Alþýðublaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 8
Og; J>etla er hann Gáttaþefur.
Síðustu 3 sunnudaga komu fram í glugga Vesturvers
þrír jólasveinar, þeir Kertasníkir, Gáttaþefur og Hurða-
skellir og skemmtu þeir hörnunum, sem safnazt höfðu
saman fyrir utan, með söng og alls kyns jólasveinalátum.
Jólasveinarnir þrír voru hinir skemmtilegustu og kvað
við söngur þeirra um bæinn. Eins og allir vita þá eru jóla
sveinar stundum venjulegir menn og því réðumst við í
að ná í viðtal við þá einmitt þá stundina, sem þeir vöru
í þeim ham.
Ekki gott að láta kippa í
skeggið.
■Sjálfur kertasníkir heitir öðru
nafni Alli Rúts og vinnur í Geysi
— Maður er nú svo sem alltaf
jólasveinn, hvar sem maður er, seg
ir Al'.i. Það þarf ekki að leika jóla
svein til þess. Annars er það rétt
ég var Kertasníkir, sem kom fram
undanfarna þrjá sunnudaga í
glugga Vesturvers.
— Er langt síðan þú tókst upp
á því fyrst að bregða þér í jóla
sveinaham?
— Ég lék jólasvein bæði í fyrra
og árið þar áður.
—Hvernig kanntu við þig í
stöðu jólasveins?
—t>etta' er erfitt starf og heil
mikill undirbúningur. Ég man eft
ir því, þegar ég var lítill, þá var
ég alltaf að kippa í skeggið á jóla
sveininum, en núna, þegar ég er
orðinn jólasveinn sjálfur, finn ég,
að það er ekkert gott fyrir jóla
svein að láta kippa í skeggið á sér.
— Og jólasveinarnír hafa nátt
úrlega í mörg horn að líta?
—Já, í fyrra t.d. var ég á sex
stöðum á einum sunnudegi á milli
kl. fimm og sjö. Það var á barna
böllunum. Þegar við ókum í gegn
um bæinn vakti bíllinn okkar
mikla athygli, tveir jólasveinar sitj
andi í framsæti. Undirleikari
minn er Friðleifur Helgason og
hann fer alltaf með mér og er að
sjálfsögðu jólasveinn líka. Nú er ég
t.d. búinn a'ð lofa mér ó 7 staði
sama daginn. Þeir þurfa að koma
víða við þessir jólasveinar.
—Og þeir eru alltaf jafnvin
sælir.
— Já, ekki ber á öðru og ekki
veitti af að hafa aðstoðarjólasveina.
— Trúðir þú á jólasveina, þe'gar
þú varst lítill?
— Já, ég gerði það.
— Gerir þú sjálfur textann við
lögin, sem þú syngur?
— Ég bý mína jólasveinatexta til
sjálfur eða tek gamla texta og set
vi'ð þá ný vinsæl lög .
—Nú starfar þú við afgreiðslu á
daginn ,ert þú ekki í jólasveina
ham við afgreiðsluna.
— Nei, ekki er ég það nú.
— Það hlyti nú að vera viiisælt
og auka til muna afsókn að verzl
uninni?
—Að minnsta kosti myndu
börnin aideilis kunna að meta
það.
Jólasveinahlutverkið mitt
skemmtilegasta hlutverk.
Og svo er það hann Gáttaþefur
við ræddum líka við hann að sjálf
sögðu. Hann heitir öðru nafni Har
aldur Adolfsson.
— Þetta var nú í fyrsta sinn nú
í mörg ár, sem ég hef leikið jóla
svein. Ég .var í þessu fyrir nokkr
um árum og þá með Gesti Þorgríms
syni. Það er gríðarlega gaman að
skemmta sér með krökkunum. Mér
er bara meinilla við' að skemmta
bak við gler. Fyrsta sunnudaginn
sem við skemmtum í Vesturveri
kom ekki tæknimaðurinn, svo að
engir hljóðnemar voru úti. Við urð
um þá að skemmta úti fyrir verzl
uninni og það var lang skemmti
legast, við komumst þó í beinan
„kontakt“ við krakkana og þau
tóku svo vel undir sönginn. Það er
fátt til skemmtilegra en krakkar
í jólaskapi.
— Það er argasta púl að vera
jólasveinn á jólatrésskemmtunum,
því að börnin eru ekki ánægð
nema maður sé með þrjú til
fjögur á handleggnum og önnur
tíu hangandi utan í sér. En það
er óskaplega gaman. Þegar svo
maður fer að eldast er gott að
losna við þetta. Annars finnst mér
að fara verði að stofna stéttavfélag
jólasveina hér, það eru orðnir
svp margir ágætir menn í þessu! !
— Ég var nú oft í gamla daga
statisti í leikritum, en jólasveina
hlutverkið er mitt lang skemmti-
legasta lilutverk. Mér fannst
svo gaman a ð skemmta mér
með krökkunum, það eru fáir á-
heyrendur skemmtilegri en krakk
ar og kröfuharðari, ef þeim leiðist,
fara þau bara að tala saman, svo
að það þýðir ekkert fúsk.
—Ég vil svo að lokum óska öll
um góðum krökkum á landinu
gleðilegra jóla.
Alli Rúts
Gaman að þessu í aðra
röndina.
Við náðum næst tali af Hurða
skelli, alias Jóni Sigurðssyni, og
það er jólasveinninn, sem leikur
á harmoniku.
— Ég lék fyrst jólasvein á
skemmtun hjá Ármanni fyrir
að minnsta kosti 20 árum, segir
Jón, þá vorum við sex eða sjö
saman í hóp. í nokkur ár kom
ég svo ekkert nálægt þessu, en
byrjaði svo aftur að leika jóla
svein í fyrra. Og nú tók ég að mér
að sjá um þetta fyrir verzlanirnar
og happdrættin í Vesturveri, sem
standa fyrir jólasveinaskemmtun
unum sunnudaga desembermánað
ar.
— Mér finnst gaman að þessu
í aðra röndina ef að vel tekst til
og krakkarnir skemmta sér vel,
því að krakkarnir vilja nú einu
sinni hafa sinn jólasvein.
— Þau minnstu eru sum svolít
ið hrædd stundum, og hin eldrl
trúa ekki meira en svo á jóla
sveinana, en þeim finnst þó engin
jólaskemmtun vera, ef ekki kemur
þangað jólasveinn. Á jólaskemmt
unum er alltaf stór hópur, sem
vill iáta okkur halda á sér og
það getur verið dálítið erfitt stund
um að komast yfir að halda á öll
um hópnum.
Jón Sigurðsson.
3 24. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ .