalsanir og svik á tollalög
gjöfinni hjá nokkrum þeirra fyrir
tækja sem skipt hafa við danska
Brotizt inn í Gull-
smíðaverkstæði
Reykjavík OÓ
Brotizt var inn í Gullsmíða-
verkstæðið að Vesturgötu 45 að-
faranótt mánudags. Þar var stol-
ið skartgripum, aðallega armbönd
um og eyrnalokkum fyrir verð-
mæti að upphæð 32 þúsund krón-
ur.
Þjófnaðurinn fór fram með
(þeim hætti að brotin var rúða í
sýningarglugga og var |hirt úr
glugganum. Ekki hafði komizt upp
um hver eða hverjir voru þarna
að verki í gærkvöld en unnið er að
rannsókn málsins.
Eigandi verkstæðisins er Bene-
dikt Guðmundsson.
fyrirtækið. Rannsókn á þessu máli
á langt í land hér á landi og ekki
eru öll kurl komin til grafar enn.
-Upphaf þessa máls er að 17.
apríl sl. varð bruni í fyrirtækinu
Hovedstadens Möblefabrik í Kvist
gaard skammt frá Helsingjaeyri.
Brátt kom í Ijós að ekki var allt
með felldu í sambandi við brun
ann og var rannsóknarlögreglan í
Kaupmannahöfn beðin að rannsaka
hann. Kom í ljós að forstjóri
fyrirtækisins og annar eigandi þess
voru valdir að íkveikjunni í þeim
tilgangi að dylja stófelldan fjár
drátt. Síðan hefur málið verið í
rannsókn og forstjórinn setið í
gæzluvarðhaldi síðan í maí.
Við rannsóknina kom í ljós að
fyrirtækið átti nokkur viðskipti
við íslenzka aðila og þóttu þau eitt
hvað grunsamleg. Hér hafa starf
að tveir danskir rannsóknarlög
reglumenn og elnn endurskoðandi
i 20 daga og haft góða samvinnu
við íslenzku lögregluna og aollayf-
irvöld. Hefur Magnús Eggertsson
rannsóknarlögreglumaður, unnið
að rannsókninni með Dönunum, og
hafa þeir tekið skýrslur af íslenzk
um aðilum. Hefur fyrst og fremst
verið unnið að öflun upplýsinga,
sem Danirnir þurftu á að halda.
Hins vegar hefur einnig verið unn
ið nokkuð að því að koma upp um
brot á íslenzkum lögum og verður
þeirri rannsókn haldið áfram.
Nokkrir af þeim íslenzku innflytj
endum sem yfirheyrðir hafa verið
hafa viðurkennt brot á gjaldeyris
lögum og einnig liafa þeir í sam
ráði við danska útflytjandann tek
ið þátt i fölsunum á fylgiskjölum,
þannig að gefin eru út tvenn fylgi
skjól með sömu vöru og eru verð
upphæðir mun lægri á öðru eintak
inu, þ.e.a.s. því sem tollayfirvöld
fá í hendur. En fleiri atriði i sam
bandi við faktúrufölsun kunna enn
að koma í Ijós.
Dönsku lögreglumennirnir sögðu
Framhald a 14. síðu.
Reykjavík OÓ
Undanfama tvo mánuði hafa
verið framdir margir þjófnaðir í
íbúðarhúsum í Reykjavík. Rann-
sóknarlögreglan hefur nú hand-
tekið tvo menn sem játað hafa á
sig alls 16 innbrot. Hafði annar
þeirra staðið að öllum innbrot-
unum en hinn hjálpað til með í
fjórum þeirra. Samtals er inn-
brotsfengurinn um 65 þús. kr
virði. Mest af því var fatnaður
og kvenveski, en þjófarnir fóru
sjaldnast nema í forstofur húsa
og gripu þar það sem hendi var
næst.
Þótt þjófarnir hafi játað hefur
lítið af þýfinu komið til skila.
Höfðu þeir losnað við það með
ýmsum hætti og sumt geymdu
þeir á stöðum sem þeir fundu
ekki aftur. Til dæmis hafa þeir
játað að hafa falið þýfi í húsi sem
verið er að byggja á Melunum,
en nú finna þeir ekki húsið aft-
ur. Þar er um að ræða logsuðu-
tæki og fleira verkfæri og er það
falið í poka í kjallara hússins,
sem þeir géta ekki komið fyrir
sig hvar er. Eru tilmæli' rannsókn-
ariögreglunnar að eigandi hússins
láti vita þegar hann finnur verk-
færin. 1 öðru tilfelli földu þeir
kvenveski úr slönguskinni í ösku-
tunnu. Yeskið ásamt innihaldi er
metið á nálega níu þúsund krón-
ur. Þegar þjófarnir ætluðu að ná
veskinu aftur var búið að losa úr
öskutunnuý’ini og sáu þeir það
aldrei meir.
Illfært um göt- |
urnar í Reykjavík |
Illfært var um Reykjavíkurgötur í gær vegna snjókomu og »
skafrennings. Gekk á með éljum og komst vindhraðinn upp í Z
8 stig þegar verst lét. 18 bílárekstrar urðu í gær en ekkert al- ;
varlegt slys á fólki. Lítið var um að umferð stöðvaðist vegna ;
skafrennings en fáir litlir bílar voru í umferð og hélt fólk sig *
eins mikið innandyra og unnt var. Myndin var tekin á Lækjar- »
torgi í gær. Mynd: Bj. Bj. :