Alþýðublaðið - 18.01.1967, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 18. janúar 1967 ■■■ 48. árg. 14. tbl. - VERÐ 7 KR.
Reykjavík, — EG.
Allar horfur eru á, að
Vínlandskortið fræga
verði til sýnis í Reykja-
vík í tvær vikur síðari
hluta marzmánaðar. Hef-
ur þegar borizt boð um
þetta, sem líklegast er tal
ið að verði þegið, en
menntamálaráðuneytið
fjallar nú um málið.
hm
„Blettur á nor-
rænni samvinnu"
Helsingfors 17. 1. (NTB-FNB).
Helsingforsblaðið „Helsingln.
Sanomat" sagði í dag í forystu-
grein að neitunin við beiðni Loft
leiða um lendingarleyfi fyrir Ttolls
Royce-vélar sínar á Norðurlöndunt
væri ljótur blettur á norrænni sam
vinnu. Blaðið lét í ljós von um að
lokaorðið hefði ekki verið sagt I
þessu máli.
í Osló komu samgöngumálaráð
herrar Danmerkur, Noregs og Sví-
þjóðar saman til fundar í dag til
að ræða sameiginleg hr.gsmunamál
landanna. Fundurinn er haldinn á
Fornebuflugvelli. Háðherrarnir
halda slíka fundi með sér reglulega
og er ekkert látið uppskátt um um-
ræðuefni. ,
Jo Grímond
segir af sér
LONDON, 17. jan. (NTB-Reuter)
— Leiðtogi Frjálslynda flokksins
í Bretlandi, Jo Grimond, íilkynnti
í kvöld, að hann mundi segja af
sér sem leiðtogi flokksins. Hann
heldur hinsi vegar áiram þing-
mennsku. Frjálslyndir iafa nú 12
þingmenn, en þingsæti erú alls
630.
JO GRIMOND er 53 ára gain-
all. Afsögn hans er lalin munu
hafa alvarlegar afleiðingar í för
með sér fyrir flokkinn, sem ihlaut
10 prósent atkvæða í s.'ðustu kdsn
ingum. Grimond er emi leiðtogi
flokksins, sem er þjóðkunnur, og
eftifmanni háns mun reynast örð-
ugt að afla sér eins mikils trausts
meðal þjóðarinnar og Grimond
hefur notið, þótt kosningar verði
ekki haldnar fyrr en 1970.
Grimond tilkynnti' fyrir kosn-
ingamar í fyrra að ef annað tovort
íhaldsmenn eða jafnaðarmenn
fengju öruggan meirihíuta mundi.
hann ef til vill se'gja af sér. Frjáls
lyndir hafa beitt sér mun ákveðn-
ar fyrir aðild Breta af Efnahags-
bandalaginu en stóru flokkamir.
Framhald á 15. síðu.
VÍNLANDSKORTH) SÝNT
ÍKURZ
Vátryggt fyrir 180 millj. króna
Boð þetta mun hafa borizt hing
að fyrir nokkrum dögum frá for
svarsmönnum Yale University
Press. en kortio er sem kunnugt
er í eigu Yale liáskold. Blöð,
bæði í Bretlandi og á Norðurlönd
um hafa skýrt frá því að kortið
muni sýnt í Reykjavík, er haldnar
Ihafi verið á því sýningar í London,
Osló og Kaupmannahöfn.
Föstudagirn 20. janúar verður
opnuð sýning í British Museum,
þar sem Vínlandskortið verður til
sýnis, en þegar henni lýkur eftir
fjórar vikur verður kortið flutt
til Osló og þar omuð sýning á
því 22. febrúar. Af öryggiSástæð
um hefur því verið haldið leyndu
hvenær kortið verður flutt til
Noregs. Sýningin í Noregi mun
standa í um það bil þrjár vikur,
en þá verður kortið flutt til
Kaupmannahafnar og sýnt þar
um hríð, en að því búnu verður
það flutt til Reykjavíkur og sýnt
hér, en síðan flutt vestur um
haf til Bandaríkjanna, þar sem
Framhald á bls. 15.
ALLTÍEINULAGI!
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hélt
fund í gær þar sem fjárhagsáætl-
un bæjarins vár til annarrar um-
ræðu og endanlegrar afgreiðslu.
Fyrir fundinum lá tillaga frá
meirihluta bæjarráðs, þeim Stef-
áni Jónssyni og Áma Gunnlaugs-
syni um að öllum framkomnum
breytingartillögum frá minnihluta
flokkunum, Alþýðuflokknum og
Alþýðubandalaginu yrði vísað frá
lán þess að atkvæðagreiðsla færi
fram um þær, þar eð þær væru ó-
Framtoald á 15. síðu.
1
Yínlandskortið fræga, sem sýnt verður hér í marz.
3 af 8 stórblöðum
Bretlands í hættu
LONDON, 18. jan. (NTB-Reu-
ter) — Þrijú af átta stórblöðum
Breta eiga það á toættu að deyja
út á næstu fimm árum, að því
er segir í yfirliti um hag blað-
anna, sem út kom í dag.
í yfirlitinu er brezkri blaða-
útgáfu í heild spáð miklum erf-
iðleikum, en skuldinni er ekki
eingöngu skellt á verkalýðsfé-
lögin eins og oft hefur verið
gert til þessa. Heldur er sagt,
að meginorsök erfiðleika blað-
anna sé menntunarskortur
blaðaútgefenda og verkalýðs-
leiðtoga. Kaflar úr skýrslunni
birtust í dagblaði fyrir hálf-
um mánuði og ^vöktu þá mikla
athygli.
Sameiginleg nefnd verkalýðs
félaga og blaðaútgefenda átti
frumkvæðið að því að skýrslan
var samin. Upplýsingadeild
Economist toefur gert athugan-
ir þær, sem skýrslan byggist á.
í skýrslunni eru engar tillögur
til úrbóta, en Economist hefur
iboðizt til að gera tillögur og á
það hefur verið fallizt.
Fram kemur í skýrslumii, aff
tæplega helmingur þeirra blaða
sem toafa lesendur um allt Bret
iand, eru rekin með toalla og
að talsverður hluti blaðanna sé
þess efcki megnugur að bera
sig á tímum aukins kostnaðar
og óbreyttra tekna. Verði eng-
ar breytingar á kostnaði kunni
þrjú dagblöð og eitt sunnudags
blað, sem er ekki nafngreint,
Framhald á 15. síðu.
(1