Alþýðublaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 3
JÓLATRÉ
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan og
Stýrimannafélag íslands halda jólatrésfagn-
að sinn á Hótel Sögu fimmtudaginn 29. des-
ember kl. 3 e.h.
Aðgöngumiðar fást hjá eftirtöldum mönnum:
Guðjóni Péturssyni, Höfðavík, sími 15334
Jóni B. Einarssyni, Laugatcig 6, sími 32707
Þoryaldi Árnasyni, Kaplaskjólsveg 45, sími 18217
Herði Þórhallssyni, Fjölnisveg 18, sími 12823
Andrési Finnbogasyni, Hrisateig 19, sími 36107
Gleðileg jól!
Verzlun
Pétur Kristjánsson
Ásvallagötu 21.
Tilkynning
Með tilvísun til ákvæða laga um verðstöðv-
un, samanber tilkynningu ríkisstjórnarimiar
dagsetta í dag, er hérmeð öllum sem það varða
bent á þau meginákvæði laganna, að verð á
hverskonar vörum og þjónustu má ekki vera
hærra en það var hinn 15. nóv. síðastliðinn.
Sérstök athygli skal vakin á því, að þær verð-
hækkanir, sem kunna að hafa átt sér stað síð
an, skulu úr gildi felldar.
Verðlagsskrifstofan hvetur neytendur til að-
stoðar við framkvæmd verðlagseftirlitsins og
biður þá- að gera aðvart um þær verðhækkanir,
sem þeir kunna að verða áskynja um.
Reykjavík, 23. des. 1966.
Verðlagsstjórinn.
Héraðslæknisembættiö
í Laugaráshéraði er laust tii umsóknar.
Lun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríltisins.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 1967. Veit-
ist frá 15. marz 1967.
Dóms- og -kirkjumálaráðuneytið, 23. desém-
ber 1966.
Sóttu skipstjór-
ann í gærmorgun
Þrír ísfirðingar og skipstjórinn
af brezka togaranum Northern
Prince fóru í gærmorgun klukkan
hálf sex á lóðsbátnum til að freista
þess að sækja skipstjórann á
strandstað togarans, sem ekki hafði
viljað fara í land er skipshöfninni
var bjargað kvöldið áður. Tókst
förin vel og komu þeir með skip
stjórann til ísafjarðar klukkan
að ganga átta i morgun, og var skip
stjórinn þar enn í gærdag.
Alþýðublaðið ræddi í gær við
Einar Jóhannsson hafnsögumann
á ísafirði, sem var einn þeirra
sem sóttu skipstjórann í gærmorg
un. Hann sagði, að auk hans hefðu
verið í lóðsbátnum Halldór Gunn
arsson Tormaður á bátnum, Krist
björn Eydal úr björgunarsveitinni
og skipstjórinn af togaranum North
ern Prince, en hann og skipstjór
inn á strandaða togaranum munu
vera gamlir .kunningjar, sagði Ein
ar.
—Við lögðum af stað klukkan
hálf firnm og þetta er svona þriggja
kortera sigling. Á flóðinu gátum
við lagt að togaranum og fórum
við þá um borð ég og brezki skip
stjórinn og tókst okkur að fá skip
stjórann á Boston Wellvale í land
með okkur. Hann var í hálfgerðu
sjokki að sjá, en alsendis ódrukk
inn. Það er því ekki rétt, sem hald
ið er fram í sumum dagblöðunum,
að hann hafi verið drukkinn, sagði
Einar.
Ekkert kvaðst Einar geta sagt
um björgunarhorfur þarna, en sér
hefði virzt sjólaust í lestum togar
ans í morgun, en hinsvegar var
sjór í vélarrúmi.
Félag ungra
jafnaðarmanna
í Reykjavík
sendir sínar beztu
jóla- og nýárs-
óskir
til æskumanna í Reykja-
vík og annars staðar á
landinu.
Skipbrotsmaður hnýtir bindi á yngsta skipverjann í Hafnarbúðum.
Bretarnir voru allir í nýjum fötum og átti strákurinn í erfiðleik-
um með að hafa hnútinn á réttum stað. (Mynd: Bj. Bj.)
Framhald af 1. síðu.
voru Víkingur, Júpiter, Harðbakur
og Svalbakur munu hafa hætt leit
í gær, en bátarnir héldu áfram.
Þá átti flugvél frá varnarliðinu
sömuleiðis að halda áfram að leita
í gærkveldi og fram á nótt.
Áhöfnin á Svan er sex menn og
munu allir þeirra vera frá Hnífs
dal. Skipstjóri er Ásgeir Karls-
son. Svanur er eikarbátur smíðað
ur í Svíþjóð árið 1944 rúmlega
80 brúttólestir að stærð.
Um jólin
2. jóladag ki. 10,30 f.h. jólafund
ur sunnudaga skólans við Amt-
mannsstíg. Drengjadeildin Langa
gerði. ý,30 e.h. jólafundir drengja
deildanna við Amtmannsstíg og
Holtaveg. Kl. 8,30 e.h. Almenn
samkoma í húsi félagsins við
Amtmannsstíg. Sr. Magnús Guð-
mundsson, sjúkrahúsprestur talar
Æskulýðskór syngur. Allir velkomn
Peking-leiðtog
fremja sjálfsmo
TOKIO, 23. des. (NTB-Reuter) —
Orðrómur er á kreiki um það í
Peking að þrír fyrrverandi leið-
togár kínverska kommúnistaflokks
ins hafi framið sjálfsniorð, að því
er japanskt blað hermir í dag.
Fréttaritari ,,Yomiuri Shimb-
un“r j Peking segir, að menn þeir,
sém'her um ræðir, sóu Lu Ting-yi,
fv. áróðjursstjóri, Lo Jui-Shing, fv.
yfifmáður frelsishersins og Yang
Fhang-kung, fv. meðlimur stjórn-
málanefndarinnar. Sá síðastnefndi
svipti sig lifi með þvi að taka inn
’eitur á tnánudaginn.
Óstaðfestar fréttir herma að Lu
Jui-king hafi einu sinni áður í-eynt
að fýrirfara sér og verið fluttur á
sjúkrahús.
Þeir þrímenningarnir eru kall-
aðir flokksfjendur. Sögusagnir
sem þessar hafa venjulega haft
við rök að styðjast, þótt þær hafi
verið bornar til baka.
Lu Ting-yi var leiddur fram á
fundi rauðra varðliða á þriðjudag-
inn, og þar átti að áfhjúpa borg-
aralega afturhaldsglæpi hans. Lo
Jui-king og Yang Fhang-kung
hafa ekki sætt árásum rauðra varð
liða, segir fréttaritarinn.
Sovétstjórnin mótmælti í dag
brottvísun þrigfflja sovézkra frétta
ritara frá Kína. Stjórnin segjir, að
brottvísunin sé einsdæmi í sam-
skiptum kommúnistaríkja.
Fyrr í þessum mánuði skipuðu
kínversk yfirvöld þremur af sex
fréttariturum sovézkra blaða og
fréttastofa í Kína að fara úr landi
fyrir 25. desember, þar sem þeir
hefðu dreift óhróðri um Kínverska
alþýðulýðveldið.
Rauðir varðliðar hafa eyðilagt
mannvirki, sem Sviar hafa reist
í Peking vegna vörusýningar, sem
þeir ætluðu að ihalda þar í vor.
Svíum hefur verið tjáð að vöru-
sýningin geti ekki farið fram.
Rauðir varðliðar kváðust hafa
eyðilagt mannvirkin þar sem þau
stæðu á svæði þar sem þeir ætl-
uðu að reisa bækistöðvar handa
sér sjálfum.
24. desember 1966 — ALÞÝÐUBLABIÐ 3