Alþýðublaðið - 18.01.1967, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 18.01.1967, Blaðsíða 14
Siguröur Fáfnisbani býr sig undir að henda grjóti í Ilögna, sakir morðtilraunar þess síðarnefnda. Á la Hollywood SIGURÐUR FAFNISBANI. .^öls- luigasaga, fyrsti liluti. J)ie Nibelungen. Þýzk frá 1966. Leik- stjóri: dr. Ilarold Reinl. Fram- kvæmdastjóri við töku hér á landi: Gísli Alfreðsson. fslenzkur texti. Blómaskeið þýzkra kvikmynda var á tímum þöglu myndanna eða nánar tilgreint frá byrjun þriðja tu'gs aldarinnar og hélzt fram á íhann miðjan. Sú stefna, sem þá réð mestu í kvikmyndagerð Þjóð- verja og raunar fleiri iistgreinum var hinn svonefndi expression- ismi. Einn þeirra framámanna í þýzkri kvikmyndagerð var Fritz Lang, en einmitt þá kvikmyndaði hann Völsungasögu og tókst ágæta \rel miðað við þeirra tíma tækni. Hins vegar stenzt sú nútímaútgáfa sem Þjóðverjar bafa gert á Völs- ungasögu, þar sem þeir hafa beitt þ’eirri tækni, sem þeir hafa yfir að ráða til hins ítrasta, engan veg- ifin samanburð við mynd Fritz Land, og þarf raunar ekki saman-1 burðar við. Ég verð að víðurkenna fávizku ! lyína varðandi sannferðugt gildi á ! (kvikmyndun Völsungasögu, Skipt- if raunar engu máli, því það er 1 vikmyndin, sem dæma skal, en c kki hvernig tekizt hefur að miðla { imlum sögnum á þann hátt til l mennings. Slíkt verður aldrei <i egt á sómasamlegan hátt með að s oð kvikmyndatækninnar — a. i .k. þarf mikinn snilling til. Það £ tti því að vera -heimskulegt af ( ckur að fara að einblína á forn- 1 'gurnar við upphaf gagnmerkrar i nlendrar kvikmyndasköpunar og færa þannig garnlan fróðleik fram breiðtjöld kvikmyndasalanna. Frásagnarsnilld þeirra tíma verð- ur aðeins metin af bókum. Svo vikið sé að sjálfri kvik- myndinni, Sigurði Fáfnisbana, verður ekki annað sagt, en að hún minni óþægilega á risamyndir Hollywood af verstu tegund í 70 mm breiðtjaldsformi með 4—6 rása stereofóniskum hljómi, um- vafinn ógnar miklu skrauti, ásamt meðfylgjandi hávaða, múgæsing- um, bardaga og hetjudýrkun. - íburðurinn er það mikill, að inni- haldið vill oftast gleymast. Gerð þessarar kvikmyndar hefur mis- tekizt mjög, nálgast hörmung, og liún er bæði léleg og leiðinleg. Varla er hægt að benda á það at- riði, sem vel er unnið; -sumir kafl- arnir eru raunar syfjulegir, en það bjargar þó nokkuð — og bjar'g ar þó ekki — að myndin verður vart sökuð um mikla langdrægni. Að líkindum er einvígi Gunnars konungs og Brynhildar íslands- drottningar bezt gerða atriði myndarinnar, en er þó hvergi nærri fullnægjandi. Hópatriðin eru um of keimlík mörgum Holly- woodiskum skrautmyndum; allt að því eftiröpun. Þannig mætti halda áfram að telja upp galla myndar- innar; hún er mjög flatneskjuleg áð gerð, yfirborðskennd, lágkúru- leg — í einu orði sagt: leiðinleg, Þeim nálega hundrað milljónum króna, -er myndin kostaði, hefur verið sóað til einskis. Þjóðverjarnir virðast hafa hrif- izt mjög af hérlendu landslagi, er þeir komu hingað í sumar, enda hafa þeir kvikmyndað náttúrufeg- urðina óspart, jafnvel um of. Að vísu kcmur þessi íslandsþáttur okkur íslendingum ankannalega fyrir sjónir, þar sem skipt er milli Surtseyjar, Dyrhólaeyjar, Þing- valla, Gullfoss og Geysis svo til allt í sömu andrá, þannig að at- burðir verða óstaðbundnir í okk- ar augum og í fullu ósamræmi við umhverfislýsingar. Þannig verður sá kafli hálfgerð landkynn- ingarmynd. Með aðalhlutverkið, hlutverk Sigurðar Fáfnisbana, fer Uwe Ba- yer. Hann er sagður vaskur íþrótta maður og hlýtur að vera ákaflega iv#nsæll í sínu heimlaljmdi, því hann var valinn í þetta hlutverk samkvæmt skoðanakönnun. Það er greinilegt, að hann hefur enga leikhæfileika, énda mun hann sjálf ur hafa sagt, að það væri sinn höf- uðverkur. Þótt margt misjafnt gangi á fyrir Sigurði er samt eins og sami svipurinn birtist manni aftur og aftur. Rolf Henniger fer með hlutverk Gunnars Gjúkason- ar, vanþakklátt hlutverk, sem Hen niger gerir eiginlega engin skil. Leikur hans er svipdaufur og ó- persónulegui'. Lítið bragð er einn- ig að leik Mariu Marlow, -sem fer með hlutverk Grímhildar, eigin- konu Sigurðar. Fegurð hennar, sem er mikið rætt um, er ekki ýkja mikilfengleg og skóp hún ei þá persónu, sem skyldi. Sama má einnig segja um þá Bayer og Hen- niger. Eftirtektarverðast er leikur Karin Dors, sem lék Brynhildi Buðladóttur, drottningu yfir ís- landi, Var það eina hlutverkið, sem eitthvað kvað að og lýsti hún kvenskörungi þessum á röggsam- an liátt. Þokkalegur leikur, en vart nógu sannfærandi. Útlit Br.vn hildar hefur aftur á móti allt mjög Framhald á 15. síðu. 14 18. janúar 1967 - ÁLÞÝÐUBLAÐIÐ rr Róm 16. 1. (NTB-Reuter). ítalskir ráðherrar tjáðu í dag Harold Wilson forsætisráðherra, sem er í heimsókn í Róm að þeir mundu veita brezku stjórninni all an husanlegan stuðning í tilraunum hennar til að tryggja Bretlandi inn göngu í Efnahagsbandalagið. ítalski forsætisráðherrann, Aldo Moro, og Harold Wilson voru á einu máli um það á fundi í dag að brezk aðild mundi efla Efna hagsbandalagið. Wilson gerði grein fyrir viðræð um þeim, sem hann mun eiga við leiðtoga allra Efnahagsbandalags- landanna á næstu sex vikum. í því skyni að kanna mögleikana á brezkri aðild. Góðar heimildir herma, að Wilson muni halda því fram, að ef Bretar sæki um aðild geri þeir það úr sterkri aðstöðu. Bretar muni reisa við efnahag sinn hvort sem þeir gangi í EBE eða ekki. Wilson gerði einnig grein fyrir mestu vandkvæðunum, sem eru á brezkri aðild: Stefnu Efnahags- bandalagsins í 1 andbúnaðarmá 1 um,. viðskiptum Breta við samveldis- löndin, flutningi fjármagns og þeirri stefnu brezku stjórnarinnar að byggja upp ákveðin svæði. ★ í Bonn sagði Kurt Georg Kiesingcr kanzlari, en hann er ný kominn frá viðræðum sínum við de Gaulle forseta í París, að risið gæti alvarlegur ágreiningur innan. EBE, ef Frakk-ar legðist gegn. beiðni Breta um aðild. Hann sagði að de Gaulle hreyfði enn sterk um mótbárum gegn aðild Breta. Kiesinger sagði, að forsetinn ef aðist um einlægni brezku stjórnar innar vegna stefnu hennar í heild og samskipta Breta við samveldis löndin. Aðspurður hvort Frakkar væru vinsamlegri aðild Breta en 1963, þegar þeir beittu neitunar valdi sínu, kvaðst Kiesinger ekki hafa rætt ítarlega við forsetann um aðild Breta ,því að hann vildi. ekki spilla væntanlegum viðræð um. Við verðum að bíða og sjá hvað Bretar segja, sagði Kiesinger. Þetta er mál, sem ,,sexveldin“ verða að ræða og ákveða, sagði hann. Kiesinger bætti því við að hann hefði gert de Gaulle ljóst að stefna vestur-þýzku stjórnarinn ar væri að halda dyrunum opnum fyrir brezkri aðild. FAO veitir rann- sóknarstyrki Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) veitir árlega nokkra rannsóknarstyrki, sem kenndir eru við André Hayer Hefur nú verið auglýst eftir um sóknum um styrki þá, sem til út- lilutunar koma á árinu 1967. Styrk irnir eru bundnir við það svið, sem starfsemi stofnunarinnar tekur til, þ.e. ýmsar greinar landbúnaðar, skógrækt, fiskveiðar og matvæla fræði, svo og hagfræðilegar rann sóknir á þeim vettvangi. Styrkirnir eru veittir til allt að tveggja ára, og til greina kemur að framlengja það tímabil um 6 mánuði hið lengsta. Fjárhæð styrkj anna er breytileg eftir framfærslu kostnaði í hverju dvalarlandi, eða frá 150 — 360 dollarar á mánuði, og er þá við það miðað, að styrkur inn nægi fyrir fæði, húsnæði og öðrum nauðsynlegum útgjöldum. Ferðakostnað fær styrkþegi og greiddan. Taki hann með sér fjöl skyldu sína, verður hann hins vegar að standa straum af öllum kostnaði hennar vegna, bæði ferða og dvalarkostnaði. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðuneytis ins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjar torg, fyrir 15. febrúar næstkom andi. Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu. Þar fást einnig nánari upplýsingar um styrkina ásamt skrá um rannsókn arverkefni. sem FAO hefur lýst sérstökum áhuga á í sambandi við styrkveitingar að þessu sinni. Um sókn skulu fylgja staðfest afrit af prófskírteinum, svo og þrenn með mæli. Það skal að lokum tekið fram að ekki er vitað fyrirfram, hvort nokkur framangreindra styrkja kemur í hlut íslands að þessu sinni. Endanleg ákvörðun um val styrkþega verður tekin í aðalstöðv um FAO og tilkynnt í vor. Menntamálaráðuneytið, 13. janúar 1967. Ættir Austfirðinga 8. bindi komið út Út eru komnar Ættir Austfirð inga 8. bindi eftir Einar Jónsson prófast á Hofi í Vopnafiröi. Einar Bjarnason og Benedikt Gíslason frá Hofteigi hafa séð um útgáfuna. Aðalútgefandi er Austfirðingafélag ið I Reykjavík. Með þessu bindi er hcr með lok ið útgáfu á hinu mikla ættfræði safnriti Einars prófasts Jónssonar en hún hefur staðið síðan litlu eft ir 1950 að undirbúningur hófst en fyrsta bindið kom út árið 1953 á aldarafmæli höfundarins. Alls hafa þessi bindi tekið yfir 1514 bls. að viðbættum leiðréttingum í síð asta bindi. Bindi þetta er aðeins til sölu í Bókaverzlun ísafoldar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.